Vikan - 23.03.1961, Blaðsíða 12
TÓmstundir
ÞaS er alltaf gaman að hafa til-
tæka leiki í þau skipti, þegar margt
er samankomið og eitthvað þarf um
að vera. T.d. er anzi skemmtilegur
leikur, sem er í því fólginn, að hver
skrifar eina ljóðlínu á blað og lætur
svo næsta hafa það og sá á að bæta
við einni Ijóðlínu og þannig koll af
kolli, þangað til að allir hafa skrifað
á öll blöðin. Þá er sá fenginn til að
lesa skáldskapinn upp, sem hæfastur
til þess er talinn. Það er nokkurn-
veginn öruggt, að það verða skemmti-
leg kvæði. Annar leikur sem getur
verið mjög skemmtilegur er þannig
að öllum er fengið blýant og blað og
þeir látnir skrifa lýsingarorð, sem
getur átt við mann. Síðan er blaðið
brotið yfir nafnið og blaðið er látið
til þess sem situr á hægri hönd. Þá
eiga allir að skrifa mannsnafn og
enn brjóta blaðið. Og þannig koll af
kolli þangað til að eftirfarandi hef-
ur verið skrifað á blaðið. 1. Lýsingar-
orð sem á við karlmann. 2. Kven-
mannsnafn. 5. Staðarheiti. 6. Dagsetn-
ing 7. Lýsingarorð sem á við hlut. 8.
Hlutur. 9. Hvað á að gera við það.
10 Hvers vegna? Að því loknu eru
blöðin látin i ilát og þeim ruglað
saman og svo er þeim deilt út á ný.
Þá er fólk látið lesa upp af blöðunum
og verður að bæta inn í það sem á
skortir til Þess að gera setningarnar
heillegar
liljdmplötur
Hér er platan „Hamp's BIG Band“
með tuttugu manna hljómsveit Lionel
Hamptons. Lionel hefur verið með á
blaði síðan 1930 þegar hann lék með
Louis Armstrong í Les Hite hljóm-
sveitinni. Seinna lék hann með Benny
Goodman. Uppúr 1940 var hann ein-
göngu með eigin hljómsveitir og hef-
ur farið víða um heim í hljómleika-
ferðir. Af þeim tólf lögum, sem á
plötunni eru má nefna Flying Home
og Air Mail, ennfremur Night Train
og Le Chat Noir.
brdfc.viðskipti
Hanna S. Jóhannsdóttir, Suðurgötu
51 Akranesi óskar eftir að komast í
samband við pilta og stúlkur 15 til
17 ára. Ösk Ásgeirsdóttir, Naustakoti,
Vatnsleysuströnd og Þórdis Símonar-
dóttir N-Brunnastöðum, Vatnleysu-
strönd óska eftir bréfasambandi við
pilta eða stúlkur 14 til 15 ára. Erla
Ragnarsdóttir vill komast í bréfasam-
band við pilta á aldrinum 17 til 20
ára. Kristbjörg Ólafsdóttir við pilta
15 til 17 ára. Ásta Alfreðsdóttir við
pilta 17 til 19 ára og Jónína Ketils-
dóttir við pilta 15 til 17 ára. Enn-
fremur Bergljót Hólmgeirsdóttir við
pilta 18 til 20 ára. Allar að héraðs-
skólanum Laugum, Reykjadal. Eftir-
farandi stúlkur óska eftir bréfasam-
bandi við pilta og stúlkur 19 til 23
ára og óska að mynd fylgi. Helga
Friðriksdóttir, Anna Kristinsdójttir,
Ragnhildur Lýðsdóttir, Aðalbjörg
Hjartardóttir og Sigríður Jónsdóttir,
allar í Húsmæðraskóla Reykjavíkur,
Sólvallagötu 12. Hrefna Jónsdóttir,
Nesjavöllum, Grafningi, Árnessýslu,
vill komast í bréfasamband við pilta
á aldrinum 16 til 19 ára. Einar Jak-
obsson, Dúki, Sæmundarhlíð, Skaga-
firði óskar eftir bréfasambandi við
stúlkur 16 til 17 ára, mynd fylgi.
Eymundur Jóhannsson, Sólheimum,
Sæmundarhlíð við stúlkur 16 til 18
ára. Og Sigurður D. Skarphéðinsson,
Dúki, Sæmundarhlíð við stúlkur 13
AUDIO FIDELITY,
til 14 ára. Heimir Baldvinsson óskar
að komast í bréfasamband við stúlkur
23 til 25 ára og Elín Baldvinsdóttir við
pilta 16 til 18 ára. Bæði að Arnar-
stöðum, Bárðardal, S-Þing. Ingunn
Ingimundardóttir, Hæli, Flókadal vill
komast í bréfasamband við pilta og
stúlkur 13 til 15 ára. Ellen Péturs-
dóttir, Klöpp, Vogum, Vatnsleysu-
strönd óskar eftir bréfasambandi við
pilt eða stúlku, mynd fylgi. Gagn-
fræðaskólastúlkan í Reykjavík, sem
vill komast í bréfasamband við brezka
pilta hefur liklegast eitthvert gagn af
eftirfarandi klausu. Anton Kristensen,
Hellerupvej 54 Kaupmannáhöfn, Dan-
mörk gefur ókeypis upplýsingar varð-
andi bréfaviðskipti um allan heim.
