Vikan


Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 16

Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 16
Fléttað belti Hið nýjasta núna er að hafa belti á peys- unum og flétta þau sjálfur. Ég sagði flétta, ekki prjóna. Þetta er t. d. tilvalið, ef peysan er úr mohair-garni, og auðvitað þarf maður helzt að hafa prjónað peysuna sjálfur, þannig að mað- ur eigi garnafgang. Þið fáið ykkur fimm langa garn- enda og hafið hvern enda margfaldan, svo að beltið vefði nógu þykkt. Á endana bindið þið svo hnút og festið siðan ailt á stólarm eða eitthvað þess háttar. Nú fléttið þið svona 1,25 m langa gjörð (sjá teikningu) og bindið hana síðan lauslega um mittið. Þetta var nú allt og sumt. Einfalt, en fallegt og ódýrt Hver kannast ekki við það að eiga nokkrar fallegar mynd- ir liggjandi niðri i kommóðuskúffu, sem alltaf á að hengja upp, en ekkert orðið úr? Það geta verið teikningar, ljós- myndir eða myndir úr vikublöðum, sem maður hefur freist- azt til að klippa út, og margt fleira. Allt saman eru þetta hlutir, sem maður gæti vel hugsað sér að hafa uppi á vegg að minnsta kosti dálítinn tima, en tímir ekki að kaupa utan um dýran ramma. Svo festið þið kannski myndina upp með teiknibólum, en þá eyðileggjast þær fljótlega, og veggurinn hefur ekki heldur gott af þvi. En hvernig væri að reyna upplímingsaðferð- ina? Hérna eru leiðbeiningar um hana, gefnar af faglærð- um manni. Fyrst verðið þið ykkur úti um eina örk af þunnum pappa til að líma myndina á og eina örk af þykkum pappa, sem settur er á bakhliðina, einn- ig lítinn pappabút til að festa bandið á. Þá eru það bréf- klemmur, tvíarma, með bólum á endunum, glerplata (24x30 cm, kostar 6—7 krónur), dálítið snæri eða band og lím. Einnig þurfið þið þykkt, litað limband í kantinn á rammanum. En athugið, að það límist svo vel, að maður verður að vera alveg öruggur um, hvar maður ætlar að hafa það, áður en maður byrjar að lima. Þá byrjið þið á því að lima myndina upp á þunna papp- ann, þannig að alls staðar sé bil fyrir utan. Þegar þið hafið komizt að niðurstöðu um það, hve stór myndin á að vera, leggið þið leið ykkar í fyrirtækið Glerslípun og spegla- gerð og kaupið gler. Þykka pappann skerið þið svo jafn- stóran glerinu, og aftan á hann límið þið eða saumið litla bútinn, eftir að þið hafið fest bréfklemmurnar í (sjá teikn- ingu). Á bréfklemmurnar festið þið bandið, sem myndin á að hanga i, en eigi hún að standa, er fótur festur á pappabútinn. Nú leggið þið myndina fyrir framan ykkur og glerið ofan á, og siðan er þetta límt sam- an með límbandinu. Það er auðveldast að byrja á bak- hliðinni og snúa svo við og1 beygja bandið yfir á fremri hliðina. Hornin má skreyta með aukaþríhyrningum af bandinu. Það er skemmtilegt að búa til ramma á þennan hátt, og þar sem þetta er ódýr ánægja, viljum við mæla með aðferð- inni. Reglusemi Allar stúlkur þekkja það, þegar þær koma þjót- andi heim, henda yfirhöfninni og töskunni í for- stofuna og þjóta inn í herbergi. Blússunni er hent til hægri og pilsinu til vinstri, skónum undir rúm og undirkjólnum á stólinn. Hvar er nú blái kjóll- inn? Og hvers vegna vantar alltaf hnapp ein- hvers staðar, þegar maður er að flýta sér? Hvar er rauða slæðan, og ó, hamingjan góða, ma-a-amma, hefurðu séð svörtu skóna mína? Og loks kemst maður út um dyrnar, rauður í framan af áreynslu, og eftir sig hefur maður skilið vigvöll og umstang, sem sjálfur Napóleon hefði verið ánægður með. En hann ætti heldur að skammast sorgmæddur yfir því, hvernig ungar stúlkur meðhöndla föt sin oft og tiðum. Vié erum svo vön fötum, sem eru falleg, Þægileg og hentug, að við of- metum eiginleika þessara undraefna. Nælon, terýlen, da- kron, orlon, banlon og ókrumpandi baðm- ull, — allt á að með- höndla gætilega. Það er ekki hægt að henda sólplíseruðum terýlenpilsum á stól og búast svo við því, að plíseringarnar séu alltaf eins og nýjar. Pilsið á að hengja á herðatré og gæta þess vel, að plíseringarnar fellist rétt, og helzt eigið þið ekki að ganga lengur i pilsinu en einn dag í einu. „Hvild" er nefnilega mikilvægt atriði í meðferð á fötum. Ágætt er að kaupa klemmuherðatré, sem notuð eru fyrir herrabuxur, fyrir pils. 1 Þau getið þið hengt fleiri en eitt pils i einu. Annars eru herðatré mjög mismunandi í laginu, og gott og vel lagað herðatré skiptir miklu fyrir kápuna. Þegar kápan er