Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 108
76 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
timamot@frettabladid.is
RÚNAR JÚLÍUSSON
TÓNLISTARMAÐUR (1945-2008)
ANDAÐIST ÞENNAN DAG.
„Það þarf fólk eins og þig
fyrir fólk eins og mig.“
Rúnar var meðal afkasta-
mestu tónlistarmanna lands-
ins. Hann vakti fyrst athygli
með hljómsveitinni Hljómum
í Keflavík árið 1963 og var æ
síðan áberandi í útgáfu og
tónleikahaldi.
MERKISATBURÐIR
1492 Kristófer Kólumbus stígur
fyrstur Evrópumanna á
land á Hispaníólu.
1796 Í Reykjavíkurskóla er
frumsýnt leikritið Slaður
og trúgirni eftir Sigurð
Pétursson. Síðar fékk það
nafnið Hrólfur.
1848 Gullæðið rennur á í Kali-
forníu er forseti Bandaríkj-
anna, James K. Polk, stað-
festir að mikið magn gulls
hafi fundist þar.
1932 Lyfjafræðingafélag Íslands
er stofnað.
1945 Sveit fimm sprengjuflug-
véla á vegum bandaríka
flotans týnist í Bermúda-
þríhyrningnum.
1968 Jarðskjálfti af stærðinni 6
stig finnst í Reykjavík og
er sá snarpasti frá 1929.
Írar lýstu yfir stofnun
írska fríríkisins þennan
dag árið 1922. Írland var
þó áfram hluti breska
samveldisins eins og
önnur sjálfstjórnarríki
sem tilheyrðu því.
England hafði stjórnað
Írlandi frá því á 12. öld.
Öldum saman reyndu
írskir kaþólikkar að brjót-
ast undan veldi þeirra en
var haldið niðri. Hreyfing
sem barðist fyrir heima-
stjórn Írlands hóf upp-
reisn í kringum aldamótin 1900 sem einnig var
barin niður. Írski lýðveldisherinn, IRA, hóf í ár-
anna rás skæruhernað gegn breska hernum og
þar kom að lýst var yfir friðarsáttmála. Árið 1922
var svo skrifað undir
samning þar sem Írar
fengu sjálfsstjórn yfir
suðurhluta landsins
en sex nyrstu sýsl-
ur landsins voru enn
undir stjórn Bret-
lands.
Borgarastyrjöld
braust út áður en lýst
var yfir stofnun írska
fríríkisins sem endaði
með sigri sjálfstæðis-
sinna. Írska þjóðin
tók upp stjórnarskrá
árið 1937 og lýsti því yfir að Írland væri fullvalda
og sjálfstætt ríki. Írska fríríkið tók upp nafnið Ír-
land, Eire, og árið 1949 var nafn írska lýðveldis-
ins tekið upp.
ÞETTA GERÐIST: 5. DESEMBER 1922
Írar stofnuðu fríríki
„Þegar við vorum að byrja hér í Garð-
heimum lögðum við áherslu á að fá fólk til
að líta á garðinn sinn sem hluta af heimil-
inu, raunverulega eins og aðra stofu. Það
hefur gerst. Fólk borðar í auknum mæli
úti á góðviðrisdögum á sumrin og notar
garðana til afslöppunar,“ segir Gísli Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri Garðheima,
þegar hann er beðinn að rifja lítillega
upp þróun verslunarinnar í tilefni af tíu
ára afmæli hennar.
Eigendurnir hafa verið þeir sömu frá
upphafi. „Þetta er fjölskyldufyrirtæki,“
segir Gísli. Við Jónína S. Lárusdóttir,
konan mín, höfum unnið hér frá byrjun
og börn okkar fjögur hafa verið að koma
meira og meira inn í dæmið. Við vonumst
til að þau taki við þessu þegar tímar líða.
Sömuleiðis lykilstarfsmenn sem hafa
verið með okkur gegnum tíðina.“
Garðheimar voru sem sagt opnaðir
í Mjóddinni 2. desember 1999. „Hérna
voru bara móar áður og brúin við Staldrið
var ekki komin,“ rifjar Gísli upp. Fyrir-
tækið Gróðurvörur sem Garðheimar
grundvallast á er þó eldra. „Við keyptum
árið 1991 verslun Sölufélags garðyrkju-
manna á Smiðjuvegi af bændum og þá
stofnuðum við fyrirtækið Gróðurvörur.
Það er heildsöluhlutinn sem almenning-
ur þekkir minna en þar erum við að selja
allt frá fræjum upp í stórar garðyrkju-
stöðvar með öllum tæknibúnaði. Þegar
við keyptum Sölufélagið fórum við strax
að skoða Gardencenter erlendis og gera
plön. Garðheimar var fyrsta verslunin
sem byggð var með því fyrirkomulagi
hér á höfuðborgarsvæðinu því Blómaval
í Sigtúni var upphaflega garðyrkjustöð
sem óx í að verða sölustaður. Nú erum
við nýbúin að opna vefverslunina www.
gardheimar.is og hún mun halda áfram
að þróast á næsta ári.“
Spurður hvort Garðheimar séu með
eigin ræktun svarar Gísli. „Nei, við selj-
um bændum bæði fræ og innfluttar smá-
plöntur og kaupum frá þeim fullþrosk-
aðar afurðir til baka. Erum bæði með ís-
lenskar og erlendar vörur því við flytjum
líka mjög mikið inn.“ Hann segir fyrir-
hugað að opna kaffihús á efri hæðinni í
vor. „Þar er fullkomin aðstaða fyrir nám-
skeið og sýnikennslu og á því sviði erum
við með ýmsar nýjungar á döfinni,“ nefn-
ir hann og segir fræðslu ávallt hafa verið
hluta af starfsemi Garðheima.
