Fréttablaðið - 09.12.2009, Qupperneq 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
leikur í höndumMIÐVIKUDAGUR 9. DESEMBER 2009Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Það er heilmikil spenna fyrir þessari ferð, enda skilst mér að þarna sé gríðarlega fallegt og eflaust gaman að keyra,“ segir Axel Eiríksson, úrsmíðameist-ari og meðlimur í BMW-mótor-hjólaklúbbnum á Íslandi. Nokkrir félagar í klúbbnum vinna hörðum höndum um þessar mundir við að skipuleggja heljarinnar hjóla-ferð til Skotlands í apríl næstkom-andi.
Ferðin verður óvenjuleg að vissu leyti, því hjólin verðút í gá
þátttakendum skipt upp í þrjá hópa sem hittast í upphafi ferðarinnar, um hana miðja og í lokin. Þegar hafa nítján meðlimir skráð sig í ferðina og ætla nokkrar eiginkon-ur að fljóta með þótt þær hjóli ekki sjálfar. „Við köllum eigin konurnar stundum „hnakkaskraut“ að gamni okkar,“ segir Axel og hlær. Auk þess eiga nokkrir meðlimir hjól þar úti sem þeir koma til með að keyra í ferðinni.Lagt verðu
jafnvel heimsækja Ísland í sama tilgangi í kjölfarið.Þetta er fyrsta eiginlega ferðin sem klúbburinn fer út fyrir land-steinana. Nokkrir meðlimir ferðuð-ust þó til Þýskalands fyrir tveimur
árum þar sem þeir sóttu námskeið í utanvegaakstri. „Klúbburinn er tveggja ára gamall og þó nokk-uð virkur,“ segir Axel. „Síðastasumar var til dæmi h i
Mikill spenningur fyrir Skotlandsferð í aprílMeðlimir í BMW-mótorhjólaklúbbnum á Íslandi ætla að leggja land undir fót í apríl og þeysa hringinn í
kringum Skotland. Hjólin verða send út með gámi og svo fylgja þátttakendur eftir með flugvél.
Hér sést hópurinn sem fór í eftirminnilega ferð að Jökulsárlóni síðastliðið sumar. Axel Eiríksson er annar frá vinstri.
MYND/ÚR EINKASAFNI
HÁDEGISGÖNGUR Ferðafélags Íslands eru farnar á þriðjudögum klukkan 12 og á fimmtudögum
klukkan 14. Á þriðjudögum er gengið frá Árbæjarlaug
og um Elliðaárdal en á fimmtudögum er gengið frá
Nauthólsvík eftir ýmsum leiðum við sjóinn. www.fi.is
• Dregur úr vöðvaspennu• Höfuð- háls- og bakverkjum• Hefur góð áhrif gegn streitu• Er slakandi og bætir svefn
Opið virka daga frá kl. 9 -18 og laugardaga til jóla kl. 11-16www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð frá 9.750 kr.
Nálastungudýnan
NETHYL 2, SÍMI 5870600, WWW.TOMSTUNDAHUSID.IS
ÖFLUGIR FJARSTÝRÐIR RAFMAGNS- OG BENSÍNBÍLAR Í MIKLU ÚRVALI.
Draumadúnsængin100% dúnn (790 gr)Jólatilboð 23.990 krVerð áður 29.990 kr
MIÐVIKUDAGUR
9. desember 2009 — 291. tölublað — 9. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
AXEL EIRÍKSSON
Ekur á hjóli hringinn
í kringum Skotland
• á ferðinni • jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
GÓÐ NÆRING,
FYRIR HRESSA KRAKKA!
Bellissimo
Ó
· 1
29
64
VIÐSKIPTI Heildarfjárhæð viðskipta sem Seðla-
bankinn hefur til athugunar vegna brota á
gjaldeyrisreglum er litlu lægri en verðmæti
alls þorskútflutnings frá landinu fyrstu níu
mánuði þessa árs.
Heildarupphæð viðskipta sem Seðlabankinn
hefur til athugunar vegna brota nemur rúmum
57,5 milljörðum króna. Meint brot voru framin
á rúmlega tíu mánaða tímabili frá 28. nóvem-
ber 2008 til 1. október 2009. Að auki bíða um
100 mál skoðunar og munu fjárhæðir því
hækka umtalsvert þegar fram líða stundir, að
því er fram kemur í svari Gylfa Magnússonar,
efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn
Ásbjörns Óttars sonar, þingmanns Sjálfstæðis-
flokksins, sem sagt var frá í Fréttablaðinu í
gær.
Til samanburðar má nefna að samkvæmt vef
Hagstofu Íslands nam verðmæti á útfluttum
þorski frá Íslandi á níu mánaða tímabilinu frá
1. janúar til 1. október á þessu ári 61,6 milljörð-
um króna.
Fjárhæðir þeirra mála sem þegar eru til
skoðunar vegna brota á gjaldeyrisreglum á tíu
mánaða tímabili jafngilda því að verðmæti 93,3
prósentum af níu mánaða þorskútflutningi.
Verðmæti allra útfluttra sjávarafurða nam
172,8 milljörðum króna fyrstu níu mánuði árs-
ins en heildarútflutningur vöru og þjónustu
var 555,4 milljarðar króna. Meint gjaldeyris-
svik nema því 10,3 prósentum af heildar-
útflutningi vöru og þjónustu fyrstu níu mánuði
ársins.
Svo umfangsmikil brot á gjaldeyrisreglum
veikja gengi krónunnar verulega, að sögn
Þórólfs Matthíassonar, prófessors í hagfræði.
