Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 120

Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 120
88 5. desember 2009 LAUGARDAGUR folk@frettabladid.is Snorri Helgason, Bjarni Lárus Hall, María Magnús- dóttir og Kristín Bergs- dóttir eru öll að gefa út sínar fyrstu sólóplötur um þessar mundir. Blaðamaður hitti þau á Sægreifanum og spurði þau spjörunum úr á meðan þau gæddu sér á sæagrasúpu sem er ný á matseðlinum. Bjarni Lárus Hall, betur þekktur sem Baddi úr hljómsveitinni Jeff Who? hefur nú sent frá sér sína fyrstu sólóplötu sem nefnist The Long Way Home. Snorri Helgason úr Sprengjuhöllinni er einnig að þreyta frumraun sína sem sólól- istamaður og sendi nýverið frá sér plötuna I‘m Gonna Put My Name On Your Door. Þær María og Krist- ín eru hins vegar að stíga sín fyrstu skref í tónlistarútgáfu, María með plötuna Not Your Housewife og Kristín með plötuna Mubla. Er mikil vinna fyrir tónlistar- menn að koma sér á framfæri um jólin? „Maður þarf bara að vera svolítil frekja,“ segir María. „Manni er yfirleitt vel tekið, en maður þarf að vera duglegur að láta vita af sér,“ segir Kristín. „Ég reyndi að vera með fyrir jólatörnina, en mér var sagt að það væru 200 titlar að koma út fyrir jól svo það er ekkert djók,“ segir María. Þeir Baddi og Snorri segja það mikil viðbrigði að gefa út plötur upp á eigin spýtur. „Það er allt öðruvísi og því fylgja bæði kostir og gallar,“ segir Baddi og Snorri tekur undir. „Maður ræður öllu, en þarf líka að gera allt,“ segir hann. Sæagrasúpan er borin fram með brauðkörfu og smjöri. „Það eru sæbjúgu ofan í,“ segir Kolbrún sem ber fram súpuna og sýnir bita í einni skálinni. „Hvað er það?“ spyr Kristín „Eitthvert loðdýr?“ segir hún og hlær. Eruð þið stressuð yfir viðbrögð- um fólks þegar tónlistin ykkar er annars vegar? „Já, ég verð að viðurkenna að ég er mjög stressuð, en ég hef fengið frekar jákvæða umfjöll- un. Maður þarf að læra að taka hvorki inn á sig það slæma né það góða,“ segir María og Baddi tekur í sama streng. „Mér finnst þetta mjög stressandi. Þegar maður er búinn að vera í hljómsveit fær maður kannski meiri umfjöllun, sem er frekar ósanngjarnt því ég er ekki að gera neitt annað en María og Kristín, en á móti kemur er að þeirra diskar eru dæmdir út frá því hvernig þeir eru á meðan ég er hræddur um að tónlistin mín verði tengd við hljómsveitina,“ segir hann. Kristín og Snorri eru á öðru máli. „Ég er bara ótrúlega spennt að fá álit frá einhverjum sem þekkir mig ekki neitt,“ segir hún og Snorri er jafnafslappaður. „Ég hef verið skeindur svo harka- lega að ég er ýmsu vanur,“ segir hann og brosir. Sæagrasúpan rann ljúflega niður og allar skálar eru tómar. En skyldu kynörvandi áhrif súpunnar vera farin að láta á sér kræla? „Hún er ekki farin að kikka inn strax,“ segir Snorri. - ag Smökkuðu sæagrasúpu LJÚFFENG SÚPA Vel fór á með þeim Snorra, Kristínu, Badda og Maríu á Sægreifanum þar sem þau borðuðu sæagrasúpu á meðan þau ræddu um tónlistina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Það var hringt í okkur frá Sól- heimum í Grímsnesi og spurt hvert ætti að senda kertin. Það var bara einhver sem greiddi,“ segir mat- reiðslumaðurinn