Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 26

Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 26
26 5. desember 2009 LAUGARDAGUR UMRÆÐAN Ingrid Kuhlman skrifar um Þjóðfundinn Þegar áramótin nálg-ast horfa margir til baka og rifja upp merka atburði sem gerðust á árinu sem er að líða. Merkasti dagur ársins 2009 er fyrir mér Þjóðfundardagurinn 14. nóvem- ber í Laugardalshöll. Þetta var sögu legur og algjörlega magn- aður dagur sem fyllti mig bjart- sýni og trú á að hlutir geti breyst þegar við snúum bökum saman. Þarna fengu 1.500 full- trúar heillar þjóðar, þekktir og óþekktir, tækifæri til að kynnast viðhorfum hver annarra og koma sjónarmiðum sínum á framfæri um gildi þjóðarinnar og framtíðar sýn. Krafturinn og orkan sem leystist úr læðingi var ótrúleg og nánast áþreifanleg og maður fann einlægan vilja þátt- takenda til að horfa fram á við og finna lausnir í sameiningu. Hugmyndaauðgi var ríkjandi og andrúmsloftið einkenndist af virðingu – virðingu fyrir hvert öðru og virðingu fyrir skoðunum annarra. Gildi þess að fá að ræða hugmyndir, hugsanir og skoðanir er ómetanlegt. Fólk fór með bros á vör inn í framtíðina að fund- inum loknum og ég held að eng- inn hafi farið heim ósnortinn. Sú jákvæðni, bjartsýni og samhugur sem maður fann á svo áþreifan- legan hátt í Laugardalshöllinni hitti mig í hjartastað og var stað- festing á því að þessi þjóð getur hvað sem er. Þátttakendur veltu fyrir sér þeim grunngildum sem þeir vilja leggja til grund- vallar í samfélaginu, hvernig samfélagi þeir vilja vera þátttakendur í og hvernig samfélagi þeir vilja skila til barna sinna. Haldið hefur verið utan um allar þær tæp- lega 30.000 hugmyndir sem komu fram á fund- inum og verða þær aðgengilegar öllum þeim sem áhuga hafa á vef- síðunni www.thjodfundur2009.is. Gagnabankinn, sem er gjöf Þjóð- fundarins til þjóðarinnar, verður án efa verðugt rannsóknarvið- fangsefni næstu ára auk þess sem samtök, vinnustaðir landsins, sveitarfélög, stjórnmálaflokkar og fleiri aðilar geta nýtt sér hann í sinni stefnumótun. Hugmynd- um fundarins verður síðan fylgt eftir á næstu 12 mánuðum með ýmsum verkefnum, uppákomum og fundum. Allir þeir sem tóku þátt í Þjóð- fundinum og komu að honum með einum eða öðrum hætti bera ábygð á að tryggja að það sem kom fram verði ekki aðeins stafir á blaði. Við þurfum öll að tileinka okkur gildin og sýna þau í verki. Velta fyrir okkur hvernig við sýnum heiðarleika, virðingu, rétt- læti og jafnrétti í verki og hafa þau til hliðsjónar við allar þær ákvarðanir sem við tökum. Setj- ast niður í okkar hópi og spyrja okkur: Fyrir hvað viljum við standa sem einstaklingar, fjöl- skylda, vinnustaður, samfélag? Hvernig viljum við hafa hlutina? Framtíðin er á okkar ábyrgð. Höfundur er svæðisstjóri á Þjóðfundinum. Mikilvægasti dagur ársins 2009 UMRÆÐAN Björn S. Lárusson skrifar um upplýsingafulltrúa Nú á tímum er ekkert alvöru fyrirtæki eða stofnun án „upplýsinga- fulltrúa eða almanna- tengils“. Ég set þetta í gæsalappir vegna þess að hlutverk þessara starfs- manna innan fyrirtækja og stofnana virðist vera á reiki og allt annað en tíðkast erlendis. Þessi titill er líka samnefnari fyrir það sem ýmist er kallað upplýsinga- fulltrúi, almannatengill eða blaða- fulltrúi. Til starfa veljast oftast blaðamenn, sjálfmenntaðir álits- gjafar eða þeir sem þekkja vel til í frumskógi stjórnsýslunnar (einka- vinir). Sárafáir eru menntaðir eða hafa umtalsverða reynslu af upplýs- ingamálum og þess vegna hafðir að skotspæni fyrir afglöp og mistök í starfi sem stafa af vanþekkingu. Hér á landi er upplýsingafulltrúa ætlað að vera einskonar blaða maður innan fyrirtækisins og hann er settur hinum megin við borðið til að svara fyrrum kollegum á fjölmiðl- um, skrifa fréttatilkynningar og hóa í fyrrum félaga á fjölmiðlum ef eitthvað mikið liggur við. Þeir raða upp stólum á blaðamannafundum, stilla hljóðnema og sjá um að skjá- varpinn virki sem skyldi. Ef það detta inn fyrirspurnir um einhver mál sem varða starfsemi fyrirtæk- isins og forstjórinn er ekki við, eru svörin yfirleitt út í hött og skaða fyrirtækið. „Það er ekkert hægt að segja um málið á þessu stigi“ er dæmigert svar og þýðir einfaldlega; ég hef ekki hugmynd um hvað þú ert að tala. Upplýsingafulltrúarnir eru upp til hópa óupplýstir um starfsemina eða það sem fer fram innan fyrirtækisins nema það sem þeim hefur verið sagt að segja. Þeir leggja ekkert mat á hvaða upplýsingar er gagnlegt að láta frá sér eða hagsmuna- aðilar eiga heimtingu á og hafa ekkert frumkvæði. Ástæðan er sú að þeir vita yfirleitt ekki hvað er að gerast. Sumir svokallaðir upplýsingafulltrúar verða eins og gúrúar í augum fyr- irtækjarekenda eða innan stjórnsýslunnar enda farið víða í „störfum“ sinum sem þeim hefur verið úthlutað. Þeir hafa valist til starfa vegna þess að þeir eru innvígðir og innmúraðir en fagleg þekking á upplýsingamálum skiptir mun minna máli. Þegar ég hóf störf hjá Bechtel sem byggði álver Alcoa á Reyðar- firði var mér tjáð að ég þyrfti að taka kúrsa í almannatengslum, sam- félagssamskiptum og upplýsinga- málum við viðurkennda háskóla á netinu allan starfstímann á kostn- að fyrirtækisins. Að auki þyrfti ég að fara í höfuðstöðvarnar í San Francisco og kynna mér menningu fyrirtækisins. Ég maldaði í móinn og sagði að ég væri með menntun í viðskiptafræði með markaðsmál sem sérgrein auk mikillar reynslu. Jú, það var gott og blessað „en þið Íslendingar hafið svo undar legar hugmyndir um svona störf að við viljum að þú tileinkir þér viður- kennd vinnubrögð sem tíðkast í flestum löndum“. Mér var ekki ætlað að skrifa fréttatilkynningar eða sjá til þess að hljóðneminn væri í lagi á blaðamannafundum. Mér var ætlað að taka frumkvæði í að koma á framfæri upplýsing- um um alla starfsemina, viðhalda tengslum við alla hagsmunaaðila, hlera samfélagið um hvaða upp- lýsingar mættu að gagni koma og bregðast við ef með þyrfti. Aðal- atriðið væri að samfélagið fengi upplýsingar óumbeðið til að fyr- irbyggja tortryggni og viðhalda góðum samskiptum við hagsmuna- aðila. Meginmarkmið; að láta fram- kvæmdirnar ganga vel fyrir sig í sátt við umhverfi og samfélag. – Og það gerðu þær svo sannarlega. Mér var gert að sitja alla fundi sem vörðuðu framkvæmdirnar og kæmu mér að gagni við upplýs- ingaflæði til samfélagsins. Fyrsta reglan var að segja alltaf sann- leikann. Önnur regla var að segja aldrei; ég get ekkert sagt um málið á þessu stigi – segja heldur; ég skal segja þér allt sem ég get og veit um málið og meira þegar ég fæ meiri upplýsingar. Það kom mér veru- lega á óvart að eitt stærsta verktaka- fyrirtæki í heimi og var heldur ljós- fælið fyrirtæki skyldi vera fúsara að gefa upplýsingar en pínu litlar stofnanir á Íslandi þar sem draga þurfti allt út með töngum. Ástæðan var einföld. Upplýsingafulltrúar þessara stofnana vita minna en ekki neitt um starfsemina eða eru log- andi hræddir um að veita upplýsing- ar um það sem þeir eru að gera. Því meiri leynd, því mikilvægara starf. Það er því undarlegt að enn skuli ráðnir „upplýsingafulltrúar“ í ráðu- neyti, stofnanir og fyrirtæki sem í raun er ekki ætlað að gera neitt sem að gagni getur komið. Blaðamenn, uppgjafa pólitíkusar og besserviss- erar sitja í flestum þessum störfum. Að ekki sé talað um upplýsingafull- trúa sem tóku þátt í hrunadansin- um og sitja enn í bönkum og gjald- þrota fyrirtækjum í eigu bankanna. Þetta er því undarlegra að „hið nýja Ísland“ á að vera upplýsingasam- félag þar sem allt á að vera uppi á borðum. Í þessum efnum hefur ekkert breyst og jafnvel ráðnir óhæfir starfsmenn án auglýsinga í störf sem skipta mestu máli í þróun okkar frá lokuðu samtryggingar- kerfi einkavinavæðingar til nútíma upplýsingasamfélags. Höfundur er viðskiptafræðingur. Undarlegir „upplýsingafulltrúar“ INGRID KUHLMAN BJÖRN S. LÁRUSSON Bose SoundDock fyrir iPod Verð frá: 49.900kr. Canon PowerShot A480 Verð: 25.900kr. EOS 1000D með 8 GB minniskorti og EF-S 18-55mm linsu er betri hugmynd og kostar aðeins 109.900kr. Fáðu fleiri betri hugmyndir að jólagjöfum hjá okkur. Sony Handycam Verð: 69.990kr. My Passport 320GB hýsill Verð: 16.900kr. IdeaPad U350 fartölva Verð: 139.900kr. Verslun Nýherja, Borgartúni 37 Glæsilegir vinningar! Spennandi leikur á betrihugmynd.is netverslun.is
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.