Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 54

Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 54
54 5. desember 2009 LAUGARDAGUR Þ egar Þórunn var á sjötta ári (1945) var farið að ræða á heimilinu að fjölskyldan flytt- ist til Englands, en Jóhann, faðir Þórunnar hafði mikinn áhuga á að mennta sig frekar í tónlist, einkum hljómsveitarstjórn. Jafn- framt var rætt um að Þórunn héldi tónlist- arnámi sínu áfram í Lundúnum á meðan fjölskyldan byggi þar. Þessi Englandsför var því hugsuð fyrir þau bæði. Hvorki Jóhann né Klöru grunaði þá að borgin yrði heimili þeirra næstu áratugina enda var í fyrstu aðeins ætlunin að vera eitt ár í burtu. Það var þó ekki hlaupið að því að fá land- vistarleyfi. Umsókn Jóhanns var synj- að af yfirvöldum enda var matarskortur mikill í borginni og húsnæðismál í ólestri. Jóhann lét fylgja með landvistarumsókn- inni til breska innanríkisráðuneytisins að kornung dóttir hans væri á leið í tónlist- arnám við Royal Academy of Music. Þá óskaði breska innanríkisráðuneytið eftir skriflegri staðfestingu frá skólanum þess efnis. Þegar Jóhann fór á fund rektors var honum tjáð að það væri algjörlega óraun- hæft að sjö ára barn ætti erindi í slíkan skóla. Rektorinn spurði þó hvort til væri hljóðupptaka með píanóleik barnsins. Þá mundi Jóhann eftir hljóðupptökunni, sem var í vörslu útvarpsins, með Beethoven- sónötunni. Hann lét senda sér hana til Eng- lands og eftir að skólastjórinn hafði hlýtt á upptökuna samþykkti hann að barnið fengi inngöngu í yngri deild skólans. Þórunn var með þessu orðin yngsti nemandinn sem tekinn hafði verið inn í Royal Academy of Music, aðeins sjö ára gömul, en yngri deildin var ætluð tólf ára nemendum. Basl Þórunni finnst óskemmtilegt að hugsa til þessara fyrstu ára fjölskyldunnar í stór- borginni. Kuldi og raki, slæm húsakynni og endalausir flutningar eru henni ofar- lega í huga. „Mér var alltaf kalt.“ Klöru, móður Þórunnar, fannst eins og hún væri að fara hundrað ár aftur í tímann að koma til Lundúna. Það voru engir skápar í fyrstu íbúðinni, sem fjölskyldan bjó í, og það var ekki þægilegt fyrir stóra fjölskyldu, auk þess sem hún var ísköld. Síðan þurftu þau að sætta sig við matarskömmtun. Fiskur og grænmeti var þó ekki skammtað og nýtti fjölskyldan sér það þótt fiskmetið væri dýrt. Hins vegar fengu þau næga mjólk, einn pott fyrir hvert barn, og var það jafn- vel meira heldur en fékkst í Reykjavík á þeim tíma. Kjötmáltíð fékkst einu sinni í viku, en lítið var til af smjöri og sykri. Þá var brauð af skornum skammti. „Við bjuggum fyrst í Gloucester Road í Kensington, fluttum okkur fljótlega í aðra íbúð í því hverfi og síðan vorum við á hót- eli í skamman tíma. Við vorum stöðugt að flytja á milli íbúða, bjuggum einnig um tíma í Earls Court. Fjölskyldan var eins og sígaunar á endalausum þvælingi um borgina.“ „Fyrstu árin eftir að ég flutti út sótti ég ekki nám í venjulegum breskum barna- skólum heldur kenndi pabbi mér heima. Ég fékk því íslenska, bóklega menntun þar til ég varð ellefu ára. Pabbi fékk allar námsbækur að heiman til að ég fengi sömu menntun og jafnaldrar mínir á Íslandi. Hann hafði töluverðan metnað til þess að ég héldi íslenskunni góðri og við töluðum alltaf íslensku á heimilinu. Á meðal þess sem pabbi kenndi mér var íslenska, landa- fræði, kristinfræði, dýrafræði og stærð- fræði. Drjúgur tími fór síðan í æfing- ar á píanóið. Yfirleitt æfði ég mig í þrjár til fimm klukkustundir á dag, alla daga vikunnar.