Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 48

Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 48
48 5. desember 2009 LAUGARDAGUR B ókin er viðbragð við færeyska láninu,“ segir Huldar. „Þegar Færey- ingar lánuðu okkur pen- ing þá rifjuðust Fær- eyjar upp fyrir mér. Ég var ekki búinn að hugsa þangað árum saman og eiginlega búinn að gleyma að eyjarnar væru til. Viðbrögð íslensku þjóðarinnar komu mér líka á óvart. Það fór í gang ákveðin Færeyjavæmni og þeir voru allt í einu orðnir okkar eina sanna vinaþjóð. Mér fannst skrítið að upplifa það því ég hafði aldrei komið til Færeyja og ekki einu sinni talað við Færeying. Ég fór að velta Færeyjum fyrir mér. Að maður vissi allt um eyj- arnar en samt ekki neitt. Að þær virt- ust fjarlægar en væru samt bara einn og hálfan tíma í burtu. Þetta allt gerði mig forvitinn og ég fékk eyjarnar hálf- partinn á heilann. Ákvað svo að skella mér.“ Eins og gallalausir Íslendingar Fyrst lýsti Huldar ferðum sínum um Ísland á gömlum jeppa í bókinni Góðir Íslendingar sem kom út 1998. Svo flæktist hann yfir fjöll og firnindi meðfram Kínamúrnum í bókinni Múr- inn í Kína, sem kom út 2004. Færeysk- ur dansur lýsir mánaðarlöngu flandri um stærstu eyjarnar af þeim átján sem saman mynda Færeyjar. „Í öllum þessum þremur bókum hef ég gert í því að vera grænn þegar ég fer af stað. Að vita ekki mikið um stað- ina sem ég er að heimsækja. Mér finnst skemmtilegra að mæta sem venjulegur maður og mig grunar að maður sé nær lesandanum þannig,“ segir Huldar. Þú hlýtur samt að hafa haft einhverjar væntingar til Færeyja. „Jú, jú, maður hafði séð sjarmerandi ljósmyndir af trillum og svona. Eyj- arnar voru miklu minni ég átti von á. Fyrstu viðbrögðin þegar ég kom til Þórshafnar voru að ég væri kominn til Hafnarfjarðar.“ Það má lesa í bókinni að þú kunnir vel við Færeyinga. „Já, þeir eru stundum eins og galla- lausir Íslendingar. Þeir eru hægari en við og lifa meira í núinu. Minna stress- aðir. Það er reyndar fyndið hvernig þeir horfa á okkur. Það er sagt í Fær- eyjum að það þurfi tíu gyðinga til að plata einn Íslending í fjármálum en einn gyðing til að plata tíu Færeyinga. Þetta segja þeir meira að segja ennþá. Það er rasismi í þessu kommenti en það sýnir samt hvaða augum þeir líta á okkur. Sérstaklega líta þeir upp til okkar í sjálfstæðismálunum af því að við kýldum á það en þeir hafa ekki gert það ennþá. Danir fara mjög mikið og mjög auðveldlega í taugarnar á þeim, kannski skiljanlega, en Íslendingarn- ir ekki. Þeir vilja meina að við séum ennþá voða klárir þrátt fyrir hrunið. Við lentum bara í því. Þeir lentu nátt- úrlega sjálfir í svipuðu á sínum tíma.“ Glottandi tuddar Er færeyski lífsstíllinn eitthvað sem við ættum að tileinka okkur? „Við getum lært eitt og annað af þeim, já. Daglega lífið er fallegt hjá þeim. Miklu afslappaðra og rembings- lausara. Þegar maður horfði heim frá Færeyjum fannst manni Íslendingarn- ir svolítið gráðugir og grimmir. Íslend- ingar glotta mun meira en Færeyingar. Þeir eru grunlausari og vænta einskis ills á meðan við erum með svartan húmor og getum verið tuddar.