Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 112

Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 112
80 5. desember 2009 LAUGARDAGUR menning@frettabladid.is ath. kl. 16 í Guðríðarkirkju í Grafarholti Kvennakór Reykjavíkur heldur þar seinni aðventutónleika sína þar sem frumflutt verður verkið Hodie eftir Harald V. Sveinbjörnsson, en dagskráin fellur í tvær áttir, létt verk og hátíðleg. Einsöngvari er Stefán Hilmarsson, Sigrún Þor- geirsdóttir stjórnar en Vignir Þór Stefánsson leikur undir. Á morgun verða 150 ár liðin frá fæðingu Einars Hjörleifssonar Kvaran rithöfundar. Hafa afkomend- ur hans af því tilefni boðað til athafnar í Borgareik- húsinu á morgun kl. 14.30. Þar verða flutt stutt erindi um brautryðjandann, rithöfundinn, skáldið, blaðamanninn, leikhúsmanninn og spíritistann og eru þá ekki allar hliðar tæmdar á lífsstarfi þessa merkilega manns í íslensku menningarlífi. Einar fæddist á Fljótsdalshéraði 1859 og lést 1938. Hann var alinn upp í Húnaþingi og Skagafirði, en sótti síðar nám til Hafnar. Þaðan hélt hann til Vesturheims og stóð þar að stofnun Lögbergs og Heimskringlu. Hann var þegar á Hafnarárunum brautryðjandi í skáldskap í anda raunsæisstefnunnar en hafði birt sínar fyrstu sögur fyrir tvítugt. Hann var afkastamikið sagnaskáld, bæði smásögur og skáldsögur samdi hann. Þá var hann forgöngumaður í starfi spíritista og einn stofnenda Sálarrannsóknafélagsins. Einar var einn áhrifamesti maður hér á landi í mörgum deildum menningarlífs um áratugaskeið. Á efnisskrá athafnarinnar á morgun er frum- flutningur lags af Ólöfu Arnalds við eitt ljóða hans. Þá verður leikrit hans Syndir annarra flutt í Útvarpsleikhúsinu kl. 14. Einar H. Kvaran: 150 ára minning EINAR H. KVARAN > Ekki missa af tónleikum Hlífar Sigurjóns- dóttur fiðluleikara í kirkjunni í Reykholti kl. 16. Þar flytur hún partítur og sónötur eftir Bach, Vetrartré eftir Jónas Tómasson, en allar partítur og sónötur Bachs hljóðritaði Hlíf í Reykholti á nær átta ára bili en þær eru nú komnar á disk og í dreifingu hér og í Bandaríkj- unum. Jólauppboð Gallerís Fold- ar verður haldið í tvennu lagi mánudags- og þriðjudagskvöld. Boðin verða upp um 180 verk af ýmsum toga, bæði nýleg og eftir gömlu meistaranna. Elsta verk- ið er frá 1891, málað af Þórarni B. Þorlákssyni. Þá verður boðin upp afar sérstæð og glæsileg geometría eftir Nínu Tryggva- dóttur, frá 1955, eitt af örfáum slíkum verkum. Enn fremur verður Hafmeyjan eftir Nínu Sæmundsson boðin upp. Eftir- gerð af henni, sem komið var fyrir í Reykjavíkurtjörn, var sprengd upp um áramótin 1960. Uppboðin í Fold á Rauðarárstíg og hefjast báða dagana klukkan 18.15 Fold með stóruppboð Arfurinn er tekinn að færast á mynddiskinn. Melkorka – rætur íslenskrar menningar er mynd- skreytt hljóðbók. Diskurinn er gefinn út á íslensku og ensku og geymir söguna af Melkorku, sem er ein af lykilpersónum Íslands- sögunnar. Henni tengjast margir þættir sem skýra mótun Íslend- inga. Hún var ambátt og nýbúi á Íslandi en um leið formóðir merkra sögupersóna. Frá henni segir hér í þessari myndskreyttu hljóðbók. Sagan er rakin sam- kvæmt Laxdælu, fyllt í eyður og rýnt í leyndardóma. Skýringar og stuðningsefni fylgir svo auð- velt sé að átta sig á samhenginu. Ljósmyndir teknar á sögustöðum og í Sögusafninu í Perlunni ásamt lýsandi teikningum koma á skjá- inn á meðan sögunni vindur fram. Höfundur og sögumaður er Jakob Ágúst Hjálmarsson og listræn og tæknileg útfærsla er í höndum Emils Sigurbjörnssonar. Efnið er sett fram á DVD-diski sem upp- lestur með myndum sem birtast á skjánum eftir því sem sögunni vindur