Fréttablaðið - 05.12.2009, Síða 124
92 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
„Þetta er unglingaleikrit fyrir alla
aldurshópa,“ segir Kári Viðarsson
leikari í leikhópnum The Fiasco
Division. Hann setur upp leikritið
Devotion í Leikfélagi Hafnar-
fjarðar ásamt Aldísi Davíðsdóttur
leiklistarnema og Árna Grétari
Jóhannssyni leikstjóranema. Bæði
nema þau við Rose Bruford Coll-
ege í London en Kári er útskrifað-
ur frá skólanum.
„Okkur langaði að gera leikrit
sem fjallar um ofbeldi og einelti
því að það er mikil umræða um
þetta í samfélaginu, Okkur langaði
líka til að fá tækifæri til að skoða
þetta sjálf. Þegar maður er að
vinna svona leikrit gefst oft tæki-
færi fyrir leikara til að kafa djúpt
ofan í viðfangsefnið og við erum
búin að læra mikið af því að búa
þetta til,“ segir Kári. Tvær sýning-
ar verða 18. desember og ein hinn
19. og þar sem einn leikarinn er frá
Bretlandi verður leikið á ensku.
„Leikritið er hrátt, fyndið, ögrandi
og veltir upp hugmyndinni um hve-
nær leikur hættir að vera leikur og
verður að alvöru. Það snertir einn-
ig á viðkvæmum málum eins og
einelti og annars konar ofbeldi og
býður upp á tækifæri fyrir áhorf-
andann til að íhuga eigin skoð-
anir og hugmyndir hvað varðar
ýmiss konar árekstra milli hópa
og einstaklinga og þau vandamál
sem þessir árekstrar geta valdið,“
útskýrir Kári. „Eftir áramót förum
við í eldri bekki grunnskóla og í
framhaldsskólum víðs vegar um
landið, í þeim tilgangi að varpa
ljósi á og opna umræðu um ein-
elti og ofbeldi. Þetta hefur mikið
fræðslugildi fyrir alla aldurs hópa
og ég held að allir hefðu gagn og
gaman af því að sjá sýninguna,“
segir hann. - ag
Leikrit um einelti
FRÆÐANDI LEIKRIT Kári segir Devotion
vera unglingaleikrit fyrir alla aldurshópa,
en leikritið verður sýnt í Leikfélagi
Hafnarfjarðar 18. og 19. desember.
Sérstakt uppistandskvöld
verður haldið á Næsta bar
á miðvikudaginn næstkom-
andi því þar koma fram
fimm vinkonur en þetta
verður í fyrsta sinn sem
þær reyna við uppistand.
„Þetta byrjaði þannig að við vorum
nokkrar vinkonur að ræða hvers
vegna engar stelpur væru með
uppistand. Við vitum það sjálfar
að stelpur geta verið mjög fyndn-
ar þó þær geri ekki mikið af því
opinberlega. Í kjölfarið ákváðum
við að gera þetta sjálfar og skipu-
lögðum uppistandskvöld,“ segir
Helga Katrín Tryggvadóttir, en
hún ásamt Kötlu Ísaksdóttur, Þór-
dísi Nadiu Óskarsdóttur, Soffíu
Hrönn Gunnarsdóttur og Uglu
Egilsdóttur munu stíga á svið á
miðvikudagskvöldið.
Helga Katrín, sem stundar meist-
aranám í þróunarfræði, segist lítið
vilja gefa upp um umfjöllunarefni
sitt og tekur fram að sé fólk for-
vitið verði það bara að mæta á
staðinn sjálft. Aðspurð segist hún
ekki sannfærð um að karlar séu
fyndnari en konur. „Alveg eins og
konur eru ekki fyndnari en karlar.
Ég er ekki gefin fyrir að alhæfa
svona, ég held að húmor sé fyrst
og fremst persónubundinn.“
Hún segist síðast hafa staðið á
sviði í grunnskóla en sé þrátt fyrir
það lítið stressuð fyrir kvöldinu.
„Það getur vel verið að stressið
komi klukkutíma áður en ég stíg
á svið. Við erum flestar búnar að
fullmóta efnið okkar. Ég ætlaði
fyrst að spinna efnið á staðnum en
hætti við það og kom með aðeins
fastmótaðra efni. Annars held ég
að þetta fari allt eftir áhorfendun-
um og ég held ég muni reyna að
spila þetta svolítið eftir eyranu,“
segir Helga Katrín að lokum.
Uppistandið hefst klukkan 22á
Næsta bar og er aðgangur ókeypis.
- sm
Fyndnar stelpur
FYNDNAR STÚLKUR Helga Katrín og vinkonur hennar halda stelpu-uppistand á
Næsta bar. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Fréttir af slysi og meintu framhjá-
haldi kylfingsins Tiger Woods hafa
verið á allra vörum undanfarna
daga. Tímaritið US Weekly heldur
því fram að Elin Nordegren, eigin-
kona Tiger Woods til fimm ára, ætli
sér að standa með manni sínum í
gegnum þessa erfiðu tíma. Tímaritið
vill þó meina að Nordegren geri það
aðeins peninganna vegna því Woods
hefur lofað að greiða henni ríkulega
fyrir. Samkvæmt kaupmála sem
hjónin gerðu með sér þarf Nordeg-
ren að vera gift Woods í tíu ár til
þess að fá tuttugu milljónir Banda-
ríkjadala af auðæfum Woods.
Nú hefur þessi fjárhæð verið
hækkuð til muna. Sænski kylfing-
urinn Jesper Parnevik, sem Elin
Nordegren vann eitt sinn hjá, segist
sjá eftir því að hafa kynnt stúlkuna
fyrir Woods á sínum tíma. „Við héld-
um greinilega að hann væri betri
maður en hann er. Ætli ég skuldi
Elinu ekki afsökunarbeðni,“ var haft
eftir Parnevik.
Rachel Uchitel, konan sem á að
hafa hrundið þessu öllu af stað, er
orðin stórstjarna í Bandaríkjunum
og önnur konan, Jaimee Grubbs,
sagði í nýlegu viðtali að það hafði
sært hana mjög að komast að því
að Woods ætti fleiri hjásvæfur en
hana.
Í vondum málum
BROTIN FJÖLSKYLDA Fjöldi kvenna hefur komið fram og viðurkennt að hafa átt í
sambandi við hinn gifta Tiger Woods.
Litla Fiskbúðin
Fiskur á heildsöluverði