Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 114
82 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
Bókmenntir ★★★★★
100 bestu plötur Íslandssögunnar
Jónatan Garðarsson og Arnar Eggert Thoroddsen
Góðu heilli hefur íslenskri dægurtónlistarsögu verið
sinnt af nokkurri alúð á um það bil áratugsfresti frá
því í upphafi níunda áratugarins, með merkisritum
eftir Jens Guð, Gest Guðmundsson og Dr. Gunna.
Tímasetningin á 100 bestu plötum Íslandssögunn-
ar fylgir hefðinni að því leyti en þó er um annars
konar verk að ræða, fyrstu svokölluðu sófaborðsbók-
ina sem tileinkuð er íslenskri tónlist. Því er í raun
um brautryðjendaverk að ræða, og er það einstak-
lega vel heppnað sem slíkt.
Plöturnar hundrað sem fjallað er um voru valdar
af almenningi og fagfólki í kosningu fyrr á árinu. Í
bókinni gefur að líta sögurnar á bak við plöturnar,
farið er yfir upptökuferlin, rifjuð upp forvitnilega
atvik sem þeim tengjast og einnig viðbrögð almenn-
ings og poppskríbenta, svo fátt eitt sé nefnt.
Vandséð er að betri menn en Jónatan og Arnar
Eggert hefðu getað valist til verksins. Yfirgripsmikil
þekking og óbilandi áhugi þeirra á viðfangsefninu
leynir sér ekki í lipurlega skrifuðum og á köflum
launfyndnum textanum, og er takmarkað rýmið sem
hverri plötu er ánafnað, af skiljanlegum ástæðum,
afar vel nýtt. Helst mætti finna að þeim örfáu tilfell-
um þar sem upptalning á tónlistarfólki er tvítekin,
kemur fyrir bæði í megin- og upplýsingatexta, sem
er ofrausn þegar plássið er af skammti afar skorn-
um (svo vitnað sé í hljómsveit sem á tvær plötur á
listanum).
Það hlýtur að ískra af gleði í mörgum poppnörd-
inum yfir þeirri gnótt óvæntra fróðleiksmola sem í
boði eru (til dæmis er ekki á allra vitorði að með-
limir Ham hafi fagnað goðsagnakenndum kveðju-
tónleikum sínum með því að glápa á gamla Prúðu-
leikaraþætti heima hjá Páli Óskari, eða að sérstæða
raddbeitingu Valgeirs Guðjónssonar í Afasöngnum á
Hrekkjusvínaplötunni megi rekja til Brodda Brodda-
sonar fréttamanns), en engu að síður ætti bókin að
gagnast lesendum á öllum stigum tónlistaráhuga.
Þá er öll uppsetning eins og best verður á kosið.
Bókin er mjög aðgengileg, umslögum platnanna gert
hátt undir höfði með stórum myndum og upplýsing-
um, og prentun og útlitið er upp á tíu.
Eins og áður sagði eru kostirnir mýmargir, og
hlýtur einn þeirra að teljast sú staðreynd að úrslit
kosninga af þessu tagi verða aldrei óumdeild.
Fátt jafnast á við gott popprifrildi, og staða ýmissa
platna á listanum og fjarvera annarra eru til þess
fallnar að sjá lesendum fyrir skeggræðum fram
á næstu öld ef því er að skipta (eða þar til næsta
kosning fer fram). Hvernig stendur á því að frum-
raun Rottweilerhundanna er ekki á topp hundrað?
Er Millilending nokkuð síðri en Loftmynd? Hvar í
ósköpunum er Helgi Björns???! Möguleikarnir eru
endalausir, og flestir jafn skemmtilegir.
100 bestu plötur Íslandssögunnar er einfald-
lega frábær bók, glæsilegt verk sem vonandi ryður
brautina fyrir fleiri slík, því næg eru víst tilefn-
in til að hampa íslenskri tónlistarsköpun. Skyldu-
eign fyrir allt tónlistaráhugafólk, hvorki meira né
minna.
Kjartan Guðmundsson
Niðurstaða: Aðgengileg, fróðleg og umfram allt stór-
skemmtileg sófaborðsbók með alfræðiívafi. Skyldueign
fyrir allt tónlistaráhugafólk.
