Fréttablaðið - 09.12.2009, Side 2
2 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
STJÓRNSÝSLA „Lengi vel var það
alþekkt að allir sem fengu vinnu
í Fríhöfninni voru tengdir ákveðn-
um pólitískum flokkum, annað-
hvort beint eða í gegnum fjöl-
skyldumeðlimi,“ segir í fimmtíu
ára afmælisriti Fríhafnarinnar á
Keflavíkurflugvelli.
Fríhöfnin varð fimmtíu ára í
fyrra en afmælisritið er fyrst að
koma út núna. Í blaðinu er gripið
niður í sögu fyrirtækisins. Ein
greinin ber yfirskriftina Pólitísk-
ar ráðningar og hefst á tilvitnuðu
orðunum hér að framan.
„Lengi framan af voru það teng-
ingar í gegnum Alþýðuflokkinn og
síðan réði Framsóknarflokkurinn
ráðningum en það fór eftir því í
hvaða flokki utanríkisráðherra
var hverju sinni,“ segir í afmælis-
ritinu um það hvað þurfti til að fá
starf í Fríhöfninni.
Mikið af starfsfólkinu er sagt
hafi verið ráðið í sumarafleysing-
ar, gjarnan nemar í Háskólanum.
Vitnað er til samtals við starfs-
mann sem hafði starfað í nokkra
mánuði þegar hann fékk heim-
sókn eitt kvöldið. Þar hafi verið
mættur „virðingarverður maður“
að rukka félagsgjald í Félag ungra
jafnaðarmanna í Keflavík. Starfs-
maðurinn hafi neitað að borga.
„Var hann þá spurður hvort hann
væri ekki með vinnu í fríhöfn-
inni og sagði síðan „þar eiga bara
alþýðuflokksmenn að vinna,“
segir í Fríhafnarblaðinu.
Annars staðar í afmælisblaðinu
er fjallað um þjóðþekkta starfs-
menn sem verið hafa hjá Fríhöfn-
inni. Sértaklega er rætt við Sig-
hvat Björgvinsson, fyrrverandi
Fríhöfnin í Keflavík
í klóm spillingarafla
Í nýju afmælisriti Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvell segir að pólitískur geð-
þótti hafi lengi ráðið hverjir fengju þar starf. Framsóknarflokkur og Alþýðu-
flokkur hafi ráðið þar mestu eftir því hvor flokkur átti utanríkisráðherrastólinn.
PÓLITÍSK AFSKIPTI Eftirsótt
var að komast til starfa í
Fríhöfninni á Keflavíkurflug-
velli og úthlutuðu spilltir
stjórnmálamenn stöðum
þar á hverjum tíma.
MYNDIR/AFMÆLISRIT FRÍHAFNARINNAR
1959-2009.
ráðherra og starfsmann í Fríhöfn-
inni í tvö sumur. Segir að Sighvati
hafi líkað starfið vel.
„Unnið var á vöktum, en mikið
var af aukavinnu og því höfðu
menn góðar tekjur. Var starfið
því algjört draumastarf hvað laun
varðar fyrir ungan skólastrák,“
segir í blaðinu og bætt er við að
stundum hafi verið svo mikið að
gera hjá Sighvati að hann hafi
fengi að gista í fjölbýlishúsi Frí-
hafnarinnar í stað þess að fara til
Reykjavíkur þar sem hann bjó.
Hlynur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Fríhafnarinnar og
ritstjóri afmælisblaðsins, segir
í leiðara þess að ýmislegt hafi
gengið á í pólískum afskiptum og
sum mál verið bæði leiðinleg og
erfið fyrir starfsfólkið. Með gler-
augum nútímans væri auðvelt að
dæma fortíðina. „En við gleymum
að nú lifum við á tímum hins upp-
lýsta samfélags þar sem slæmar
venjur og vondir siðir þrífast ekki
en voru hér áður samþykktir með
þögninni.“ gar@frettabladid.is
Gunnar, er holdið þá ekkert
veikt?
