Vikan - 23.03.1961, Page 22
Vor tí%Unn 1961
Svarað mörgum bréfum.
Síðan Vikan hóf að birta getraunir i einhverj-
um mæli, hafa mörg bréf borizt þess efnis,
að mönnum þætti það skemmd á blaðinu að
klippa getraunaseðilinn út úr sjálfu blaðinu;
stundum væri þar að auki lesmál á bakhlið
getraunaseðilsins. Hafa komið fram ýmsar til-
lögur, meðal annars sú að hafa lausan get-
raunaseðil inni i blaðinu. Fjölmargir segjast
halda blaðinu saman og finnst það vera lýti
á þvi að klippa út stykki, þó elcki sé það stærra
en þessi seðill er vanur að vera.
Þessu er þann veg til að svara, að fyrir þá,
sem halda blaðinu saman, er það sjálfsagt að
klippa ekki út úr þvi. En sé miðað við venju-
legt verð á happdrættismiðum — og verðlauna-
getraunin er í reyndinni ekkert annað en happ-
drætti — þá viljum við halda því fram að það
sé ódýr happdrættismiði, sem kostar kr. 15, —
vilji menn taka þátt í getrauninni, þegar góð
verðlaun eru í boði.
Það er óframkvæmanlegt að hafa lausan miða
inni í blaðinu fyrir getraunalausnir. f fyrsta
lagi bannar póststjórnin allt slíkt lausagóss og
þekkist það víst hvergi í víðri veröld annars-
staðar. í öðru lagi er upplag blaðsins það stórt,
að mikið verk væri að láta lausan miða inn
í hvert blað og alltof dýrt.
Okkur hafði sannast sagna ekki dottið i hug,
að fólki væri svona sárt um blaðið og þess
vegna var það ekki alltaf athugað að hafa mynd
eða auglýsingu á bakhlið getraunaseðilsins.
Það getur a ðvisu verið erfitt að koma því við
Framhald á bls. 28.
■ ........................
LÁTIÐ OKKUR
LÉTTA STÖRFIN.
VIÐ HREINGERUM
LOFT OG VEGGI
FLJÓTT OG VEL.
ÞRIF h.f.
SÍMI 35357.
Kirkjustræti 8. — Sími 12838.