Tónlistararfinum fagnað
Upplestrarkvöld Forlagsins á Rosenberg
á Klapparstíg, sunnudagskvöldið
6. DESEMBER KL. 20
Kynnir: Svavar Knútur
LJÁÐU MÉR EYRA!
Allir hjartanlega velkomnir meðan húsrúm leyfir
Viktor Arnar Ingólfsson / Sólstjakar
Eiríkur Örn Norðdahl / Gæska
Guðmundur Brynjólfsson / Þvílík vika
Árni Heimir Ingólfsson / Jón Leifs – Líf í tónum
Steinar Bragi / Himinninn yfir Þingvöllum
Pétur Gunnarsson / ÞÞ – Í forheimskunarlandi
Finnsk menningarhátíð
fyrir alla fjölskylduna
Norræna húsið 5. desember kl. 12-17
Fjölbreytt kynning í anddyri á finnskri
menningu, tónlist, dans, bókakynningar,
spurningaleikur (Nokia farsími í vinning),
kökubasar, bíó, hönnun, nám o.fl.
Múmínálfadagskrá í bókasafni
Dagskrá í fyrirlestrasal:
12.10 Ávarp sendiherra Finnlands
12:34 Jóladagatal Norræna hússins
13:00 Letkajenkka dans
13:30 Tove Jansson og Múmínálfarnir
14:00 Bókaupplestur, nýjar finnskar þýðingar
14:30 Kalevala, þjóðarkviða Finna
15:00 Finnsk hönnun og arkitektúr
15:30 Aki Kaurismäki og norræn kvikmyndagerð
16.00 Bíó: Hugaðu að treflinum þínum, Tatjana
Allir velkomnir. Enginn aðgangseyrir
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir
umsóknum um
starf háskólakennara í leiklist
Laust er til umsóknar starf háskólakennara í leiklist við
leiklistardeild með stöðuheiti lektors, dósents eða prófessors.
Umsækjandi skal vera skapandi listamaður, s.s. leikstjóri
eða leikari, og hafa kennt við viðurkennda listaskóla.
Gerð er krafa um meistaragráðu á sviði leiklistar, eða
sambærilega háskólagráðu, eða jafngilda þekkingu og
reynslu.
Starf háskólakennara skiptist í kennslu, stjórnun, og
listsköpun / rannsóknir með áherslu á leiktúlkun. Í starfinu
felst að háskólakennari er fagstjóri á leikarabraut.
Háskólakennari er sjálfstæður listamaður og er það hluti
af hans starfi við skólann að þróa áfram verkefni sín og
rannsóknir og miðla afrakstri þeirra og niðurstöðum til
samfélagsins.
Umsóknum og meðfylgjandi gögnum skal skila ekki síðar
en mánudaginn 4. janúar næstkomandi til Listaháskóla
Íslands, aðalskrifstofu, Skipholti 1, 105 Reykjavík. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans www.lhi.is
NÝ TÍMARIT
Út er komið vetrarhefti af Þjóð-málum sem Jakob F. Ásgeirs-
son ritstýrir. Að venju kennir
margra grasa í heftinu, sem er
96 síður að stærð. Ögmundur
Jónasson skrifar um Umsátrið,
bók Styrmis Gunnarssonar, Björn
Bjarnason fjallar um spurninguna
hvort íslensk utanríkisstefna sé
úr sögunni, en hann á einnig
ritdóm í heftinu um starfssögu
Jónasar Kristjánssonar. Vilhjálmur
Eyþórsson ræðst til atlögu gegn
hugmyndinni um gróðurhúsa-
vandann. Þá eiga í heftinu greinar
eftirtaldir höfundar; Atli Harð-
arson, Bryndís Schram, Styrmir
Gunnarsson, Lárus Jónsson, Páll
Vilhjálmsson og Þorsteinn Páls-
son, meðal annarra. Rætt er við
biskup Íslands, Karl Sigurbjörns-
son, og John Curran um Agöthu
Christie. Heftið fæst í öllum betri
bókaverslunum. Bókmenntafélag-
ið Uglan gefur út.