„Holdið er alltaf í upplyftingu.“
Séra Gunnar Sigurjónsson, sóknarprestur
í Digraneskirkju, stundar lyftingar af
miklum móð.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur stað-
fest gæsluvarðhaldsúrskurð hér-
aðsdóms yfir Catalinu Mikue
Ncogo og samstarfskonu hennar.
Þær sitja í gæsluvarðhaldi og ein-
angrun til föstudagsins næstkom-
andi.
Í greinargerð lögreglustjórans
á höfuðborgarsvæðinu kemur
fram að lögregla hafi að undan-
förnu rannsakað ætlað mansal og
milligöngu um vændi, upphaflega
á grundvelli ítrekaðra upplýsinga
um að Catalina og samstarfskona
hennar flytji stúlkur til landsins,
geri þær út til vændis og taki
hluta hagnaðarins af þeim. Í okt-
óber hafi lögreglu ítrekað bor-
ist nafnlausar ábendingar um að
nokkrar konur stunduðu vændi á
heimili Catalinu. Þá hafi lögreglu
borist upplýsingar um komu
nokkurra kvenna til landsins,
sem bendi til að þær séu hingað
komnar til að stunda vændi á
vegum samstarfskonunnar. Sér-
stakt húsnæði hafi verið tekið
á leigu undir starfsemina. Lög-
regla hafi fyrir nokkru tekið
skýrslu af konu, sem komið hafi
hingað til lands til að stunda
vændi á vegum samstarfskonu
Catalinu og hafi hún lýst bágum
aðstæðum.
Þá kemur fram að Catalina hafi
frá því í október tekið virkan þátt
í þeim brotum, sem til rannsóknar
eru, meðal annars með því að
koma að skipulagningu vændis-
starfseminnar, hafa milligöngu
um hana og hafa viðurværi sitt
af vændi annarra.
- jss
Hæstiréttur staðfestir varðhald yfir Catalinu og samstarfskonu hennar:
Vændiskona lýsti bágum aðstæðum
CATALINA Hæstiréttur staðfesti
úrskurð héraðsdóms um gæslu-
varðhald og einangrun.
SLYS Karlmaður á fimmtugsaldri lést við sportköfun
á milli Hvammsvíkur og Hvítaness í Hvalfirði síð-
degis í gær.
Kafarinn varð viðskila við félaga sinn, sem hafði
síðan snarlega samband við lögreglu þegar hann
sá manninn hreyfingarlausan í flæðarmálinu. Til-
kynningin barst um klukkan þrjú.
Lögregla hafði mikinn viðbúnað og voru kallaðir
til kafarar og björgunarsveitir, auk þess sem þyrla
Landhelgisgæslunnar fór á staðinn.
Maðurinn var þegar úrskurðaður látinn og flutti
þyrlan hann til Reykjavíkur.
Tildrög slyssins eru ókunn og fer Mosfellsdeild
lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu með rannsókn
málsins.
Ekki er unnt að greina frá nafni mannsins að svo
stöddu. Svæðið þar sem mennirnir voru við köfun er
vinsælt hjá sportköfurum. - sh
Karlmaður á fimmtugsaldri lést við sportköfun í Hvalfirði:
Lést við köfun í Hvammsvík
Slysstaður
Hvammsvík
Hv
alf
jör
ðu
r
BRUSSEL, AP Evrópusambandið
hafnaði umsóknum 204 þúsund
hælisleitenda á árinu 2008.
Sama ár fengu 76 þúsund manns
hæli í aðildarríkjum sambands-
ins.
Flestir þeirra fengu hæli í
Frakklandi, eða 11.470 manns,
en næst koma Þýskaland, Bret-
land, Ítalía og Svíþjóð. Fæstir
fengu hins vegar hæli á Grikk-
landi, rétt um eitt prósent
þeirra 30.915 sem sóttu um þar.
