Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 56

Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 56
56 5. desember 2009 LAUGARDAGUR Í slenska tónlistarútrásin heldur áfram eins og ekkert hafi í skor- ist. Hljómsveitin múm hefur verið að fylgja eftir nýjustu plötunni sinni, Sing along to songs you don‘t know, síðan í ágúst og spilað á hátt í áttatíu tónleikum fyrir alls konar fólk á alls konar stöðum. Bandið hefur ferðast þvers og kruss um Evrópu, til Japans og Ísraels og hringinn í kringum Bandaríkin og Kanada. Heimkomutón- leikar múm fara fram föstudagskvöldið 18. desember í Iðnó og verða fyrstu tón- leikar hljómsveitarinnar hérlendis síðan 2004, ef framkoma sveitarinnar á Air- waves 2007 er undanskilin. Ýmislegt skemmtilegt getur gerst á vegum úti. Hér eru nokkur sýnishorn frá heimstúr múm. Örvar Þóreyjarson Smárason sér um að útskýra myndirnar. múm flengist um heiminn Slitnir gítarstrengir, tómar bjórflöskur, kaldar rútur, óvæntar uppákomur, sólgleraugu og táfýlusokkar. Þetta er allt hluti af lífi tónlistarmannsins á vegum úti. Í Lúxemborg „Eiríkur Orri er sérstaklega hress maður og gerir allt til þess að létta lundina og stytta stundirnar á ferðalögum okkar. Á þessari mynd er hann að sýna vel þekkta stellingu í svörtum grunnbúningi.“ MYND/SAM HISCOX Katowice í Póllandi „Benni Hemm Hemm hitaði upp fyrir okkur á stórum hluta Evróputúrsins og eins og lesa má úr svipnum á Gunnari er hann ljúfur ferðafélagi. Það er alltaf gaman fyrir okkur að spila í Póllandi, enda eru landsmenn mjög hlýir og opnir og kunna vel að meta svona hálf-ringlaða popp- tónlist.“ MYND/SIGURLAUG GÍSLADÓTTIR Brussel „Hljómsveitin múm á sviði.“ MYND/SAM HISCOX Winterthur í Sviss „Eftir miðnætti að loknum tónleikum okkar í Winterthur var ákveðið að Hildur ætti afmæli. Henni voru færðar þessar litríku makkarónur og fyrir ein- skæra tilviljun var hún í kjól í stíl við kökurnar. Vakti það kátínu.“ MYND/SAM HISCOX Eyjan Vlieland við norður- strönd Hol- lands „Daginn eftir makkarónu- afmælið flugum við svo beint til Hollands þar sem okkur var smalað í ferju á leið á tónlistarhátíðina Great Wide Open sem fer fram á huggulegri eyju þarna fyrir norðan. Skyndilega brast á aftakaveður og áður en við spil- uðum var okkur tilkynnt að báturinn sem átti að fara með okkur til baka væri ekki byggður fyrir svoleiðis sjó- ferðir. Þar sem samkvæmt dagatalinu var ennþá afmælið hennar Hildar var ákveðið að halda upp á að við værum veðurteppt með því að taka þátt í skemmtilegum hollenskum leik, sem gengur út á að negla tíu tommu nagla í viðardrumb. Eftir langa keppni stóð Eiríkur uppi sem sigurvegari og var hann hylltur sem slíkur.“ MYND/SAM HISCOX París „Við tókum upp nokkur lög fyrir „Take-Away-Show“ seríuna sem vakið hafa svo mikla athygli á hinu franska Blogotheque. Hér erum við í strætó, nýbúinn að syngja lagið „If I Were a Fish“ fyrir farþegana, sem þó virtust varla taka eftir okkur.“ MYND/SAM HISCOX Aftur París „Við enduðum upptökurnar fyrir Blogotheque í þessum útsýnisskála í Buttes Chaumont-garðinum með útsýni yfir borgina.“ MYND/SAM HISCOX Tókýó „Japansferðin var skemmtileg eins og áður og virðist landið liggja vel fyrir okkur. Á þessari mynd eru Róbert, Samuli, Hildur, Gunnar og Sigurlaug að skoða sig um í almenningsgarði.“ MYND/EIRÍKUR ORRI ÓLAFSSON New York „Síðan í ágúst höfum við að mestu leyti búið í rútu. Hér erum við fyrir utan heimili okkar, sem að þessu sinni er lagt fyrir utan tónleika- staðinn í New York.“ MYND/ANGEL CEBALLOS Swift Current í Kanada „Við fengum einn frídag allan Norður-Ameríkutúrinn og eyddum honum í smábæ í Saskatchewan-fylki í Kanada. Það var einmitt hrekkjavaka þetta kvöldið, en fátt í boði í þessum bæ nema sýning á Rocky Horror Picture Show. Við náðum ekki að safna saman nægilega mikilli orku til að fara, en Róbert og Sindri úr Sin Fang Bous létu þó ekki sitt eftir liggja og klæddust þessum fallegu kjólum.“ MYND/SAM HISCOX Seattle „Við fórum í nokkrar útvarpsupp- tökur á meðan á ferðalaginu stóð. Hér erum við í útvarpstúdíói KEXP í Seattle.“ MYND/SAM HISCOX Portland „Frítími getur verið af skornum skammti á hljómleikaferðalögum og því mikilvægt að nýta tímann vel. Hér erum við strákarnir komnir með bæjarleyfi og á leiðinni í átt að miðborg Portland í Oregon. Eftirvænt- ingin leynir sér ekki.“ MYND/EIRÍKUR ORRI ÓLAFSSON
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.