Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 18
5. desember 2009 LAUGARDAGUR
HJÁLPARSTARF Hjálparstarf Mæðra-
hús sem reist var að frumkvæði
Íslendinga var formlega opnað í
bænum Engela í Namibíu í vik-
unni. Forsetafrú Namibíu, frú
Penehupifo Pohamba, opnaði húsið
að viðstöddu fjölmenni, en hún var
verndari söfnunar til byggingar
hússins.
Saga hússins á rætur sínar
að rekja til þess er Vilhjálmur
Wiium, umdæmisstjóri Þróunar-
samvinnustofnunar Íslands í Nam-
ibíu, ók fram á konur sem biðu
fæðingar á spítalanum í Engela í
Ohangwena-sýslu nyrst í Namibíu.
Spítalinn er sá eini í sýslunni en
í henni búa 230 þúsund manns og
þangað koma mæður hvaðanæva
að. Einkum sækjast konur sem ótt-
ast vandamál við fæðingu eftir að
fæða á spítalanum. Ekkert pláss
var hins vegar til þess að taka
konurnar inn fyrr en hríðir hóf-
ust. Höfðust þungaðar konur því
við undir tveimur trjám í nágrenni
spítalans, elduðu sér mat á hlóð-
um og sváfu úti, oft í talsverðum
kulda.
Við svo búið mátti ekki una og
eftir umræður og bollaleggingar
var hafist handa við að safna fé til
húsbyggingar.
Margir lögðu hönd á plóginn
við að reisa húsið, fyrirtæki og
stofnanir á svæðinu til að mynda.
Íslendingar lögðu til um þriðjung
af heildarkostnaði, Reykjanes-
bær stóð fyrir fjáröflun á Ljósa-
nótt árið 2007, en þar söfnuðust
300.000 krónur sem runnu í bygg-
ingu mæðrahússins. Þróunarsam-
vinnustofnun Íslands lagði einnig
til fé.
Talsverðar tafir urðu á byggingu
hússins, meðal annars vegna flóða.
En það reis að lokum og er mikil
ánægja með það í héraðinu sam-
kvæmt upplýsingum Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands. Í húsinu
eru átta gististofur sem geta hýsta
sextíu konur samtímis. Þar er eld-
unaraðstaða sem konurnar geta
nýtt sér og einnig er góð hrein-
lætisaðstaða með sturtum. Í hús-
inu er aðstaða til að veita mæðrum
ráðgjöf um fæðingar og umönnun
barna. sigridur@frettabladid.is
Athvarf fyrir
sextíu konur
Mæðrahús opnaði í Namibíu í vikunni. Áður þurftu
barnshafandi konur að hafast við úti meðan þær biðu
eftir fæðingunni. Húsið reist fyrir íslenskt fé að hluta.
Íslendingar hófu þróunarsamvinnu
við Namibíu sama ár og landið
fékk sjálfstæði frá Suður-Afríku,
árið 1990. Í upphafi var samvinnan
fyrst og fremst á sviði sjávarútvegs.
Íslenskir sérfræðingar og sjómenn
hafa starfað við hafrannsóknir og
namibískir líffræðingar hafa verið
í þjálfun á Íslandi, en einnig störf-
uðu íslenskir kennarar í Namibíu
við undirbúning og kennslu í sjó-
mannaskóla. Á liðnum misserum
hafa verkefni ÞSSÍ í Namibíu þó
einkum verið félagsleg og í dag
eru verkefnin fyrst og fremst til
stuðnings jaðarhópum í namibísku
samfélagi.
Þróunarsamvinnu Íslands og
Namibíu mun ljúka í lok næsta
árs, árið 2010. Íslendingar hafa
jafnframt heitið því að standa við
allar skuldbindingar og fyrirheit um
framkvæmd samningsbundinna
verkefna.
ÞRÓUNARSAMVINNU LÝKUR
SÖFNUNARFÉ AFHENT Íslendingar borguðu þriðjunginn af húsinu.
HEILBRIGÐISMÁL „Á sama tíma og
spara þarf verulega í starfsem-
inni, enn eitt árið í röð, er ljóst
að þjónustan mun að öllum líkind-
um skerðast,“ segir í ávarpi sem
Björn Zoëga, forstjóri Landspít-
alans, sem birt var á heimasíðu
spítalans í gær. „Á næstu vikum
mun ég, ásamt framkvæmda-
stjórum og öðrum stjórnendum
spítalans, boða til funda með
starfsmönnum deilda um sparn-
að og hagræðingu,“ segir Björn
og biðlar til starfsmanna um til-
lögur um sparnað. „Þannig getur
hver og einn lagt af mörkum til
að spara í því umhverfi sem hann
þekkir best, með öryggi sjúklinga
að leiðarljósi,“ segir forstjórinn
og sendir starfsmönnum baráttu-
kveðjur. - gar
Forstjóri Landspítalans:
Skert þjónusta á spítal-
anum kynnt fljótlega
Suður-Afríka
Namibía
Angóla
Botsvana
Mósambík
Madagaskar
Sambía
Simbabwe
Suðurhluti Afríku
BJÖRN ZÖEGA
Forstjóri
Landspítalans
ræðir sparnað
á fundum með
starfsfólki.
