Vikan


Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 4

Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 4
SMÁSAGA EFTIR OLLE VING. Hann var fangavörður og auk þess kvæntur. Þetta er ekki glæsi- leg byrjun, en samt er þetta róman- tísk saga. Kvæntur fangavöröur á sína drauma eins og aðrir. Líf hans var grátt og tilbreytingarlaust: kaldir, dimmir gangar, auðir og kaldir steinveggir, þar sem þögnin ríkti, ekkert nema reglur og fyrir- skipanir, og andlit forstjórans var eins og malargryfja. Þrátt fyrir þetta átti fangavörð- urinn sitt draumaland. Hann dreymdi um lítið hús uppi í sveit. Þar átti að vera lítil grasflöt og hænsni. Eftir tíu ár kæmist hann á eftirlaun. En meðan hann beið þess, að draumurinn rættist, var hann sem sagt kvæntur fangavörður. Hvernig konan hans leit út? Það er ekki svo auðvelt að lýsa því. Hann hafði verið svolítið skotinn í henni í tunglsljósinu í gamla daga, en varla hefur hann kjassað hana mikið, þegar tunglið bar fulla birtu, því að satt að segja var hún engin fegurðardis. Fangavörðurinn átti hálfs dags frí einu sinni í viku, og einu sinni í mánuði átti hann fri allan daginn. Þá var hann laus við lyklaglamrið, þetta eilífa ráp á göngunum, reglur og fyrirskipanir, glæpamenn og strokufanga, — sem sagt fullkom- lega frjáls. Á sumrin vildi hann helzt eyða tómstundum sínum í skóginum, kveikja í pípunni sinni og hlusta á fuglasönginn. Á veturna gerði hann sig ánægðan með að sitja í þægilegum hægindastól við ofninn. Hann þráði frið og ró. Og hver getur láð honum það? En það var nú öðru nær en hann sæi þessa hóg- væru ósk sína rætast. Og nú skuluð þið he-yra, hvernig þetta atvikaðist. Á miðvikudaginn fékk hann frí klukkan eitt. Þegar hann kom heim, tók hann af sér flibbann og fékk sér matarbita. Þá sagði konan hans: — Láttu á þig flibbann, Albert. Hann svaraði: — En ég var að taka hann af mér. — Ég átti við hreinan flibba. Og hann svaraði: — Þetta er frídagurinn minn. Ég ætla að vera flibbalaus, njóta lífsins og hvíla mig. Þetta hefur verið erfiður dagur. Fangarnir hafa verið óstýri- látir, og ég er dauðþreyttur. Hún endurtók: — Settu upp flibbann, Albert. — Og lífið er stundum svo skrýtið og óútreiknanlegt. Þetta endaði með þvi, að Albert þvoði sér, hafði fataskipti og setti upp hrein- an flibba. Siðan sagði hún: — Mér finnst við ættum að fara í búðir í dag. — Og það gerðu þau. Hann gat ekki hugsað sér neitt leiðinlegra en rápa i búðir og þjarka um verðið. Þegar þau voru nýgift, hafði hann sagt henni sitt álit á þessu í fáum orðum. Hún hafði svarað með tveggja tíma ræðu. Þá var það út- rætt mál, og þau fóru í búðir. Að þvi loknu fóru þau í bíó. Honum fannst þreytandi og leiðinlegt að horfa á kvikmyndir, en henni fannst það gaman, og það réð úr- slitum. Og þannig liðu hinir viku- legu frídagar hans. En þegar hann átti frí alian daginn, sem sé einu sinni í mánuði, fóru þau til borgar- innar, þar sem foreldrar hennar áttu heima. Hann kunni ekki við sig i borginni, og skyldfólk hennar fór í taugarnar á honum. En samt fór hann með henni. Fyrir mörgum árum hafði hann reynt að impra á þessu við hana, en það var alveg tilgangslaust. Hún hafði nú einu sinni ákveðið þetta, og þar við sat. Allir furðuðu sig á, hversu mikla samúð hann hafði með föngunum. Og tíminn leið. Nú voru aðeins tíu ár, þar til hann kæmist á eftirlaun. Einn góðan veðurdag sagði hann henni frá framtíðardraumnum um litla húsið uppi í sveit, grasflötina og hæsnin. Meðan hann skýrði henni (Framhald á bls. 35). Ingimar Sveinbjörnsson, flugstjóri hjá Flugfélagi íslands — lengst til vinstri á myndinni — segir vinum sínum, hvað það sé gaman að fljúga. KVOLD Hátt dunar dansinn. f Klúbbnum er dansgólfið ekki eins örlítið og víða annars staðar. <1 Setustofan við arin- inn er einn vinsæl- asti staður hússins. f miðju eru þær syst- ur Edda Guðmunds- dóttir frá Reykjum í Hrútafirði og syst- ir hennar, Ingunn. 4 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.