Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 128

Fréttablaðið - 05.12.2009, Page 128
96 5. desember 2009 LAUGARDAGUR Leikstjórinn Clint Eastwood hefur engan áhuga á því að halda upp á áttræðisafmælið sitt á næsta ári. Hann nær þess- um merka áfanga í maí en hefur bannað eiginkonu sinni að gefa sér gjafir. Hann vill heldur ekki að afmælisveisla verði haldin fyrir sig. „Þegar maður kemst á áttræðisaldurinn gerast ákveðnir hlutir. Einn er sá að maður hætt- ir að halda upp á afmælið,“ sagði Eastwood, sem vill miklu frekar fá sér rauðvínsglas með konunni og hafa það náðugt. Vill engin veisluhöld CLINT EASTWOOD Hollywood-goðsögnin verður áttræð á næsta ári en hefur engan áhuga á því að halda upp á daginn. Clooney bestur Nýjasta mynd George Cloon- ey, Up in the Air, var kjörin besta kvikmyndin af hinum virtu bandarísku samtökunum National Board of Review. Litið er á verðlaunin sem þau fyrstu stóru af þeirri verðlaunabylgju sem er fram undan. Þau þykja gefa góða vísbendingu um það sem koma skal því síðustu tvær myndir sem hafa verið valdar bestar af samtökun- um, No Country for Old Men og Slumdog Millionaire, voru báðar kjörnar bestu mynd- irnar á Óskarsverðlaununum. Clooney var einnig kjörinn besti leikarinn en í myndinni, sem Jason Reitman leikstýrir, leikur hann mann sem vinnur við það að reka fólk. Morgan Freeman var sömuleiðis valinn besti leikarinn fyrir hlutverk sitt í Invictus undir leikstjórn Clints Eastwood, var einnig verðlaunaður sem besti leik- stjórinn. Invictus fjallar um stuðning Nelsons Mandela, fyrr- verandi forseta Suður-Afríku, við ruðningslið landsins. GEORGE CLOONEY Nýjasta mynd George Clooney, Up in the Air, vann National Board of Review- verðlaunin. HVAÐ? HVENÆR? HVAR? Laugardagur 5. desember 2009 ➜ Tónleikar 15.00 Harmonikufélag Reykjavíkur verður með tónleika í Ráðhúsi Reykja- víkur. 16.00 og 21.00 Jólagestir, tónleikar Björgvins Halldórssonar í Laugardalshöll við Engjaveg í Laugardalnum, fara fram í dag. Nánar á www.midi.is. 17.00 Óratórían Messías eftir Händel verður flutt á tónleikum í Neskirkju við Hagatorg. Flytjendur eru Kór Neskirkju, Sinfóníuhljómsveit áhugamanna. 20.00 Söngvarar úr óperudeild Söngs- kóla Sigurðar Demetz flytja „Brúðkaup Fígarós“ eftir W.A. Mozart í Langholts- kirkju við Sólheima. Arnar Jónsson leik- ari flytur söguþráð milli atriða. 20.30 Megas heldur aðventutónleika í Bústaðakirkju við Tunguveg. Húsið verður opnað kl. 19.30. 21.00 Í Hallgrímskirkju við Skóla- vörðuholt fara fram fyrri jólatónleikar Mótettukórsins. Á efnisskránni verða tónlist eftir m.a. Palestrina, Gjeilo, Mor- tensen og Áskel Jónsson. 21.30 Tónleikaröðin Duplex fer fram á Batteríinu við Hafnarstræti og Sódómu Reykjavík við Tryggvagötu. Fram koma: Bloodgroup, Agent Fresco, Útidúr, Lára, Mikado, Me, the Slumbering Napeleon, Morðingjarnir, Koi og Pascal Pinon. Húsin verða opnuð kl. 21.00. 22.00 Baggalútur verður með jóla- tónleika á Græna hattinum við Hafnar- stræti á Akureyri. Húsið verður opnað kl. 21. ➜ Sýningar Í gallerí BOXi við Kaupvangstræti 10 á Akureyri hefur verið opnuð sýning sem fjallar um bækur, rithöfunda, skáld, prentsmiðjur og útgáfustarfsemi í Eyja- firði og Þingeyjarsýslum. Opið lau. og sun. kl. 14-17. Sunnudagur 6. desember 2009 ➜ Tónleikar 15.00 Ljótu hálfvitarnir verða með fjöl- skyldutónleika í Salnum við Hamraborg í Kópavogi. 17.00 Í Hallgrímskirkju við Skóla- vörðuholt fara fram seinni jólatónleikar Mótettukórsins. Á efnisskránni verður tónlist efitr m.a. Palestrina, Gjeilo, Mor- tensen og Áskel Jónsson. 17.00 Selkórinn heldur jóla- og aðventutónleika í Seltjarnarneskirkju við Kirkjubraut. 16.00 og 20.00 Söngfólk úr Biskups- tungum og kór Kristskirkju halda saman tvenna tónleika í Kristskirkju, Landakoti. 20.00 Aðventutónleikar Söngsveitar- innar Fílharmóníu fara fram í Langholts- kirkju við Sólheima. Ágúst Ólafsson syngur einsöng. Aðventutónleikar í Hjallakirkju við Álfa- heiði í Kópavogi. Kórin flytur fjölbreytta aðventu- og jólatónlist. ➜ Fjölskyldudagskrá 12.34 og 13.00 Í Nor- ræna húsinu við Sturlu- götu koma listamenn í heimsókn í hádeginu kl. 12.34, alla daga fram að jólum og verða með uppákom- ur. Í dag kl. 13 verður einnig boðið upp á upplestur fyrir yngri kynslóðina. Ragnheiður Gestsdóttir les fyrir börnin. 14.00 Fjölskyldudagskrá Í Þjóðminja- safninu við Suðurgötu. Farið í ratleik, leitað af jólakettinum, leynigestur og jólasýning. Nánar á www.natmus.is. Enginn aðgangseyrir. 15.00 Harmonikufélag Reyjavíkur og Víkin-Sjóminjasafnið efna til hátíðar á safninu við Grandagarð í tilefni af Nikul- ásarmessu. Harmonikuspil, marseringu og hringdans er meðal þess sem boðið verður upp á. ➜ Leikrit 15.00 og 18.00 Leikfélagið Peðið verður með tvær sýningar á kabarettn- um Grandlendingasögu eftir Jón Benjamín Einarsson. Sýningar fara fram á Grand Rokk við Smiðjustíg. Nánari upplýsingar á www.pedid.is. ➜ Upplestur 14.00 Boðið verður upp á upplest- ur úr barnabókum í Bókabúð Máls & menningar við Laugaveg 18. Upplýsingar um viðburði sendist á hvar@frettabladid.is. Á LANGRI LEIÐ JÓHANN G SENDIR FRÁ SÉR PLÖTUNA „Á LANGRI LEIД Þetta er fjórða sólóplata Jóhanns G. Jóhannssonar. Á plötunni eru 10 lög sem ekki hafa komið út áður og syngur Jóhann öll lögin sjálfur. Málverkasýning á vinnustofu í dag laugardag! Jóhann G. opnar vinnustofusýningu að Hólmaslóð 4, 2. hæð í dag kl. 15 Skráðu þig á póstlistann á heimasíðu Jóhanns til að fá boðskort og nýjustu fréttir. www.johanng.is
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.