Inntur eftir afmælishaldinu svarar
Gísli: „Við höfum alltaf styrkt góðgerða-
samtök og rétt áður en þú hringdir vorum
við að færa Hjálparstarfi kirkjunnar,
Rauða krossinum og Mæðrastyrksnefnd
fimm hundruð þúsund í tilefni afmælis-
ins. Þau eru með sameiginlega söfnun
fyrir þessi jól.
Svo gefum við 20 prósenta afslátt af
öllum vörum verslunarinnar í tvo daga
nú um helgina því fólk hefur verið dug-
legt að koma til okkar frá fyrstu stundu
og fyrir það viljum við þakka. Svo er
gaman að segja frá því að viðskiptavin-
um okkar hefur fjölgað á þessu ári frá
því í fyrra sem sýnir bara að þrátt fyrir
efnahaginn hugsar fólk meira um að gera
hlýlegt í kringum sig og sína nánustu.“
gun@frettabladid.is
GARÐHEIMAR: TÍU ÁRA GRÓÐURMIÐSTÖÐ Í MJÓDDINNI Í REYKJAVÍK
Hérna voru bara móar áður
JÓNÍNA OG GÍSLI „Viðskiptavinum okkar hefur fjölgað á þessu ári frá því í fyrra, sem sýnir bara að þrátt fyrir efnahaginn hugsar fólk meira um að
gera hlýlegt í kringum sig og sína nánustu.“ FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Veitingastaðurinn Basil &
Lime á Klapparstíg 38 gefur
vegfarendum kost á að kaupa
sér súpu og brauð frá klukk-
an tólf til tvö á laugardög-
um fram að jólum. Hráefnið
í súpuna er gefið og öll vinna
einnig en andvirðið renn-
ur beint í neyðarsjóð ABC
barnahjálparinnar.
Súpan er seld í upphituðu
tjaldi við veitingastaðinn og
þetta er annað árið sem Basil
& Lime styrkir ABC barna-
hjálp á þennan hátt.
Forsvarsmenn ABC á Ís-
landi hvetja alla sem eiga
leið um miðbæinn á laugar-
dögum til að staldra við og fá
sér ljúffenga súpu og styrkja
gott málefni. - gun
Súpa fyrir ABC
Efnt verður til finnskrar
menningarhátíðar fyrir alla
fjölskylduna í Norræna hús-
inu í dag milli klukkan 12
og 17. Fjölbreytt atriði eru
á dagskránni, tónlist, letka-
jenkka-dans, upplestur og
kökubasar, svo og kynningu
á finnskri menningu, hönnun
og arkitektúr. Einnig námi í
finnsku við HÍ. Einnig verð-
ur jóladagatal Norræna
hússins á sínum tíma klukk-
an 12.34.
Kynntar verða bækur um
Finnland og eftir finnska rit-
höfunda, meðal annars lesið
úr nýjum bókum Väinö Linna
og Tapio Koivukari, Óþekkt-
ur hermaður og Yfir hafið og
í steininn. Sýning verður á
munum tengdum Múmínálf-
unum, upplestur úr bókinni
um þá og þættir sýndir. Aðal-
vinningur í spurningaleik er
Nokia-farsími og á veitinga-
staðnum Dill verður hægt að
kaupa finnskar veitingar.
Dagskráin hefst með
ávarpi sendiherra Finnlands
á Íslandi og lýkur síðdegis
með kvikmyndinni Hugaðu
að treflinum þínum, Tatjana,
eftir hinn finnska leikstjóra
Aki Kaurismäki.
Að hátíðinni standa Hug-
vísindasvið Háskóla Íslands,
Finnska sendiráðið, Suomi-
félagið og Norræna húsið.
Aðgangseyrir er enginn og
allir eru velkomnir. - gun
Finnsk menn-
ing í Vatnsmýri
MÚMÍNÁLFARNIR koma við sögu
í Norræna húsinu í dag.
HEIT SÚPA Hressir líkama og
sál og ekki spillir ef hægt er að
styrkja gott málefni í leiðinni.
Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Gréta Stefánsdóttir
Þórunnarstræti 136, Akureyri,
lést miðvikudaginn 2. desember. Útför hennar fer fram
frá Akureyrarkirkju föstudaginn 11. desember kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Krabbameins-
félag Akureyrar og Heimahlynningu Akureyri.
Páll Gíslason
Bergþóra Pálsdóttir
Sigurður Pálsson Hólmfríður Sveinmarsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir mín,
dóttir okkar og systir,
Elva Dögg Pedersen
Mosarima 12, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
9. desember klukkan 13.00.
Haukur Sigurðsson
Alexander Hauksson
Palle Skals Pedersen
Sæunn Elfa Pedersen
Daníel Thor Skals Pedersen
Arnór Ingi Ingvarsson
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við and-
lát og útför
Guðlaugar Snorradóttur
frá Syðri-Bægisá.
Fyrir hönd ástvina,
Hulda Snorradóttir Halldóra Snorradóttir
Heiðrún Arnsteinsdóttir