Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 129
LAUGARDAGUR 5. desember 2009 97
„Við hættum að kalla þetta jóla-
markað og ákváðum að kalla þetta
frekar Aðfangamarkað, þar sem
fólk kemur og kaupir aðföng fyrir
jólin,“ segir Sigurbjörn Hjaltason,
oddviti Kjósarhrepps. Aðfanga-
markaðurinn fer fram í Félags-
garði í Kjós í milli klukkan 12 og
17, en þar munu heimamenn hafa
framleiðsluvörur sínar á boðstól-
um og kvenfélagið sjá um veitinga-
sölu. Þá verður einnig hægt að ná
sér í jólatré inni í Hvalfirði.
„Það er mikil umferð upp í jóla-
trjáaskóginn í Kjós og þá er kjör-
ið að fara á markaðinn í leiðinni,“
segir Sigurbjörn, en á boðstólum
verður meðal annars, nautakjöt,
tvíreykt hangikjöt, glingur úr
horni, málverk, jólakort og ýmiss
konar listmunir og nytjavara.
„Þetta var vel sótt í fyrra og
hefur alltaf verið að aukast. Fleiri
og fleiri úr sveitinni eru að bjóða
sínar vörur og það er frábært
að geta komið afurðinni til fólks
svona beint frá bóndanum“.
- ag
Jólamarkaður í Kjós
JÓLASTEMNING Í KJÓS Heimamenn
verða með framleiðsluvörur sínar á
Aðfangamarkaðnum í Kjós í dag.
Það versta sem getur hent
barnastjörnu er sennilega að
vera gripinn af löggunni með
allt niður um sig í klámbíói. Ein-
mitt þessu lenti Paul Reubens í
árið 1991.
Hann hafði slegið í gegn
snemma á níunda áratugnum
í hlutverki Pee Wee Hermans,
bæði í vinsælum sjónvarpsþátt-
um og í kvikmyndinni Pee Wee‘s
Big Adventure, sem Tim Burton
leikstýrði 1985. Eftir atvikið
hrundi heimur Pauls, þættirnir
voru teknir af dagskrá og leik-
fangabúðir fjarlægðu Pee Wee
Herman dót. Atvikið lagðist
þungt á leikarann og hann fór
huldu höfði árum saman. Nú er
hins vegar allt á uppleið og Pee
Wee hefur birst hjá bæði Leno
og Conan.
Með hjálp förðunarsnillinga
lítur hann ekki út fyrir að hafa
elst um einn dag. Í janúar fer
sýningin The Pee Wee Herman
Show á svið í Los Angeles og í
undirbúningi er ný kvikmynd
um ævintýri grallarans. - drg
Pee Wee
snýr aftur
PEE WEE HERMAN Leikarinn Paul
Reubens er þarna undir.
Nóg verður í gangi í versluninni
Havarí í Austurstræti í dag. Nýj-
asta plata Kimono er komin út og
ætlar sveitin að halda tónleika í
búðinni kl. 17. Myndlistarmaður-
inn Harry Jóhannsson hefur
bæst í hóp þeirra listamanna sem
eiga verk í Havarí. Þá hefur bók-
verkaverslunin Útúrdúr flutt inn
í verslunina. Útúrdúr var áður
með bækistöð í Nýló og er algjör
fjársjóðskista fagurra bóka.
Kimono
í Havarí
KIMONO Easy Music for Difficult People
er komin út.
Í dag er liðið eitt ár síðan Rúnar Júlíusson tók upp
á því að yfirgefa okkur.
„Það verður svo sem ekkert gert í tilefni þess
nema að taka til í stúdíóinu og bara verið á Skóla-
veginum með mömmu og svona,“ segir Júlíus
Guðmundsson, sonur Rúnars. „Við héldum vel
heppnaða uppskeruhátíð Geimsteins á Ránni
á fimmtudaginn. Pabbi hafði komið upp þeirri
hefð að halda þetta alltaf fyrsta fimmtudaginn í
desember.“
Bræðurnir Júlíus og Baldur halda merki Geim-
steins á lofti og gefa út þrjá titla í ár. Allir þrír
eru tvöfaldir geisladiskapakkar: Minningartón-
leikarnir um Rúnar frá því 2. maí, sex ævintýra-
plötur Gylfa Ægissonar á tveimur diskum og safn-
platan Geimsteinn 33 1/3.
Í vikunni kom út ljósmyndabókin Dagur með
Rúnari í hundrað eintökum. Í bókinni eru ljós-
myndir sem Þorfinnur Sigurgeirsson tók af Rún-
ari í ágúst í fyrra og birtist hluti þeirra í umslagi
safnpakkans Söngvar um lífið. - drg
Eitt ár frá andláti Rúnars
LIFIR Í TÓNLISTINNI Rúnar í Geimsteini í fyrra.
MYND/ÞORFINNUR SIGURGEIRSSON