Vikan


Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 26

Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 26
< > -o _J 1/5 •o 'LU D O O 5 < D O z ■O o z cc D SZ X >41 CQ Hátíðasvipur á helmillnu hvern vlrkan dag fyrlr LITKRYSTAL FRÁ TÉKKÓSLÓVAKIU í hverri sérverzlun er í boðstólum úrval krystalsmuna, fjölbreyttra að litum og forml, sem bera vitni þeirri fullkomnun sem bxheimskir gleriðjumenn hafa náð fyrir erfðir og reynslu I margar kynslóðir. Sérhver hlutur lofar þar meistara slnn. Sérhver slfkur hlutur er heimilisprýðl GLASSEXPORT PRAG-LIBEREC-TÉKKÓSLÓVAKlA DOKAÐ VIÐ í SHANG- HAI. Framhald af bls. 7. mér á eftir þeirri litlu. Ég gekk nokkrar götur á enda, fór fyrir nokkur horn. Alls staðar mannlaust. Til hvers var ég eiginlega að hlaupa þetta? Bjóst ég í rauninni við að ná i hana? Var ég henni annars alvarlega reiður? Hver vissi, nema stúlkan vœri nú hamingjusöm? Hana hafði kannski alla ævi langað til að eign- ast armbandsúr, hafði ef til vill átt um það hljóða drauma eins og þú þína, Sén-Lí? Það hafði lika áreiðanlega legið þarna á glámbekk og tifað svo tælandi framan í hana, litla greyið ... Ég var þegar farinn að fyrirgefa telpunni, — en ekki Feng. Ég sneri hægan heim á leið með hendurnar í vösunum. Ljósið á einni götuluktinni logaði með rykkjum. Kettir þöndu sig yfir götuna. Feitar rottur hlupu í ræsunum. Þarna sátu þær fimmtán saman í hálfhring. Svartur kekkur af rottuskrokkum. Þær teygðu fram trýnin og þefuðu, klóruðu svo ofan í jörðina. Þær voru að sækjast í eitthvað. Allt í einu sá ég við daufa birtu götuljóssins, hvað það var, sem þær veðruðu eftir: dvínandi blóðflekkur, brenndur í malbikið. E' |ns og dökkrauð blómkróna, sem breiðir úr séi r_____ Ég þurfti ekki einu sinni að lita upp. I íg vissi, hvar ég stóð: í jaðrinum á Hong-Kon: g-w^gi. Og vegna þess að ég sá þig nú afl.ttr ífyrir sjónum mér, Sén-Li, gat ég ekki farið a® segja neitt, þegar ég hitti Feng aftur. Hanri ssát þar í horninu við stigann að venju og reykli. :Síðan leit hann upp og sagði: — Viltu ekki gefa mér einn doFzar, Iherra? Ef þú gæfir mér einn dollar, gæ;ti ég ftekið vagninn hans Sén-Lis á leigu ... Hvað átti ég að segja? Ég var aUt íi œinu orðinn svo innlifaður þessu ökutiæki. É;^g greip niður í vasann. Feng rétti höndina áfjáður eftir penicngnum, reis siðan á fætur og reikaði þeyjanóii ibrott án þess að líta um öxl. Þegar hann var íkominn yfir götuna, stóð hann um stund á báðium :átt- um, yppti svolítið öxlum og hvarf þvví næst ofan i kjallara, sem þar var nærri. Ég vissi, hvað til stóð. Ég kannast v'i'ð þessa kjallara. Heill dollar, — fyrir það g"át hann keypt sér fram úr skarandi góSan dranm. Það var ekki við öðru að búast. Mátt ópíumjurtarinnar fær enginn staBizt ... Hvernig væri líka annars hægt að þreyja þorrann og góuna, þola annað eins Iífr þegar sú hræðilega vissa er vakandi, að bráðlega, mjög bráðlega, endar það í dökkrauðri blóm- krónu á biki götunnar ... Hvenær sem ég sé andlit þitt fyrir sjónum mér, Sén-Lí, verður mér hugsað til Shanghai, — borgarinnar, sem ekkert þekkir til réttlætis og mannúðar, þar sem göturnar roðna af dauðablóði. MÓÐIR EÐA VALKYRJA. Framhald af bls. 14. koma barni áfallalaust til fulls þroska. Svo langt er uppeldið orðið á eftir kröfu timans, að mannkynið getur ekki unað þeim óskapnaði til lengdar. Áhyggjum konunnar er því elcki lokið, þótt hún losni undan oki ótlmabærrar frjósemi. Ungbarnasjúkdómum, sem áður sátu um barnið, verður bægt frá, en sálkreppur vegna siaukinnar spennu, afbrot og aðrir menningar- sjúkdómar munu sækja fastar á uppvaxandi kynslóð en við vitum dæmi til nú. Það Grettis- tak, sem 'konu framtlðarinnar er gert að lyfta, heitir uppeldisönn. Vopnuð mun hún ekki valda því. HEIMILI FRAMTÍÐARINNAR. Heimilið, sem um aldaraðir var einfært um uppeldi barnsins, er að raskast og glatar smám saman beinum áhrifum sínum á þróun samfé- lagsins. Það er ekki aðeins, að breyttir atvinnu- hættir dragi áhuga konunnar frá heimilinu, heldur grefur gengi hennar á atvinnumarkaðn- um undan hefðgrónum myndugleik heimilis- föðurins Hann er ekki lengur eina fyrirvinnan. Heimilið þarf ekki að treysta á hann. Iíonan get- ur, hvenær sem er, tekið við atvinnuhlutverkinu. En við allt þetta raskast innri gerð heimilisins, og það lendir i upplausn, meðan það hefur ekki mótazt I nýju formi. Þarna er framtiðarhlutverk. Það þarf að skapa heimilið að nýju, — nýtt form og nýjan anda, — svo að það valdi hlutverki sínu I menningar- þróun framtíðarinnar. í stað þeirra anna, sem framleiðslutækni og samfélagshjálp létta af því, leggur það aukna rækt við persónuleikann, verður honum vaxtarreitur og griðastaður. Vax- andi tækniframleiðsla eykur hraða starfsins sí- fellt og herðir á taugaspennu starfsmannsins. Hann þarfnast griðastaðar, þar sem hann er sjálfs sín ráðandi og getur notið tómstunda sinna á persónulegan hátt, í samlífi við sina nánustu, i frjálsu viðfangi við hugðarefni sin. Sú þörf er jafnbrýn fyrir konu, mann og börn. Þar sem heimilinu er fórnað I þágu framleiðslu- áætlana, verður maðurinn vinnudýr, sem lætur sér nægja ask og bálk. Tómstundirnar geta orðið eitt hið alvarlegasta vandamál framtíð- arinnar, nema heimilið verði konu og manni f)g börnum öruggt athvarf og griðastaður, þar se>m þau fá notið ástúðar og hlýju. Heimilið þarf að verða helgidómur persónu- leikans, sem hrammur ópersónulegrar sam- félag.sskipunar dirfist ekki að gripa inn I. Það er fra'mtíðarhlutverk konunnar að skapa slíkt heimili, sem hefur gildi sitt ofan við matseld, klæðagerð og barnakennslu. Heimili fortiðar- innar var framar öllu fæðingarheimili, verk- stöð og skóli. Heimilis framtíðarinnar bíður annað hlutverk: verndun persónuleikans gegn tærandi áhrifum tæknimenningarinnar. * Látið mig heyra enn einu sinni, að þér hótið .að fara, ef þér ekki fáið launahækkun. 26 V.IKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.