“ Tónleikaferðir til Íslands Til að fjölskylda Þórunnar gæti framfleytt sér í Lundúnum varð hún að hafa einhverj- ar tekjur og þær komu frá Íslandi. „Mín fyrsta tónleikaferð til Íslands var árið 1947 þegar ég var átta ára gömul. Þetta var skelfileg flugferð með einni fyrstu farþegaflugvélinni, sem Lofleiðir keyptu, Douglas DC-4 Skymaster. Hún tók 38 far- þega og 7 voru í áhöfninni. Það var ískalt um borð í vélinni og ferðin tók margar klukkustundir.“ Fyrstu tónleikarnir áttu að fara fram í Trípólíbíói. Þar flutti Þórunn Mozart, Chopin og Haydn en einnig verk sem hún hafði samið sjálf þegar hún var sex ára. Þessi ferð var frekar stutt en síðar voru þau feðginin oft mánuð í senn á Íslandi. Þá ferðaðist Þórunn um landið og hélt tónleika. Blöðin slógu því iðulega upp þegar Þór- unn litla, eða „undrabarnið“, eins og hún var kölluð, og faðir hennar komu til lands- ins og margir sóttust eftir því að fá hana til að vera með tónleika. Almennur áhugi var á að heyra þetta íslenska undrabarn, sem stundaði nám í enskum tónlistarháskóla, leika. Oft var farið til Akureyrar, Húsavíkur, Dalvíkur, Siglufjarðar, Akraness, Selfoss, Vestmannaeyja og einnig vestur á Ísafjörð. „Við fórum þó aldrei á Austfirði. Ég man eftir því í eitt skipti að við vorum í Vest- mannaeyjum þar sem ég hafði verið með tónleika. Daginn eftir átti ég að spila á Akranesi og við áttum að fljúga til Reykja- víkur en þar sem ekki var flogið vegna veðurs sigldum við með litlum mjólkurbát yfir til Þorlákshafnar og þaðan var keyrt á Skagann. Mér leið ekki vel, var eigin- lega fárveik og kastaði upp. Í bátnum var stæk lykt af bensíni og mjólk sem bland- aðist saman og það var hræðilegt. Þegar ég byrjaði að spila á tónleikunum fannst mér eins og nóturnar gengju í bylgjum. Ég sagði pabba frá því hvernig mér leið og hann sagði að ég mætti engum segja frá því. Það var auðvitað ekki gott til afspurn- ar hve strangt tónleikaprógramm hafði verið sett upp fyrir barnið. En þessar tónleikaferðir héldu fjölskyldunni uppi.“ Erfiðleikar heima Hinir sífelldu flutningar fjölskyldunnar á milli staða fyrstu árin í Lundúnum auð- velduðu Þórunni ekki lífið. Enn þungbær- ara þótti henni þó hversu vínhneigður faðir hennar var. „Pabbi drakk allt of mikið og þurfti ekki nema örlítinn sopa af áfengi, að mér fannst, til að það yrði á honum per- sónuleikabreyting. Hann minnti mig stund- um á sögupersónuna Dr. Jekyll and Mr. Hyde en slíkar breytingar verða oft á fólki sem á við áfengisvanda að glíma.“ Þórunn hafði jafnframt áhyggjur af því hversu illa faðir hennar fór með fé fjöl- skyldunnar og hversu ótrúlega óskipu- lagður hann var í þeim málum. Enda- lausir erfiðleikar urðu þegar borga átti húsaleiguna um hver mánaðamót. „Pabbi var að öðru leyti vænn maður, góðhjartaður og vildi allt fyrir alla gera. Auk þess var hann mjög hæfileikaríkur á tónlistarsviðinu. Það fóru bara alltaf allir hlutir í bölvaða vitleysu hjá honum. Það sem fór með hann var þessi áfengisdrykkja og kæruleysi í peningamálum. Þetta ástand á heimilinu gerði mig mjög áhyggjufulla og ég hugsaði oft með mér: Af hverju getum við ekki bara átt venjulegt og heilbrigt fjölskyldulíf?