Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 126
94 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
Hljómsveitin Ríó tríó hitar upp
fyrir Snorra Helgason á útgáfu-
tónleikum hins síðarnefnda
í Þjóðleikhúskjallaranum 17.
desember. Um skemmtilegt
uppátæki er að ræða því Helgi
Pétursson í Ríó tríó er einmitt
faðir Snorra. Bæði Snorri og
Ríó tríó sendu frá sér plötur á
dögunum. Plata Snorra nefnist
I´m Gonna Put My Name On
Your Door en Ríó tríóið gaf út
jólaplötu sem nefnist Gamlir
englar – Sígildir á jólum.
Hljómsveitin Sigríður Thorlaci-
us & Heiðurspiltar kemur einn-
ig fram á tónleikunum sem hefj-
ast klukkan 20.30. Miðaverð er
1.500 krónur.
Hitar upp fyrir soninn
FEÐGAR Snorri Helgason og faðir hans
Helgi Pétursson spila í Þjóðleikhúskjall-
aranum 17. desember.
Ævisögur Magga Eiríks, Gylfa Ægis og Villa Vill fljúga nú út úr bóka-
búðunum. Því er líklegt að fleiri popparar hugsi sér gott til glóðar-
innar á komandi árum og áratugum að segja sögu sína í bók. Hér eru
nokkrar ævisögur sem fastlega má búast við að gefnar verði út í fram-
tíðinni.
Poppævisögur
framtíðarinnar
Hjálpaðu mér upp
Bransasaga Björns Jörundar (2020)
Í þessari mögnuðu ævisögu segir Björn Jörundur sögu
sína af einstakri hreinskilni. Hvort heldur sem Björn
skrifar um víf og vín, tvíbura, árin með Nýdönsk,
villtu árin í Brasilíu, kynni hans af sálarrannsóknum
og frímerkjasöfnunarástríðuna, getur lesandinn alltaf
verið viss um eitt: Björn leggur öll spilin á borðið.
Herra Popp!
Páll Óskar leysir frá skjóðunni (2030)
Í tilefni af sextugsafmæli herra Páls Óskars Hjálm-
týssonar, forseta lýðveldisins, kemur Herra Popp!
– óritskoðaðar æviminningar einnar litríkustu per-
sónu lýðveldissögunnar. Kíkt er bak við tjöldin, bæði
á Bessastöðum og á risatónleikasölum víðs vegar
um heim. Lesendur eru beinlínis með nefið ofan í
atburðunum sem skóku þjóðfélagið. Stórkostleg
bók!
Frumskógatrommur
Ótrúleg ævisaga Emilíönu Torrini (2033)
Ung að árum sneri Emilíana frá villu síns vegar, yfirgaf
gerviheim popptónlistarinnar og helgaði líf sitt Jesúm
í gegnum kristniboðssamtökin Hvítu dúfuna. Í þessari
vönduðu ævisögu segir systir Torrini frá kynnum sínum
af fólkinu sem breytti lífi hennar og starfi kristniboðs-
samtakanna í fátækustu löndum Afríku.
Sæljónsi
Ævisaga Jónsa í Sigur Rós (2035)
Í þessari mögnuðu bók er sögð saga eins mesta
athafnamanns Íslandssögunnar. Spennandi og lifandi
frásögn af árunum með Sigur Rós og Sea Lion World-
ævintýrinu, sem gerði Jónsa að einum alræmdasta og
auðugasta manni Íslands. Hér fær lesandinn sannleik-
ann. Allan sannleikann.
Magnaður!
Magni í lífsins ólgusjó (2038)
Saga söngvarans goðsagnakennda, frá Rock Star
Supernova ævintýrinu til sautjándu plötu Á móti sól,
17. Hvað gerðist bak við tjöldin í Hollywood og hvað
gerðist bak við tjöldin í Húnaveri? Með bókinni fylgir
sautjánda plata Á móti sól, 17, á örflögu.
Úr Mínus í plús
Hin lygilega ævisaga Krumma Björgvinssonar
(2040)
Í þessari ævintýralegu bók segir Krummi á hrein-
skilinn hátt frá árunum með Mínus, sigurgöngunni
í Eurovision 2031 og hvernig honum tókst að slá í
gegn á verðbréfamarkaðinum með sínum einföldu
töfralausnum. Í aukakafla kennir Krummi lesendunum
að koma lagi á heimilisbókhaldið.
Leiðin til Las Vegas
Lífssaga Jóhönnu Guðrúnar (2042)
Ung að árum sigraði hún hjörtu heimsins í Eurov-
ision, en það var bara byrjunin. Eftir að hún söng
titillagið í stórslysamyndinni Dubai Burns! lá leiðin
um stærstu tónleikahús heimsins, þar til hún sló
endanlega í gegn með sýningu sinni í Las Vegas. Í
þessari mögnuðu bók horfir Jóhanna um öxl og dregur
hvergi undan.
Svona varð ég ríkasti maður Íslands
Ingó segir frá (2045)
Segja má að Bahama-eyjar hafi verið örlagavaldur í
lífi Ingós. Smellurinn kom honum á kortið en Ingó
kom Bahama-eyjum á kortið eftir að hann breytti
höfuðborginni Nassau í spilavítishöfuðborg heims-
ins. Í þessari einkar glæsilegu bók segir Ingó sögu
sínu og landsfrægur kveðskapur hans er hvergi
langt undan. Bókinni fylgir viðauki þar sem allar
sjö eiginkonur Ingós tjá sig um árin með honum.
ZAC EFRON Efron ber mikla virðingu
fyrir kollega sínum Leonardo
DiCaprio.
Leikarinn Zac Efron ætlar að
taka sér Leonardo DiCaprio
til fyrirmyndar þegar kemur
að kvikmyndaferlinum.
Ástæðan er sú að DiCaprio
hefur leikið í mjög fjölbreytt-
um myndum, sem er einmitt
það sem Efron langar að gera.
„Ég fylgist mjög vel með þró-
uninni á ferli Leos. Hann er
besti mælikvarðinn fyrir mig.
Það er magnað að sjá leikara
halda jákvæðni sinni ár eftir
ár og einbeita sér að vinn-
unni í von um að standa sig
sem allra best,“ sagði hinn
22 ára Efron, sem sló í gegn í
High School Musical-myndun-
um. Efron hefur einnig mik-
inn áhuga á að leika í James
Bond-mynd í framtíðinni. „Ég
er mikill James Bond-aðdá-
andi. Ég væri til í að leika
illmennið. Ég hef séð eigin-
lega allar Bond-myndirnar
og Sean Connery er í mestu
uppáhaldi.“
Vill líkjast
Leo
Lækjargata 2a sími 511-5001 opið alla daga frá 9.00 - 22.00
Helgartilboð
7.995,-
5.995,-