Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 134
102 5. desember 2009 LAUGARDAGUR
FÓTBOLTI Hrunið á síðasta ári hafði
mikil áhrif á íþróttalífið í land-
inu og það sást hvað best á því að
knattspyrnuliðin hættu nær öll við
hinar árlegu æfingaferðir sínar.
Aðeins þrjú félög – FH, Keflavík
og ÍBV – lögðu út í þann kostnað.
Þessi áhrif voru ekki varanleg
því nú er fastlega búist við því að
um fimmtán félög leggi land undir
fót næsta mars og skelli sér í sól-
ina þar sem þau munu æfa við
bestu mögulegu aðstæður.
„Ég er líklega kominn með átta
til tíu lið hjá mér og fleiri eru að
skoða málið. Það er ekki óvarlega
áætlað að fimmtán lið fari út,“
sagði Lúðvík Arnarson hjá Vita-
ferðum. Lúðvík býst við því að
flest liðin muni fara til Algarve.
Flest liðin í Pepsi-deild karla
stefna á að fara í æfingaferð, ein-
hver kvennalið eru einnig að skoða
ferð og svo jafnvel einhver lið í
neðri deildunum.
„Það er þannig í öllum tilvikum
að það eru leikmenn sem safna. Ég
veit ekki um neitt félag sem borg-
ar fyrir sína leikmenn,“ sagði Lúð-
vík en leikmenn safna peningum á
herrakvöldum, með getraunaleikj-
um og öðrum fjáröflunum.
„Það má ekki gleyma því að
góður leikmaður á Íslandi kost-
ar sitt. Svona ferð fyrir heilt lið
kostar ekki mikið meira en góður
leikmaður að ég tel. Ég held að
margir þjálfararnir myndu segja
að ein svona vikuferð væri meira
virði en góður leikmaður. Hún
gerir nefnilega heilmikið fyrir
liðin,“ segir Lúðvík en af hverju
fóru svona fá lið fyrir síðasta tíma-
bil?
„Það ríkti náttúrlega algjör
svartsýni á þeim tíma. Menn þurfa
að bóka ferðirnar í desember og
janúar og það var enginn að fara
neitt á þeim tíma í fyrra. Óvissan
var svo mikil að það þorði enginn
að hreyfa sig neitt. Félögin sögðu
svo reyndar í mars að það hefðu
verið algjör mistök að fara ekki.
Þessi óvissa og hræðsla er ekki
lengur fyrir hendi og menn orðnir
vanir þessu gengi,“ segir Lúðvík
en slík æfingaferð kostar um 140
þúsund krónur á manninn. Leik-
menn eru oftast ekki lengi að safna
fyrir lunganum af þeirri upphæð.
henry@frettabladid.is
Æfingaferð kostar sama og
góður leikmaður í eitt ár
Íslensk knattspyrnulið munu fjölmenna í æfingaferðir á ný á næsta ári. Aðeins
þrjú lið fóru utan í æfingaferð fyrir síðasta tímabil en þau verða líklega um
fimmtán talsins að þessu sinni. Leikmenn safna sjálfir fyrir ferðunum.
Í ÞÁ GÖMLU GÓÐU DAGA Íslensk knattspyrnulið hafa farið utan til Algarve í æfinga-
búðir í mörg ár. Þessi mynd er frá árinu 2004 og er tekin fyrir leik FH og Vals.
MYND/EYJÓLFUR ÓLAFSSON
HANDBOLTI Deildarbikarkeppni HSÍ, sem hefur farið
fram síðustu tvö ár milli jól og nýárs, verður að
öllum líkindum slegin af á stjórnarfundi HSÍ sem
fram fer næsta þriðjudag.
„Það er afar líklegt að þetta mót verði slegið af.
Þessi keppni var upphaflega sett á þar sem það var
engin úrslitakeppni en nú er hún komin aftur og þá
er þessi keppni í raun orðin óþörf,“ segir Einar Þor-
varðarson, framkvæmdastjóri HSÍ, en Evrópusæti
var í boði fyrir sigurvegara keppninnar. Um það
sæti verður nú keppt í deildarkeppninni.
Ekki hjálpar til að eina leiðin til að fá þetta í sjón-
varpi er að spila á annan í jólum og 27. desember.
Það vekur athygli hversu seint þessi ákvörðun er
tekin og hefur Fréttablaðið heyrt óánægjuraddir frá
Akureyri vegna málsins. Vilja einhverjir þar meina
að hætt hafi verið við keppnina svo HSÍ þurfi ekki
að borga flug og uppihald fyrir lið Akureyrar sem
hefði líklega orðið með í keppninni.
„Það er ekkert slíkt í gangi. Ég vísa slíkum sögu-
sögnum algjörlega á bug,“ segir Einar.
- hbg
Breytingar á mótafyrirkomulagi HSÍ um jólin:
Deildarbikarinn verður sleginn af
FÓTBOLTI Chelsea fer inn í helg-
ina með fimm stiga forskot á
toppi ensku úrvalsdeildarinnar
en Man. Utd situr í öðru sæti.
Fram undan hjá Chelsea er
próf á útivelli gegn jafnteflis-
kóngunum í Manchester City.
Chelsea hefur gengið lygilega vel
með City á síðustu árum og unnið
átta síðustu leiki liðanna.
Óvissa er með þáttöku Shauns
Wright-Phillips, leikmanns
Manchester City, í leiknum en
hann meiddist gegn Arsenal í vik-
unni. Á meiðslalista Chelsea eru
Salomon Kalou, Jose Bosingwa
og Alex.
West Ham fær Manchester
United í heimsókn. Má búast við
fjörugum leik enda hefur verið
skorað mest á Upton Park í vetur.
United vann báðar viðureignirn-
ar í fyrra.
Carlton Cole og Valon Behrami
verða ekki með West Ham. Edwin
van der Sar gæti komið aftur í
mark United. - hbg
Áhugaverðir leikir í enska boltanum um helgina:
Uppgjör ríku liðanna
HARKA Joe Cole og Vincent Kompany berjast hér í fyrra. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
LEIKIR HELGARINNAR
Laugardagur:
Portsmouth - Burnley
Arsenal - Stoke City
Aston Villa - Hull City
Blackburn - Liverpool
West Ham - Manchester United
Wigan - Birmingham
Wolves - Bolton
Manchester City - Chelsea
Sunnudagur:
Everton - Tottenham
Fulham - Sunderland
Ef þú notar MasterCard kort frá Kreditkorti gæti barnið þitt upplifað ógleymanlega
stund. Tveir krakkar á aldrinum 7-9 ára fá að fara ásamt fylgdarmanni á leik í
Meistaradeild Evrópu í Englandi 2010 og leiða leikmann inn á völlinn.
Fjölmargir skemmtilegir aukavinningar
SKRÁÐU ÞIG TIL LEIKS Á WWW.KREDITKORT.IS
UPPLIFUN SEM ALDREI GLEYMIST
BARNIÐ ÞITT GÆTI LEITT HETJUNA SÍNA INN Á
VÖLLINN Í MEISTARADEILDINNI