Fréttablaðið - 09.12.2009, Side 8
8 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
DÓMSTÓLAR Skilanefnd Glitnis á
að afhenda Vilhjálmi Bjarnasyni,
lektor og fjárfesti, upplýsingar
um 24 milljarða króna veðlaust
lán Glitnis til fjárfestingarfélags-
ins Fons. Þrotabú Fons þarf hins
vegar ekki að afhenda Vilhjálmi
sambærileg gögn.
Vilhjálmur kveðst ætla að skoða
gögnin með mögulega skaðabóta-
ábyrgð stjórnenda í huga. Hann
útilokar því ekki að höfða mál að
nýju, gefi gögnin tilefni til þess.
Vilhjálmur stefndi bæði skilanefnd
Glitnis og þrotabúi Fons. Anna M.
Karlsdóttir kvað upp úrskurð í
málinu um miðjan dag í gær.
„Bankaleynd nær ekki út yfir
gröf og dauða,“ segir Guðni Ásþór
Haraldsson, lögmaður Vilhjálms.
Í úrskurði Héraðsdóms segir
að bankaleynd sé fyrst og
fremst ætlað að vernda viðskipta-
hagsmuni viðskiptavinar fjár-
málafyrirtækis, en ekki hags-
muni fjármálafyrirtækisins.
„Ljóst er að sá viðskiptavinur sem
hér um ræðir er gjaldþrota og erf-
itt að sjá hvaða hagsmuni hann
hefur af því að þeim upplýsing-
um sem hér er beðið um, sé haldið
leyndum. Þá er að líta til þeirrar
yfirlýsingar þrotabúsins að það
taki enga afstöðu varðandi það
hvort varnar aðilinn Glitnir banki
hf. veiti sóknar aðila aðgang að
gögnunum,“ segir þar.
Vilhjálmur segir dóminn vissu-
lega marka ákveðin tímamót hvað
varði túlkun á ákvæðum um banka-
leynd. „Þegar viðskiptavinurinn
hverfur er bankaleynd aflétt og
þegar þetta er komið yfir í þrotabú
þá eru gögnin nánast orðin opin-
ber,“ segir hann og býr sig undir að
fara yfir þau gögn sem skilanefnd-
inni hefur verið gert að afhenda.
„Ég vonast til að sjá hvernig það
má vera að fyrirtæki fær 24 millj-
arða að láni án nokkurra trygginga
og þá get ég kannski séð ákveðið
mynstur, en það sem ég horfi í er
hugsanleg skaðabótaábyrgð stjórn-
enda bankans vegna vanrækslu.“
- óká
FÆR GÖGNIN Vilhjálmur Bjarnason
ætlar að skoða gögnin með mögulega
skaðabótaábyrgð stjórnenda í huga.
Héraðsdómur úrskurðar í máli á hendur skilanefnd Glitnis og þrotabúi Fons:
Vilhjálmur fær gögn um lán
Brauðrist TT 61101
Tekur tvær venjulegar brauðsneiðar, 900 W.
Jólaverð: 6.400 kr. stgr.
Töfrasproti MSM 6B100
280 W. Hljóðlátur og þægilegur í notkun.
Jólaverð: 4.100 kr. stgr.
Skaftryksuga BBH MOVE2
Öflug, 14,4 V. Hleðslutæki,
frístandandi eða fest á vegg.
Jólaverð: 26.900 kr. stgr.
Hárblásari PHD 1150
1200 W. Hægt að fella saman.
Jólaverð: 4.290 kr. stgr.
Stafrænn hitamælir
Bosotherm flex
Jólaverð: 1.490 kr. stgr.
Stór og lítil heimilistæki, símtæki og ljós í miklu úrvali.
Sjáið jólatilboðin á www.sminor.is
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Þvottavél WM 12A162DN
Tekur 5 kg. 1200 sn./mín.
Orkuflokkur A.
Jólaverð: 109.900 kr. stgr.
Uppþvottavél SE44E232SK
Hvít, með fjórum kerfum.
Jólaverð: 109.900 kr. stgr.
1
2
3
4
5
6
7
fyrir 1
2
3
4
5
6
7
A
T
A
R
N
A
Páll Óskar Hjálmtýsson (13 ára)
og Sverrir Guðjónsson ásamt
börnum syngja söngva um allt það
sem mamma, pabbi, afi og amma
kenndu okkur frá upphafi vega;
um virðingu, traust, heiðarleika,
að vera trúr og sannur, umhyggja
fyrir hinu stóra sem smáa í okkar
umhverfi, um fyrirgefninguna og
um bænina.
Fæst í verslunum og stórmörkuðum víða um land
DÓMSMÁL Sex ungmenni hafa
verið ákærð fyrir fjölmörg inn-
brot og þjófnaði í umdæmi lög-
reglustjórans á Selfossi. Um er
að ræða fimm unga menn og eina
stúlku á aldrinum 18 til 22 ára.
Tveir mannanna eru ákærðir
fyrir innbrot í Árborg í Árnesi.
Þar stálu þeir varningi fyrir 660
þúsund krónur auk símakorta en
verðmæti þeirra er óþekkt.
Einn mannanna og stúlkan
eru ákærð fyrir að hafa í fórum
sínum hluta þýfisins úr Árborg.
Einn mannanna er svo ákærð-
ur fyrir innbrot í bílskúr á Sel-
fossi. Þar stal hann fjórum köss-
um af Bratz-leikfangadúkkum,
fjórum kössum af hraunlömpum
og ferðatösku.
Fjórir úr hópnum eru ákærðir
fyrir innbrot í tvö sumarhús í
Hrunamannahreppi þar sem
þeir létu greipar sópa. Þeir stálu
meðal annars þremur sjónvarps-
flatskjáum, leikjatölvu, iPod
hátalara, tveimur sængum og
skammbyssu.
Loks er einn mannanna ákærð-
ur fyrir vopnalagabrot. Heima
hjá sér var hann með heimatil-
búna sveðju með rúmlega 60
sentimetra löngu blaði, heima-
tilbúinn hníf með 26 sentimetra
löngu blaði og heimatilbúna
gaddakylfu. - jss
Þjófagengi ákært fyrir Héraðsdómi Suðurlands:
Stálu skammbyssu og flatskjáum
FLATSKJÁR Mennirnir stálu þremur
flatskjáum og skammbyssu úr sumar-
bústöðum.