fram. Saga Melkorku er aðalefni disksins en að auki er ítarefni sem á að skýra bakgrunn- inn í fimm flokkum: Heimur Mel- korku, Heimur Höskuldar, Papar, Víkingar, Kristni á landnáms- öld. Sögusafnið í Perlunni dreifir gripnum. - pbb Saga Melkorku Lér konungur eftir William Shakespeare verður jóla- leikrit Þjóðleikhússins að ári og mun Benedict Andrews, einn þekktasti leikstjóri okkar tíma, bæði í Ástralíu og Evrópu, setja verkið á svið. Andrews hefur verið hampað sem skærustu stjörnu samtím- ans í áströlsku leikhúsi og sýningar hans í Berlín hafa notið mikillar hylli. Sýningar Benedicts Andrews ein- kennast af djörfung og frumleika, en um leið er hann þekktur fyrir framúrskarandi vinnu með leikur- um sínum og einstakt myndrænt næmi. Benedict Andrews þykir sameina á einstæðan hátt nútíma- lega og frumlega nálgun annars vegar og hins vegar djúpan skiln- ing og þekkingu á leikhúshefðinni. Meðal þekktustu leikstjórnarverk- efna hans eru uppsetning á Rósa- stríðunum, byggð á konungaleikj- um Shakespeares í Sydney með Cate Blanchett í aðalhlutverki, og fjöldi sviðsetninga á verkum þýska leikskáldsins Mariusar von Mayer- burg. Benedict Andrews fæddist árið 1972 í Adelaide í Ástralíu. Hann vakti strax mikla athygli fyrir fyrstu sýningar sínar sem hann setti upp að loknu leikstjórnar- námi, hálfþrítugur að aldri. Hann hefur síðan þá sett upp fjölda róm- aðra sýninga á verkum eftir Shake- speare, Tsjekhov, Beckett, Goet- he, Calderó, Marivaux, Brecht, Patrick White, David Gieselmann, Jez Butterworth og Martin Crimp og jafna þótt fara ótroðnar slóðir. Hann hefur reglulega sett upp sýn- ingar við Schaubühne í Berlín frá árinu 2002, meðal annars á verkum eftir Sarah Kane, David Harrower, Marius von Mayenburg, Caryl Churchill og Tennessee Williams. Hann vinnur nú að uppsetningu á Hjálp eftir Edvard Bond hjá Schau- bühne en heldur svo til Ástralíu til að leikstýra óperunni Brúðkaupi Fígarós hjá Sydney Opera House og Allt í misgripum eftir Shakespeare hjá Sydney Theatre Company. Benedicts Andrews mun svo ljúka árinu 2010 með því að setja upp jólasýningu Þjóðleikhússins, Lé konung eftir Shakespeare. Benedict hefur dvalið hér á landi undanfarnar vikur og unnið að því að velja samstarfsfólk og leikara. Undirbúningur við sýninguna er nú vel á veg kominn, og munu marg- ir af fremstu leikurum þjóðarinn- ar taka þátt í henni. Um leikmynd sér Börkur Jónsson, Helga I. Stef- ánsdóttir gerir búninga og tónlist semur Hildur I. Guðnadóttir. Verð- ur þetta fjórði flutningur verksins hér á landi: Þorsteinn Ö. Stephen- sen lék hinn aldna kóng hjá Ríkisút- varpinu undir lok ferils síns, Rúrik Haraldsson lék hann í rómaðri sýn- ingu Þjóðleikhússins 1972 og Pétur Einarsson fór með hlutverkið í sýn- ingu Leikfélags Reykjavíkur 2001. Tvö höfuðskáld hafa þýtt verkið á íslensku, Steingrímur Thorsteins- son og Helgi Hálfdanarson. pbb@frettabladid.is LÉR KONUNGUR EFTIR ÁR LEIKLIST Cate Blanchett í frægu atriði úr Rósastríðunum í sviðsetningu Andrews. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ Jól í Salnum Tónleikar á aðventu Lau 05. des Kl. 21 Stefán Hilmarsson AF FINGRUM FRAM Sun 06. des Kl. 15 Ljótu hálfvitarnir FJÖLSKYLDUTÓNLEIKAR Fim 10. des Kl. 20.30 Sniglabandið JÓL, MEIRI JÓL Mið 16. des Kl. 20.30 Megas og Senuþjófarnir SEGÐU EKKI FRÁ Fös 18. des Kl. 21 Lárusdætur INGIBJÖRG, ÞÓRUNN OG DÍSELLA Tryggðu þér miða á salurinn.is Einnig er hægt að kaupa eða panta miða í Salnum virka daga milli kl. 14 og 18 og fram að tónleikum á tónleikadögum. Sími í miðasölu er 5 700 400.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.