Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 2
Tlöni
auðveldar hárlagninguna
Hárið verður glæsilegt
á erlendum
Ungfrú Island
I
hlýtur verðug
verðlaun
i
, , j
„Ungfrú Island“ fær að verðlaun-
um ferð til Bandaríkjanna til þátt-
töku í keppninni Miss International
á Langasandi, — þriggja vikna uppi-
hald að kostnaðarlausu og skotsilfur,
er samsvarar 100 Bandaríkjadölum.
Þar að auki fylgir kvöldkjóll og und-
irfatnaður. Ferðinni verður hagað
þannig: Farið verður með flugvél
Loftleiða til New York, staðið þar við
í tvo daga og síðan farið með þotu
frá TWA og flogið með viðkomu í
Pittsburg, Chicago og Las Vegas til
Los Angles. Þaðan er flogið til Long
Beach, sem er klukkutímaferð. Með-
an á dvölinni á Langasandi stendur,
verður farið í heimsókn í kvikmynda-
ver Twentieth Century Fox og
Columbia, og sú heimsókn stendur
yfir í tvo daga. Einkabill með nafni
stúlkunnar verður til táks allan tím-
ann. Það er nýjasta „módelið" af
Dodge, og einkabílstjóri fylgir að
sjálfsögðu. Dvalizt verður á bezta
hóteli borgarinnar, Lafayette.
HÁRIÐ HELDUR SÉR MJÖG YEL MILLI ÞYOTTA
^LLAR VILJUM við að hárið
verði eins og það er lagt og
haldist þannig milli þvotta. Ef við
breytum hárgreiðslu, þá þarf
nýja greiðslan að endast vel.
Þess vegna er nauosynlegt að fá
sér perm og það er TONI sem
leysir galdurinn. EVEN-FLO hár-
liðunarvökvinn er það eina, sem
gerir lagninguna auðvelda. Setur
glæsibrag á hárið.
Svo auðvelt. Fylgið aðeins hin-
um einföldustu leiðbeiningum, sem
eru á íslenzku, og hárlagningin
verður fullkomin, og endingargóð.
Gentle fyrir auðliðað hár.
Super fyrir erfitt hár.
Regular fyrir venjulegt hár.
Númer tvö
til Parísar
og Flórída
önnur verðlaun: Ferð til Miami í
Flórída og þátttaka í keppninni Miss
Universe 1961. Ókeypis dvöl í hálf-
an mánuð, skotsilfur, er samsvarar
100 Bandaríkja-dölum. Ferðinni verð-
ur hagað þannig: Farið með íslenzkri
flugvél til Evrópu og síðan til Paris-
ar og dvalizt á Hótel Napóleon í
París í þrjá til fjóra daga, síðan far-
ið með Boeing 707 þotu frá Air
France til New York og staðið þar
við í þrjá daga. Þaðan verður folgið
suður til Miami 1 Flórída.