Skógarhlí› 18 105 Reykjavík Sími 595 1000 Fax 595 1001 Akureyri sími: 461 1099 www.heimsferdir.is
B
irt
m
eð
fy
rir
va
ra
u
m
p
re
nt
vi
llu
r.
H
ei
m
sf
er
ði
r á
sk
ilj
a
sé
r r
ét
t t
il
le
ið
ré
tt
in
g
a
á
sl
ík
u.
A
th
. a
ð
ve
rð
g
et
ur
b
re
ys
t á
n
fy
rir
va
ra
. Kanarí Kr. 149.990 – með „öllu inniföldu“
Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og
2 börn, 2-11 ára, í herbergi á Hotel
Dunas Mirador *** í 14 nætur með “öllu
inniföldu”. Verð m.v. 2 í herbergi með
“öllu inniföldu” kr. 187.900. Aukalega
fyrir einbýli kr. 29.000. Sértilboð 19. des.
HOTEL DUNAS MIRADOR
Ótrúlegt sértilboð!
Frá kr.149.990
Frábær gisting –
aðeins örfá herbergi!
Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum
um jólin á ótrúlegu tilboði. Í boði er m.a. frábært
sértilboð með „öllu inniföldu“ á Hotel Dunas Mirador
Maspalomas, sem er gott hótel í Sonnenland í
Maspalomas sem er frábær kostur fyrir bæði pör og
barnafjölskyldur. Fleiri sértilboð einnig í boði.
Ath. mjög takmarkaður fjöldi sæta og herbergja í
boði. Verð getur hækkað án fyrirvara!
– með „öllu inniföldu“
19. desember
14 nátta jólaferð
Óskað er eftir börnum tveggja ára eða eldri sem þjást af vægri eða meðalsvæsinni bráðri miðeyrnabólgu í
klíníska lyfjarannsókn.
Sprotafyrirtækið Auris ehf. vinnur að þróun lyfs til meðhöndlunar á bráðri miðeyrnabólgu. Rannsóknin hefur fengið ley
Vísindasiðanefndar, Persónuverndar og Lyfjastofnunar. Aðalrannsakandi er Hannes Petersen, sérfræðingur í háls-, nef- og
eyrnalækningum.
Rannsóknarly ð inniheldur virka efnið týmól, sem er þekkt jurtalyf innan læknis- og lyfjafræðinnar fyrir bakteríudrepandi
eiginleika sína. Týmól er algengt innihaldsefni í ýmsum kvef- og hóstalyfjum, munnskoli og húðsmyrslum.
Tilgangur rannsóknarinnar er að leggja mat á verkun, öryggi og þol rannsóknalyfsins við meðferð á börnum, tveggja ára
eða eldri, sem eru með væga eða meðalsvæsna bráða miðeyrnabólgu. Gert er ráð fyrir að hver þátttakandi sem klárar
rannsóknina fái 6 skammta (meðferð) af ly nu y r þriggja daga tímabil. Rannsóknarly ð verður ge ð í eyrnagang í þar
til gerðum eyrnatappa.
Mögulegar aukaverkanir af útvortis notkun týmóls eru m.a. erting (sviði, roði, kláði).Önnur áhætta af þátttöku felst í
mögulegum ófyrirséðum aukaverkunum af notkun rannsóknarlyfsins.
Þetta er í fyrsta skipti sem týmól er ge ð börnum með eyrnabólgu í klínískri lyfjarannsókn. Ly ð hefur áður verið ge ð
heilbrigðum fullorðnum einstaklingum í rannsókn sem fór fram á Íslandi 2008.
Alls er gert ráð fyrir 75 þátttakendum í rannsókninni. Rannsóknin mun fara fram á Landspítala – háskólasjúkrahúsi,
Háls-, nef- og eyrnadeild, Fossvogi, 108 Reykjavík. Þátttakendur koma í þrjár heimsóknir á u.þ.b 8 daga tímabili á
rannsóknarsetur og hitta rannsóknarlækni. Gert er ráð fyrir að skimunarheimsóknin muni taka um 60 til 75 mínútur en
aðrar heimsóknir muni taka um 45 mínútur eða skemur
Ekki verður greitt fyrir þátttöku. Hins vegar verður ferðakostnaður vegna þátttöku greiddur, að hámarki 3000 fyrir hverja
heimsókn.
Þeir foreldrar/forráðamenn barna sem kynnu að hafa áhuga er bent á að leita frekari upplýsinga um rannsóknina á
rannsóknarsetri í síma 664 9901 eða 664 9902.
Tekið skal fram að þeir sem hafa samband við rannsóknarsetur hafa á engan hátt skuldbundið sig
(barnið sitt) til að taka þátt í rannsókninni. Taki barnið þátt, getur foreldri/forráðamaður þess dregið
það út úr rannsókninni hvenær sem er, án þess að gefa sérstaka ástæðu fyrir ákvörðun sinni.
AUR-OM-201
Klínísk lyfjarannsókn
Er barnið þitt
með eyrnabólgu?