“ Öryggisleysið, sem áfengisdrykkja Jóhanns olli Þórunni á barnsaldri, hefur mótað hana alla tíð og stundum segist hún fá óþarfa áhyggjur sem hún telur að séu afleiðingar frá æskunni. Öryggi, traust og gott skipulag á hlutunum hafa alla tíð síðan skipt hana miklu máli. „Einnig fannst mér óþægilegt að svo virtist sem foreldrar mínir teldu mig eldri en ég var í raun því alveg frá sjö, átta ára aldri var ég þátttakandi í foreldratali, vandamál foreldra minna urðu einnig mín vandamál. Peningamál og áhyggjur af hús- næðismálum voru rædd við mig eins og ég væri fullorðin. Stundum þótti mér nóg um. Það var eins og við værum þrjú að reka heimilið. Eflaust var það einmitt þannig því að ég fékk töluverðar tekjur af tónleik- unum mínum sem allar runnu til reksturs heimilisins.“ Um tvítugt kynntist Þórunn eiginmanni sínum Vladimír Ashkenazy, sem var líkt og hún afar efnilegur píanóleikari. Þau gift- ust og eignuðust fimm börn. Þórunn lagði píanóleik á hilluna og gerðist helsti tón- listarráðgjafi eiginmanns síns. Hann er nú talinn einn besti og virtasti píanóleikari heims. Skútusiglingar og St. Lucia „Sumarið sem ég varð fimmtug, árið 1989, sigldum við í tíu daga og fórum þá til Kýpur sem er nokkuð löng sigling en var mjög ánægjuleg ferð. Við leigðum skútu í þrjú sumur og þar sem okkur og börnun- um okkar líkaði þessi ferðaaðferð svo vel ákváðum við árið 1992 að fjárfesta í 70 feta skútu sem var undir breskum fána og hét Aquarius. Stundum bjóða þau hjón gestum með sér í siglingu enda er skútan rúmgóð. Þar eru tvær góðar káetur með litlum baðherbergj- um, stofa og eldhús auk rýmis fyrir áhöfn. Bæði fjölskyldan og vinir þeirra hafa siglt með þeim. ... Skútunni hafa þau siglt talsvert í Eyja- hafinu og í Miðjarðarhafinu en einnig við St. Lucia í Karíbahafi, þar sem þau hafa átt frístundahús í fimm ár. Húsið létu þau smíða sérstaklega fyrir sig en það stendur hátt uppi í fjalli og frá því er afar fallegt útsýni. Frá húsinu og niður í sundlaugar- garðinn eru 96 þrep svo að það er talsverð líkamsrækt að ganga það. Undanfarin jól hafa þau hjón farið til St. Lucia og dvalið þar í sex vikur. „Við njótum þess mjög að slaka þar á og endurnýja okkur fyrir næsta áhlaup. ... Sasha, yngsta dóttir okkar, gifti sig í St. Lucia og þá kom öll fjölskyldan þar saman. Það var mjög skemmtilegt þótt mér finn- ist stundum vera fullmikil læti í kring- um okkur þegar svona margt fólk kemur saman. Við eigum sjö barnabörn og þetta er því orðinn stór hópur. Það var mikið líf og fjör hjá okkur og brúðkaupsveislan mjög vel heppnuð á þessum fallega stað.“ Tónleikaferðir til Íslands héldu fjöl- skyldunni uppi Þórunn Ashkenazy var undrabarn sem einungis sjö ára gömul hóf nám í píanóleik við konunglegu tónlistarakademíuna í Lund- únum. Í nýútkominni bók eftir Elínu Albertsdóttur er átakamik- illi æsku hennar lýst og viðburðaríkri ævi en Þórunn hefur farið víða um heim ásamt eiginmanni sínum Vladimír Ashkenazy píanóleikara. Fréttablaðið birtir hér kafla úr bókinni. UNDRABARNIÐ Þórunn var þaulvön að koma fram þegar á unga aldri. Á myndinni er hún átta ára. HEIMSKONA Þórunn og eiginmaður hennar hafa ferðast víða og eiga sér athvarf í mörgum löndum. VILLUR VÍÐA UM HEIM Hér sést í hluta af villu þeirra hjóna á eyjunni St.Lucia í Karíbahafi, en þau eiga húseignir í nokkrum löndum, meðal annars fornan kastala í Frakklandi. ÞÓRUNN LITLA MEÐ FÖÐUR SÍNUM JÓHANNI TRYGGVASYNI Feðginin standa á tröppum Royal Academy of Music í Lundúnum. Þórunn er yngsti nemandi sem hefur útskrifast úr skólanum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.