Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 9
KEPPT UM ÞRJÁ TITLA
Sú er kjörin verður „Ungfrú Island
1961“, mun um leið verða Fegurðar-
drottning Reykjavíkur, verði hún
þaðan. Verði „Ungfrú ísland 1961“
annarsstaðar af landinu, mun sú
efsta úr Reykjavík hljóta titilinn.
í sambandi við úrslitakeppnina mun
einnig verða kjörin bezta ljósmynda-
fyrirsætan 1961.
Hér fer fegurðarsamkeppnin af stað, eins
og boðað hefur verið í þrem undanförnum
blöðum. Dómnefnd keppninnar hefur fengið
margar og góðar ábendingar og allar líkur
til þess, að ekki verði rúmsins vegna í blað-
inu, hægt að sinna þeim öllum.
Anna Harðardóttir, sem fyrst er í röð-
inni af keppendum í fegurðarsamkeppninni
1961, er Reykvíkingur að uppruna. Hún er
að verða átján ára gömul, dóttir hjónanna
Ingibjargar Oddsdóttur og Harðar Þórðar-
sonar, skrifstofustjóra. Anna er ljós yfir-
litum, með ljóst hár og gráblá augu. Hún
hefur numið við gagnfræðaskóla Vestur-
bæjar, en auk þess farið til Englands og
dvalið þar við nám í ensku. Hún hefur
líka verið i Danmörku og talar dönsku.
Áhugamál hennar eru fyrst og fremst þau,
að sjá sig um í heiminum og komast á skóla,
þar sem hún getur lært snyrtingu. Hún
les mikið í tómstundum, aðallega sakamála-
sögur eftir Agötu Christie.
Anna er 170 cm. á hæð. önnur mál: mitti
21% tomma, brjóst 34 t., mjaðmir 35 t.
og hálsmál 12 tommur.