“ Höfum við breyst eitthvað eftir bankahrunið? Færeyingar glotta minna en við Fimm árum eftir að hann flæktist meðfram Kínamúrnum birtist Huldar Breiðfjörð nú með ferðabókina Færeyskur dansur. Huldar sagði Dr. Gunna að Færeyingar litu enn upp til Íslendinga og teldu þá afburðamenn í viðskiptum. ÞRÁ EFTIR SAMHENGI Huldar Breiðfjörð segir að hann hafi haft Færeyjar á heilanum áður en hann skellti sér þangað. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA „Ég fer í Kópavog á hverjum degi og syndi í sundlauginni. Þetta er besta sundlaug á landinu. Maður nær að tengja í ræturnar. Ég bjó þarna í gegnum allan grunnskólann. Bjó á Nýbýlavegi og fór í Digranesskóla. Kópavogur er bara staðurinn. Ég á eftir að flytja þangað aftur. Mér er sagt að þeir sem alist upp í Kópavogi og flytji í burtu komi alltaf til baka. Mér þótti hræðilegt að flytja á sínum tíma, en það var ágætt að sjá heiminn. Fara alla leið til Reykjavíkur. Ég skil samt ekki alveg hvað er í gangi þarna í Smáralindinni. Mér finnst það ekki hafa tekist mjög vel. En „Kópavogur classic“ – austurbærinn og vesturbærinn – er orðinn að einhvers konar Kóphattan nú þegar öll þessi nýju úthverfi eru risin. Sundlaugin heldur þessu bæjarfélagi í topp þremur á Íslandi. Ekki skemmir fyrir að Blikarnir eru orðnir bikarmeistarar. Arnar Grétarsson, gamli bekkjarfélagi minn, náði loksins að lyfta bikar. Það er búið að leyfa hundahald í bænum. Manni fannst það alltaf svo ómanneskju- legt að hundahald væri bannað. Svo er Gunnsteinn, gamli smíðakennarinn minn, orðinn bæjarstjóri, þannig að það mælir allt með því að ég flytji í Kópavog- inn bara strax á morgun!“ HULDAR UM KÓPHATTAN „Tja … við erum ennþá stödd í miðj- unni á þessu öllu svo það er erfitt að sjá það. Mér finnst þó meiri samkennd á meðal fólks og meiri samstaða. Fólk er meira boðið og búið. Ég vona að þetta sé breyting til frambúðar. Ég kann þó alveg ágætlega við geggjunina í Íslend- ingum þó að hún hafi reyndar keyrt úr hófi fram í þetta skiptið.“ Ertu búinn að ákveða hverjum hrunið er um að kenna? Hvern myndirðu velja ef þú værir í rannsóknarnefndinni? „Úff, það eru svo margir sem koma til greina. Nei. Maður flengist fram og til baka í þessari umræðu og nær aldrei utan um hana. Maður er ennþá að reyna að koma sér upp skoðun á þessu.“ Ertu ekkert farinn að loka bara á þetta allt saman? „Jú smá, en samt upplifir maður það þannig að maður megi ekki loka á þetta. Að það sé ábyrgðarhlutverk að láta sig hafa það og hlusta á allan hel- vítis Spegilinn til enda. Að vera með- vitaður.“ Hefur eitthvað breyst í þínu lífi? „Í sjálfu sér ekki. Ég er enn að vinna á auglýsingastofu og að kenna. Það er helst að aðgangur manns að útlöndum hafi breyst. Ég fór til dæmis til Dan- merkur um þarsíðustu helgi og var að drekka kaffibolla á 1.200 kall og borða pylsu á 600 kall. Ég hef aldrei verið eins feginn að komast heim í íslenskt verðlag!“ Svo ég spyrji þig nú allra kreppu- klisjuspurninganna: Hver er leiðin út úr kreppunni? „Er það ekki bara að halda áfram að lifa og láta tímann líða? Að halda áfram að vakna á morgnana hlýtur að vera eina leiðin.