Úlfar Eysteinsson. Úlfar og félagi hans, hamborgara- kóngurinn Tómas Tómasson, ætla að dreifa kertum og spilum til barna í næstu viku. Eins og Fréttablaðið greindi frá á dögunum þá biðluðu kokkarnir til Seðlabanka Íslands um styrk fyrir kertum frá Sólheim- um. Í kjölfar fréttarinnar hafði huldu maður samband við Sólheima og greiddi kertin og Úlfar segir engu máli skipta hver var þar að verki. „Það kom okkur mjög á óvart. Við þurfum ekki að ónáða neinn með það,“ segir hann. „Við erum ekkert að kafa í þetta. Það eru einhverjir að mótmæla á jákvæðan hátt eins og við.“ Eins og kunnugt er þá eru Úlfar og Tómas að mótmæla háum stýrivöxtum Seðlabankans, en þeir ætla ekki að raka sig fyrr en vextirn- ir lækka um 1,5 prósent. Kokkarnir dreifa huldukertunum og spilunum, sem Icelandair gaf, í leikskóla, barna- spítala Hringsins og víðar í næstu viku. Úlfar segir að allt sé að smella saman og búið sé að redda því sem þarf að redda. „Hestvagninn kemur úr Grindavík og hesturinn og öku- maðurinn úr Hafnarfirði. Þetta er allt að bresta á,“ segir hann. En hvað heitir hesturinn? „Hann er bleikur og við köllum hann það. Það var eins nálægt og við komumst að jólasveinalitnum.“ - afb Huldumaður greiddi kokkakertin GJAFMILDIR JÓLASVEINAR Úlfar og Tómas dreifa gjöfum til barna í næstu viku. Tónlistarmaðurinn Ronnie Wood var handtekinn á miðvikudags- kvöld fyrir að hafa ráðist á unga kærustu sína á götu úti. Wood var leystur úr varðhaldi gegn trygg- ingu daginn eftir, þetta staðfestir lögfræðingur Woods. Íbúar í Surrey heyrðu konu öskra á miðvikudagskvöldið og sáu mann draga stúlku eftir götunni og hóta henni líkamsmeiðingum. „Við heyrðum konu öskra, því næst sáum við mann henda henni niður á götuna. Hann öskraði á hana og svo fannst okkur við heyra hljóð eins og verið væri að kyrkja ein- hvern. Þá hljóp kærasti minn út til að skakka leikinn. Þegar hann kom út áttaði hann sig á því hver maðurinn var,“ var haft eftir kon- unni sem hringdi á lögregluna og tilkynnti málið. „Ekaterina var miður sín og var illa rispuð á hnjám og fótleggjum og svo virtist sem Wood hafi dreg- ið hana eftir götunni nokkra vega- lengd. Hún vildi alls ekki leggja inn kæru, en vegna framburða vitna gæti verið að Wood verði kærður fyrir líkamsárás,“ sagði lögreglan um málið. Wood og Ekaterina hafa verið saman í rúmt ár, en samband þeirra varð til þess að eiginkona Woods til tuttugu ára sótti um skilnað. Hótaði kærustunni STORMASAMT SAMBAND Ronnie Wood var handtekinn fyrir að hafa ráðist á kærustu sína. > PAMELA Í TÓNLIST Pamela Anderson undirbýr nú tónlistarferil sinn. Fyrsta lagið sem hún mun gefa út nefnist High og fjallar um tískubransann. Fyrr- um Baywatch-stjarnan vinnur lagið í samvinnu við Richie Rich og í viðtali við dagblaðið New York Post segir hann Pamelu ekki vilja syngja neitt of flókið. Saman eru þau Richie einnig að undirbúa nýja fatalínu sem verður frumsýnd á tískuviku í New York í febrúar næstkomandi. NJARÐARBRAUT 9 - REYK JAN ES BÆ FIS KIS LÓÐ 3 - REYKJAVÍK Gæða vetrardekk fyrir alla bíla Nesdekk - Fiskislóð - sími 561 4110 / Nesdekk - Reykjanesbæ - sími 420 3333
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.