vel hengd upp, á að hneppa henni og slétta úr kraganum, tæma vasana og taka burt hanzka og annað slikt. Hversdagskjólana á að bursta og leggja yfir plastslá. Síðbuxurnar á að hengja upp á herðatré eins og pilsin. Betri kjólana er gott að setja í stóra plastpoka, viðkvæm efni skemmast fljótt á því að þvælast fram og til baka í skápnum. Eina stúlku könnumst við við, sem er mjög hrifin af pokakerfinu. Á hverju hausti setur hún sumarföt sína I svona poka og hengir þá innst i skápinn, og á vorin skiptir hún og setur vetrarfötin í staðinn. Hún hengir heldur aldrei peysurnar sínar á herðatré. Þegar búið er að þvo þær eða hreinsa, eru þær brotnar vel saman og settar í plastpoka. Blússur sem þarf ekki að straua, nælonundirföt, og nælonsokka á svo að þvo á hverju kvöldi, ekki aðeins af því, að það er huggulegra, heldur halda þau sér miklu betur. Ef maður ætlar að halda uppi reglu í skápum sinum og skúffum, ríður á að hafa „system“ á öll- um hlutum. Undifötin er bezt að flokka og raða upp, hverri tegund fyrir sig, og ef maður hefur mikla þolinmæði, er gott að binda silkiband um hvern bunka. Það lítur mjög skemmtilega út. Sokkapokann festum við á herðatré innan á skáp- hurðina, og öll belti hengjum við á sama stað, og klúta vefjum við saman, svo að þeir séu ekki krumpaðir, þegar á þarf að halda. Hanzka og húf- ur geymum við í plastpokum. Ef ekkert snyrtiborð er til, verður að nota efstu kommóðuskúffuna fyrir snyrtivörur og smádót. Það mundi vera til mikillar hjálpar, ef hægt væri að fá bróður sinn eða föður til að skipta skúffunni í smáhólf með þunnum krossviði. En einnig má notast við litlar pappaöskjur, sem búið er að taka lokið af. Þær festið þið með teiknibólum í botn skúffunnar, og þá ætti að vera auðvelt að hafa reglu á hlut- unum. Skórnir eru alveg saga út af fyrir sig. 1 þá á alltaf að stinga tréiistum, og það á að hreinsa þá, áður en þeir eru settir á sinn stað. Það er rétt að ráðfæra sig við búðarstúlkuna, þegar maður kaup- ir skó, svo að maður fái alltaf réttan skóáburð með sér heim. Skó á alltaf að laga til, eftir að maður hefur notað þá, og þeir glansa eins og nýfægðir túskildingar, ef þeir eru pússaðir með flauelstykki. Gamlan skóáburð má fjarlægja með tetraklór, og óhreinindi á rúskinnsskóm má fjar- lægja með þar til gerðum burstum. Séu skórnir blautir, á að fylla þá út með dag- blöðum og leyfa þeim að þorna smám saman. Og munið að fara nógu fljótt til skósmiðsins, Það borgar sig alltaf. Það tekur tíma að fara vel með föt sín, en það borgar sig. Ef að þið hafið ekki ráð á því, að kaupa ykkur endalaust kjóla, dragtir og kápur, mun það gleða ykkur að lesa það sem Dior nr. 2 Yves Saint-Laurent, sagði dag nokkurn við vinkonu sína. — Ef að ég teikna fyrir þig reglulega einfaldan kjól, án alls íburðar og klassiskan í sniðinu, er það nóg til að gera Þig smart og áberandi, með því móti, að þú út- vegir þér rétta hluti til að hafa með, við hvert tækifæri. Og það sem átt er við með rétt- um hlutum til að hafa með, er fyrst og fremst falleg taska, vel valdir hanzkar og skór, „raffiner- aðar“ slæður, finir sokkar og góð- ar snyrtivörur. Meðal þessara smá- hluta, viljum við halda Því fram, að það sem að tízkukóngurinn reikni sem mikilvægast sé slæð- an. Slæður er nefnilega hægt að nota til svo margs, Þær geta gefið fötunum glæsilegan svip. Svo ef að þið hafið ekki ráð á að kaupa ykkur kjól, getið þið að minnsta kosti keypt ykkur slæðu og vel á minnst, „rétta slæðu“ úr alsilki. handsaumaða og í fallegum lit- um . . . Finnst manni sjálfum, að maður sé ekki reglumannskja í eðli sínu, er auðvelt að þvinga sig til þess. Fyrst er það aðeins kraftur og ákveðni, sem vantar, en síðan verður það að vana og það góð- um vana. ★ Skinnbætur Þessar hentugu skinn- bætur, sem meðal annars eru notaðar í olnbogabæt- ur, eru oft ekki eins hent- ugar, þegar á að fara að sauma þær, þar sem skinn- ið er oft of hart til þess, að unnt sé að stinga i það. En ef þið stillið saumavél- ina á stærsta spor, áður en þið byrjið að sauma, og saumið svo allan hring- inn með engan tvinna í vélinni, myndast regluleg- ar holur í skinnið. Og þá saumið þið bótina. Nú er auðvelt að sauma þetta í hendinni með því að fara upp og niður um götin. Leðurbótin verður með þessu móti bæði finlega og vel fest á. 16 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.