Vikan


Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 6

Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 6
Alltaf stendiir mér andllt þitt fyr- ir hugskotssjónum, Sén-Lí, — œtið, þegar mér verður hugsað til Shang- hai. Þú lyftir höfði úr rökkrinu og reynir að brosa. Allt i einu opnar þú munninn, líkt og þú viljir æpa. En hann gefur ekkert hljóð af sér, forljótur gúll með gulum tannabrot- um. Og út úr þessum gúl tekur blóð að vætla. Þá hneigir þú höfuð þitt aftur, og ég sé ekkert nema beran og hnöttóttan skallann ... Þegar ég kom heim, undir morg- un að öllum jafnaði, rakst ég alltaf á þig. Það var óhreinn krókur i stigaganginum minum. Þar varstu vanur að sofa. Þetta var stór skrifstofubygging, og dyravörðurinn fleygði þér iðulega út, ef þér tókst ekki að múta honum með nokkrum koparskildingum. En þér tókst alltaf að læðast inn aftur, með einhverjum ráðum. Það var sifelld barátta á milli ykkar. Og hvað gaztu annars gert? Gamall dráttardrengur liefur enga von um að eignast sæng. Og ekki gaztu sof- ið í vagninum, þvi að hann tókstu á leigu af japönskum fjárplógs- manni tólf stundir sólarhringsins. Þann tíma varstu á hlaupum inn- an um háreysti borgarinnar, Shang- hai hinnar kaldrifjuðu, til þess að vinna þér inn fyrir einni skál af hrísgrjónum eða hálfóætum soja- baunum. Kæmi það fyrir, að þú skilaðir kerrunni einni minútu of seint, veittist starfsfólk vagneigand- ans að þér með höggum og slögum. Þú varst svo fátalaður við mig, — jafnvel þótt ég reyndi að toga út úr þér með nokkrum skildingum ögn af enska hrognamálinu þínu, — lézt þig heldur dreyma. Það var kannski rétt af þér. Draumarnir voru að minnsta kosti fallegri eD allt þitt lif að öðru leyti. Vist un» það. ÞVÍ að eitt sinn, er ég spurði um drauma þína, varðstu blátt áfram mælskur. Þá sagðirðu mér frá æsku þinni, í fátækt og vesöld. En ein- hvern tíma gaztu tekið þér fyrir að fara í teningaspil og syngja gömlu ljóðin hans Li-Tai-Pe. Löngu horfinn ilmur af möndlublómum, asaleur með eldrauðum krónum, rammur þefur frá runnum tejurt- arinnar, þetta var það, sem þig dreymdi í myrkum og fúlum stiga- gangi inni í miðri heimsborginni.. 6 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.