Dönsk kona, Anne Lise Lund Nielsen
að nafni til heimilis Tordenskjoldsgade
4, Köge, Sjálandi, óskar eftir að kom-
ast í samband við íslenzkan frímerkja-
safnara. 16 ára gömul kanadisk
stúlka, Linda Murkas, óskar eftir
bréfasambandi við lslending|. Hún
hefur áhuga á sígildri tónlist, íþrótt-
um og sögu. Heimilisfang hennar er:
210 Wolsely Street, Peterborought,
Ontario, Kanada.
kvilcniyndir
Við skulum hafa smá yfirlit í þetta
skipti yfir bandarískar kvikmyndir,
gerðar á síðastliðnu ári. Einhver
skemmtilegasta bók sem gefin hefur
verið út á undanförnum árum er sag-
an um Mame frænku. Nú hefur hún
verið kvikmynduð með Rosalind
Russel í aðalhlutverki og ef að líkum
lætur, þá gerir hún þvi sjálfsagt góð
skil. Sagan er í stuttu máli á þá leið
að Edwin nokkur Dennis gerir erfða-
skrá sem meðal annars tekur fram, að
að honum látnum skuli systir Mame
Dennis taka við syni hans. En þar sem
hún er í meira lagi sérvitur og tekur
upp á öllu mögulegu, sem enginn heið-
Mame frænka og gestir hennar.
arlegur faðir kærir sig um að hafi of
mikil áhrif á son sinn, þá skal ákveð-
inn banki hafa umsjón með fjárhag
drengsins og tilnefna mann til þess að
líta eftir því að systir sín skemmi
drenginn ekki. Að því loknu gengur
hann til feðra sinna. Nema nú upp-
hefst merkilegt tímabil i ævi Patricks
Dennis. Allskyns stórfurðulegt fólk
heimsækir frænku hans á öllum tím-
um sólarhrings og smá saman lærir
hann einmitt allt það sem faðir hans
vildi ekki að hann einu sinni vissi að
væri til. Of langt mál væri að telja
fleira upp, en það er víst óhætt að
hlakka til þessarar myndar.
Hér er svo njósnamynd með Cary
Grant og Eva Marie Saint, auk James
Mason, í aðalhlutverkunum. Þetta er
ein af Hitchcock myndunum, svo mað-
ur þarf ekki að vera i neinum vafa um
það, að myndin er bæði skemmtileg
og spennandi. Cary leikur mann, sem
af einhverjum dularfullum ástæðum
lendir í því að vera sífellt skotmark
ýmissa aðila, sem allir virðast vera
jafnsannfærðir um ágæti þess að
punda blýi i hann eða kála honum á
annan hátt. Auðvitað er kvenmaður
með í spilinu, en eins og vera ber, er
vel óljóst alla myndina út í gegn
hverjum hún er hliðholl. En Hitch-
cock hefur ekki ennbá svikið fólk um
að láta hlutina enda bærilega.
Cary Grant og Eva Marie Saint.
1 nýjustu mynd Frank Sinatra hvað:
hann vera með gat I hausnum, ef
nokkuð er að marka kvikmyndaheit-
ið. Jæja, myndin fjallar um það, að
Tony (Frank) nokkur rekur hótel í
Florida, sem ekki er nema I meðal-
lagi gott fyrirtæki. Satt að segja er
hann á kúpunni og til þess að bjarga
málunum við hringir hann í bróður
sinn i New York, sem ekki er alveg
á flæðiskeri staddur, og biður hann
að bjarga sér og punga út með svona
nokkur hundruð Þúsund krónur. Ekki
er það fengið og reyndar segir bróð-
urinn honum, að ef hann fari ekki
Þar fór seinasti skildingurinn.
að vinna heiðarlega vinnu, þá skuli
hann ekki gera sér vonir um að fá
að halda syni sínum. Því, svo segir
bróðurinn, þú átt enga peninga, ekk-
ert heimili, sem sagt, þú ert róni. Og
þess vegna, vinur kær getum við hjón-
in tekið af þér drenginn, nema . . .
Og með þetta fer Tony á stúfana til
þess að bjarga peninga og fjölskyldu-
málunum. E7x auðvitað tekst honum
ekki betur en það, að hann eyðir öll-
um peningunum í veðreiðar og nú er
honum ekkert að vanbúnaði að leggja
upp laupana. En það er ekki öll nótt
úti enn, því forsjónin á svolítið í
pokahorninu handa honum og kann-
ski fleirum.
Það er eins og Cary Cooper verði
aldrei þreyttur á að vera hetja. En
í þetta skipti er það nú á dálitið ann-
an hátt en venjulega. Bandarikja-
menn eiga í striði við mexikanska
bófaflokka og í þeim viðureignum
standa fimm hermenn sig með slíkri
prýði að ákveðið er að veita þeim
orður fyrir frammistöðuna. Og til
þess að koma þeim heilum á ákvörð-
unarstað til að taka við þeim, eru
þeir látnir hætta öllum hernaði og
fenginn herforingi eða slikt til að
koma þeim á réttan stað. Og þeir
þurfa að fara um eyðimörk til þess
að komast á áfangastað. Ennfremur
eru þeir með konu eina í hópnum,
sem leiða á fyrir herrétt fyrir föður-
landssvik. Þeir lenda í bardaga við
leyniskyttur. Þeir verða matarlausir
og vatnslausir og það líður að því, að
þeir missa heldur betur áhugann á
öllum orðum og tignarmerkjum. En
foringinn Thorn (Gary) er staðráð-
12 VIKAM