Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 12
12 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
ETJA KAPPI Menn á hestbaki leika
„Buzkashi“ í útjaðri Kabúl í Afganistan.
Bein þýðing er „geitargrip“. Hauslaust
geitarhræ er notað og tvö lið keppast
um að koma því í mark. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
FÆREYJAR Forvarna er þörf til að
koma í veg fyrir að unga fólkið
sýkist af klamidíu. Nú er svo
komið að sjöundi hver Færey-
ingur er með þennan kynsjúk-
dóm.
Þetta segir Malan Egholm á
Færeysku lýðheilsustöðinni við
útvarp Færeyja.
Hann minnir á að talan geti
vel verið hærri, því ekki láta
allir skoða sig, þótt þeir beri
einkenni sýkingar.
Hann hvetur fólk til að leita
til læknis, hafi það haft samfar-
ir án þess að nota smokk, enda
getur sjúkdómurinn gert konur
ófrjóar. - kóþ
Faraldur í Færeyjum:
Sjöundi hver
með klamidíu
BÍLAR Nýskráningar bíla frá janúar
á þessu ári til nóvemberloka voru
2.747 sem er 77,5 prósenta fækkun
frá sama tímabili í fyrra en þá voru
ríflega 12.100 bílar skráðir á land-
inu að því er fram kemur í Hagtíð-
indum Hagstofunnar.
Fleiri nýir bílar voru þó skráðir
í nóvember í ár en í nóvember í
fyrra, 152 í stað 123. Greining
Íslandsbanka túlkar það sem vís-
bendingu um að botni í vissum
hluta neyslu sé náð en bendir jafn-
framt á að nýskráning bíla er enn
mjög lítil.
Í Hagvísum kemur fram að síð-
astliðna tólf mánuði, frá desember
í fyrra til nóvemberloka voru 2.824
bílar skráðir en voru 13.500 næstu
tólf mánuðina á undan sem þýðir
nær 80 prósenta fækkun á þessu
tímabili. Árið 2007 voru nýskráðir
bílar á Íslandi 22.603, árið 2008
voru þeir 12.308 en sem fyrr segir
eru þeir tæplega 3.000 það sem af
er ári. - sbt
Sala á nýjum bílum hefur dregist verulega saman á þessu ári:
80% samdráttur í nýskráningu
BÍLAFLOTI 2007 Bílar sem biðu nýs
eiganda árið 2007 þegar metfjöldi bíla
seldist. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Nýskráðir bílar
2007 2008 2009*
* Fyrstu 11 mánuði ársins
22.603
12.308
2.747
UPPLÝSINGATÆKNI ADSL-háhraða-
nettengingar hér á landi eru tíu ára
um þessar mundir. Síminn tengdi
fyrsta viðskiptavin sinn um ADSL
1. desember 1999. 6. desember
sama ár var hafin almenn mark-
aðssetning og sala á slíkum teng-
ingum.
Nýju tengingarnar buðu upp á
mun meiri hraða á netinu en upp-
hringisambönd þau sem ráðandi
voru áður, en þá þurftu notendur að
hringja inn með mótaldi og hlusta
á són og tölvubrak á meðan tölvan
tengdist. „ADSL markaði tímamót
í sögu gagnaflutnings því um var
að ræða sítengingu eins og flestir
þekkja tæknina í dag,“ segir í til-
kynningu sem Síminn sendi frá sér
í tilefni tímamótanna.
Í upprifjun Símans kemur jafn-
framt fram að þótt talað hafi verið
um byltingu hvað varðaði háhraða-
gagnaflutninga með tilkomu ADSL-
tenginga hafi tæknin fyrsta kastið
verið plöguð af tæknilegum örð-
ugleikum. Haft hafi verið á orði
að ADSL stæði fyrir „Andskotans,
Djöfulsins SambandsLeysi“.
ADSL stendur fyrir enska orða-
sambandið „Asymmetric digital
subscriber line“ og þýðir að gagna-
flutningur fari frá einum stað til
annars ósamhverft um símalínur.
„Meginkosturinn er sá að hvorki
símasambandið né gagnaflutning-
urinn truflar hvert annað vegna
ólíkrar tíðni.“
Nú eru nánast allir landsmenn
sem nota netið sagðir tengjast því
um ADSL-tengingar. „Tölur úr
nýrri skýrslu Póst- og fjarskipta-
stofnunar sýna að tæplega 100 þús-
und ADSL-áskriftir eru hér á landi.
Margfalt færri nota ljósleiðarann,
þótt hann hafi farið vaxandi, og enn
færri fá Internetsamband í gegnum
örbylgjuloftnet eða gervihnött.“
Síminn segir að spár sérfræð-
inga árið 1999 um sívaxandi þörf
fyrir bandvídd hafi gengið eftir og
aðrar tegundir DSL-tenginga og
ljósleiðaratengingar sagðar vera
framtíðin. „Með því gefst heim-
ilum kostur á margföldum Inter-
nethraða, allt að 100 megabitum á
sekúndu, og háskerpu-, gagnvirku
sjónvarpi svo fátt eitt sé nefnt.“
olikr@frettabladid.is
Bara tíu ár frá
tæknibyltingu
Boðið var upp á fyrstu ADSL-háhraðanettengingarnar
hér á landi í desemberbyrjun árið 1999. Spár um vax-
andi þörf fyrir hraða á netinu hafa gengið eftir.
HÁHRAÐATENGING Í NOTKUN Netsjónvarpstengingar þar sem loftnet eru óþörf og
aukin samskipti og gagnaflutningar á netinu hafa aukið þörfina á enn hraðari netteng-
ingum. Ljósleiðaratengingar eru sagðar það sem koma skuli. NORDICPHOTOS/AFP
TÍMAMÓT Á NETINU
Viðburður Ár
Ísland tengist NorduNet 1989
www forskeytið verður til 1990
Mosaic-vafrinn kemur fram 1993
WikiWeb stofnaður 1994
MSN Messenger smáskilaboð 1995
Hotmail vefpóstur verður til 1996
Google fer í loftið 1997
Síminn með ADSL í desember 1999
Heimasíður fleiri en 10 milljónir 2000
MySpace-síðan opnuð 2003
YouTube-myndbandavefurinn 2005
Facebook vinsælla en MySpace 2008
Google Wave stofnað 2009
Heimild: Síminn
Vefslóð bankans
er arionbanki.is
Hafðu samband
sími
Hollráð um eldvarnir
oryggi.is
Hringdu í 570 2400 og fáðu ókeypis öryggisráðgjöf heim!
Reykskynjarar bjarga mannslífum
Á hverju heimili ættu að vera reykskynjarar,
slökkvitæki og eldvarnateppi.
Fleiri hollráð og netverslun með öryggisvörur
er að finna á oryggi.is.
PPII
PPAAA
RRRRRR
\\\\\\\\\\\\
TTTTTTTTTTBBBBB
WWWWWW
AAAA
••
SSÍÍ
AAA
•
9
2
2
5
4
5
44
9
2
2
5
9
2
2
Óska eftir að kaupa
íslensk-ensku námskeið
Óska eftir að kaupa íslensk-ensku Lingapon námskeið. En ég tel nær fullvíst að
aðeins eitt íslenskt – ensku Lingapon námskeið hafi komið út á Íslandi. Kennslubókin
var innbundin kilja en bæði hærri og breiðari en venjuleg kilja.
Eigir þú námskeiðið þá borga ég glaður 40.000 kr fyrir námskeiðið.
Viljir þú ekki selja getum við samið um greiðslu fyrir afnot af bókinni.
Sími. 865-7013