“ Annað en ævintýraþrá sem togar Allnokkrir höfundar sérhæfa sig í ferðasögum, en Huldar er líklega sá eini hér á landi. „Þetta æxlaðist svona og ég er bara glaður og ánægður með það. Það detta alltaf einhverjar ferðasögur inn, en það er furðulega lítið af þeim miðað við hvað Íslendingar ferðast mikið og miðað við að annan hvern Íslending dreymir um að skrifa. Ég var búinn að ferðast svolítið áður en ég skrifaði Góðir Íslendingar. Sú bók og þessi nýja eru tengdar að því leyti að í þeim er þrá eftir samhengi, þrá eftir að setja sjálfan sig í samhengi. Mér finnst íslenska þjóðin oft vera samhengis- laus. Þó hún eigi að heita ein af Norð- urlöndunum upplifi ég okkur ekki sér- staklega mikið þannig. Ég var búinn að flækjast um allan heim áður en ég ferðaðist um Ísland og upplifði svipaða hluti með Færeyjar, sem er næsta land við okkur. Ég var búinn að fara út um allt en ekki þangað.“ Hefur þú augastað á einhverjum stað fyrir næstu bók? „Nei, en ég er hrifinn af úthverfum og frekar flötum stöðum. Ég er ekki hrifinn af ævintýrastöðum eins og að fara til Kúbu, Afganistan eða Afríku. Það er annað sem togar í mig en ævin- týraþrá þó að Kínabókin hafi verið hálfgert rugl. Það var mikil þrekraun að ganga yfir fjöll í þrjá mánuði. Ég vissi bara ekkert hvað ég var að fara út í þegar ég lagði af stað.“ Lestu mikið af ferðabókum sjálfur? „Nánast aldrei, nei. Ég hef til dæmis aldrei lesið bók eftir Bill Bryson. Ég tek eina og eina. Ég er hrifinn af bókum Pauls Theroux. Hann er alltaf svo skemmtilega pirraður og þreyttur á þessu og ég hef gaman af því.“ Fókus á Flateyri Hversu sannleikanum samkvæmar eru bækurnar þínar? „Ég vil að þær renni vel og að atburðarásin ráði. Ég vinn þetta upp úr dagbókum og færi kannski aðeins til upp á flæðið. Ég er aðeins búinn að fikta í þessu enda finnst mér skemmti- legt að hafa lesandann stundum á mörkum staðreynda og skáldskapar. Frá og með fyrsta degi þegar ég er að skrifa bækurnar þá byrja ég daginn á að skrifa í dagbókina. Það stillir mann af og maður fer fókuseraður út úr húsi í leit að efni og stöðugt að hugsa.“ Hvar kláraðir þú svo bókina? „Ég skrifaði hana á Flateyri. Eftir Færeyjaferðina fór ég vestur og kom mér fyrir í Önundarfirði. Það var hinn fullkomni fókuspunktur. Fallegur fjörður sem er rammaður inn af fjöll- unum. Það er búið að dynja svo mikið á þessum stað að það er bara æðrulaust fólk eftir. Það eru tæplega 200 eftir af 450, skemmtilegt og sterkt fólk. Fær- eyingar gáfu Flateyri leikskólann eftir flóðin svo Flateyringum þykir vænt um Færeyinga.“ Gætirðu hugsað þér að búa í Fær- eyjum eða á Flateyri til frambúðar? „Nei, ekki eins og er. Það kemur kannski að því síðar. Maður þyrfti að vera með fjölskyldu með sér. Það er gott að vera þarna hluta úr ári, en koma svo aftur í bæinn og halda áfram að rugla.“ Það er sagt í Færeyjum að það þurfi tíu gyðinga til að plata einn Ís- lending í fjármálum en einn gyðing til að plata tíu Færey- inga. Þeir segja þetta meira að segja enn- þá. SUNDLAUGIN Í KÓPHATTAN
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.