Flestir hælisleitandanna
komu frá Írak, og fengu 16 þús-
und þeirra hæli í aðildarríkjum
sambandsins á árinu 2008. - gb
Hælisleitendur í ESB:
Langflestum er
synjað um hæli
LANDBÚNAÐUR Heimild til inn-
flutnings á djúpfrystu svínasæði
verður til þess að efla, styrkja og
auka svínarækt í landinu. Þetta
kemur fram í áliti sjávarútvegs-
og landbúnaðarnefndar Alþingis
vegna frumvarps um breytingu á
lögum um innflutning dýra.
Frumvarpið er sagt byggt á
vinnu nefndar sem ráðherra skip-
aði, en í henni áttu sæti Halldór
Runólfsson yfirdýralæknir, Vil-
hjálmur Svansson dýralæknir og
Þorsteinn Ólafsson, sérgreina-
dýralæknir hjá Matvælastofnun.
Sjávarútvegs- og landbúnaðar-
nefnd leggur til að frumvarpið
verði samþykkt óbreytt. - óká
Lög um innflutning dýra:
Heimila á inn-
flutning sæðis
GRÍSIR ÞRÍR Líkur eru sagðar á að svína-
rækt eflist með heimild til innflutnings á
frystu sæði beint á bú. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
VINNUMARKAÐUR Laun voru að
meðaltali 0,7 prósentum hærri
á þriðja fjórðungi ársins, en hjá
verkafólki hækkuðu þau um 1,6
prósent og hækkar sú starfsstétt
mest. Á sama tímabili hækkuðu
laun stjórnenda um 0,1 prósent.
Sé litið lengra aftur til ársins
2008 hafa laun verkafólks hækk-
að um 4,3 prósent en laun stjórn-
enda lækkað um 4,1 prósent. Í
atvinnugreinum í heild sinni
hækkuðu laun um 1,9 prósent
fyrir störf við samgöngur og
flutninga á þriðja fjórðungi árs-
ins, en lækkuðu um 0,4 prósent
í byggingarstarfsemi og mann-
virkjagerð. Hagstofan greinir frá
þessu. - kóþ
Launaþróun í landinu:
Laun verkafólks
hækka mest
DÓMSMÁL Héraðsdómur Vestur-
lands hefur dæmt Stykkishólms-
bæ til að greiða fyrrverandi
forstöðumanni Dvalarheimilis
aldraðra 5,8 milljónir króna í
bætur vegna ólögmætrar upp-
sagnar, að því er fram kemur á
vef Skessuhorns.
Bæjarstjóri Stykkishólms til-
kynnti Landlæknisembættinu árið
2008 að grunur léki á að maðurinn
misnotaði lyf og hefði tekið lyf frá
dvalarheimilinu. Í dóminum segir
að ávirðingarnar hafi ekki verið
kannaðar nægilega, auk þess sem
maðurinn hafi ekki fengið að tjá
sig um þær fyrir uppsögnina. - bj
Ólögmæt uppsögn:
Fær greiddar
milljóna bætur
VIÐSKIPTI Sextán lífeyrissjóðir
innan vébanda Landssamtaka líf-
eyrissjóða stofnuði í gær Fram-
takssjóð Íslands, „fjárfestingar-
félag sem ætlað er að taka þátt í
og móta fjárhagslega og rekstrar-
lega endurreisn íslensks atvinnu-
lífs í kjölfar falls fjármálakerfis-
ins,“ að því er segir í tilkynningu.
Í tilkynningunni segir að stofn-
endur sjóðsins ráði yfir um 64
prósentum af heildareignum
lífeyrissjóða á Íslandi og hafi
skuldbundið sig til að leggja fjár-
festingarsjóðnum til um þrjátíu
milljarða króna í hlutafé. Enn er
opið fyrir skráningu hlutafjár í
sjóðnum. - sh
Stofna fjárfestingarfélag:
Vilja taka þátt í
endurreisninni
Nýjar efnahagsaðgerðir
Barack Obama Bandaríkjaforseti
kynnti í gær nýjar aðgerðir sem ætlað
er að örva efnahagslífið í Bandaríkj-
unum. Í þeim er lögð áhersla á að
hjálpa litlum fyrirtækjum til að reyna
að ná niður atvinnuleysi, sem nú er
um tíu prósent.
BANDARÍKIN
SPURNING DAGSINS