Hann treystir sér ekki til að nefna hlutfalls-
tölur í því sambandi.
Þórólfur segir að líklega sé ávinningur
þeirra sem stundað hafa svikin í hæsta lagi
helmingur heildarfjárhæðarinnar „og senni-
lega þó töluvert undir því,“ segir hann. „Það
er verið að selja í leiðinni vöru og þjónustu.“
Í svari efnahagsráðherra við fyrirspurn-
inni segir að ekki sé hægt að veita upplýsing-
ar um hvaða starfsemi þeir lögaðilar stunda
sem grunaðir eru um brot á gjaldeyrisregl-
unum. 134 lög aðilar áttu hlut að viðskiptum
með 91,93 prósent heildarfjárhæðarinnar en
110 einstaklingar hlut að viðskiptum með 8,07
prósent af heildarfjárhæðinni. - pg / sjá síðu 10
Gjaldeyrissvikin svipuð og
verðmæti þorskútflutnings
Fjárhæðir gjaldeyrissvika sem Seðlabankinn er nú þegar með til athugunar jafngilda 93,3 prósentum af
útfluttum þorski frá landinu fyrstu níu mánuði þessa árs. Veikir krónuna verulega, segir prófessor.
Jólasveinn í
Bretlandi
Felix Bergsson
hræðir bresk
börn með
Grýlu.
FÓLK 34
Fíladelfía fer
með rangt mál
Friðrik Ómar stendur
við stóru orðin.
FÓLK 46
Blautt syðra Í dag verða austan
8-13 m/s, hvassast syðst. Víða
rigning eða skúrir, en úrkomulítið
og bjart norðanlands. Bætir í úr-
komuna syðra síðdegis. Hiti víðast
2-8 stig.
VEÐUR 4
4 2
5
6
6
LEIKUR Í HÖNDUM
Sykurhúðuð listaverk,
föndur og bílaviðgerðir
Sérblaðið Leikur í höndum
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Saga íslenska
sönglagsins
Sigurður Bragason gefur út disk
sem spannar 100 ára sögu.
TÍMAMÓT 26
KAUPMANNAHÖFN Loftslagsráð-
stefna Sameinuðu þjóðanna í Kaup-
mannahöfn er í uppnámi eftir að
drögum að samkomulagi um sam-
drátt í losun koltvísýrings var lekið
til breska blaðsins The Guardian í
gær. Fulltrúar þróunarríkja brugð-
ust ævareiðir við því sem fram
kom í drögunum, sem kölluð hafa
verið „Danski textinn“.
Í drögunum er gert ráð fyrir að
heimsins ríkustu þjóðir fái aukin
völd þegar kemur að stefnumótun í
loftslagsmálum og að dregið verði
úr völdum Sameinuðu þjóðanna.
Enn fremur verði ríkari þjóðum
heimsins heimilað að losa mun
meira af koltvísýringi út í and-
rúmsloftið miðað við höfðatölu en
fátækum ríkjum árið 2050, eða
2,67 tonnum á móti 1,44.
Drögin leynilegu voru smíðuð af
félagsskap sem kallaður er „Skuld-
bindingarklíkan“ (e. The circle of
commitment), og er sagður inni-
halda fulltrúa Bretlands, Banda-
ríkjanna og Danmerkur, auk ann-
arra. Þau höfðu einungis verið
kynnt fulltrúum örfárra þjóða
síðan lokið var við þau í vikunni.
Talið er að þeir sem stóðu að
drögunum hafi ætlað að reyna að
afla þeim fylgis næstu daga, og
reyna síðan að ná sínu fram þegar
leiðtogar stærstu ríkjanna mæta
til leiks eftir helgi. - sh
Ný gögn sýna að klíka ríkra þjóða vill þrengja að þróunarlöndum:
Leki skekur loftslagsráðstefnuna
ERFIÐ UMRÆÐA Fulltrúi Haítí á loftslagsráðstefnunni hvílir sig áður en annar dagur hennar hefst. Samkomulagsdrögin sem
lekið var til The Guardian hafa hleypt illu blóði í suma gesti og útlit er fyrir að viðræðurnar verði enn strembnari fyrir vikið.
NORDICPHOTOS/AFP
Bayern áfram
Bayern vann
glæsilegan útisigur
á Juventus í Meist-
aradeildinni í gær og
komst áfram í sextán
liða úrslit.
ÍÞRÓTTIR 42
BRUNI Tvær geymslur á bænum
Neðritungu í Örlygshöfn við
Patreks höfn gereyðilögðust í eldi
í gærkvöldi. Eldurinn kom upp
klukkan hálf sjö og hafði verið
slökktur á tíunda tímanum. Hátt
á fimmta tug lögreglu-, slökkvi-
liðs- og björgunarsveitarmanna
hjálpaði til við slökkvistarfið.
Rúnar Árnason, bóndi á bænum,
segist hafa verið á næsta bæ
þegar hann fékk símtal um að
eldur væri kominn upp. „Manni
brá náttúrlega,“ segir hann. Hann
hljóp þegar til, en nágranni hafði
þá gert lögreglu viðvart.
Í húsunum voru um þrjátíu
kindur og tuttugu til þrjátíu kálf-
ar á öllum aldri, að sögn Rúnars.
Vel tókst að koma þeim út. „Það
er búið að koma þeim öllum í hús
á næsta bæ,“ segir Rúnar. Ekki er
vitað hvernig eldurinn kom upp og
Rúnar var í gærkvöldi ekki farinn
að leggja mat á tjónið eða hversu
vel hann væri tryggður. - sh
Geymsluhús gereyðilögðust:
Engar skepnur
sakaði í bruna