Fréttablaðið - 09.12.2009, Qupperneq 12
12 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
Nýtt aðalskipulag - Ávarp
Júlíus Vífi ll Ingvarsson, formaður skipulagsráðs
Aðalskipulagið og sjálfbær þróun
Björn Axelsson, umhverfi sstjóri
Betri borgarbragur
Harpa Stefánsdóttir, arkitekt
Nýtum og njótum - málefni orkunnar
Þrándur Sigurjón Ólafsson, verkfræðingur,
Orkuveitu Reykjavíkur
Umhverfi sviðmið
Kristín Þorleifsdóttir, landslagsarkitekt
Stefna um vistvæna byggð
Björn Guðbrandsson, arkitekt
Umræður
Fundarstjóri
Ólöf Örvarsdóttir skipulagsstjóri
Morgunfundur í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu,
10. desember kl. 08.30 - 10.00
www.lapulsa.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
UPPLÝSINGATÆKNI Heildarkostnaður ríkisins vegna
hugbúnaðar nam 7,5 milljörðum króna á þriggja
ára tímabili, 2006 til 2008. Þetta kemur fram í
svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Birgittu
Jónsdóttur, þingmanns Hreyfingarinnar.
Fram kemur að í fjármálaráðuneytinu sé hafin
greining á kostnaði við upplýsingatækni hjá ríkinu.
„Auk þess hafa nokkur ráðuneyti nýlega hafið skoð-
un á kostum og göllum frjáls og opins hugbúnaðar.
Búist er við niðurstöðum úr þeirri vinnu næsta vor,“
segir þar.
Fram kemur að kostnaður við sérsniðinn hugbún-
að sé um áttatíu prósent af heildarkostnaði ríkisins
vegna hugbúnaðar þessi þrjú ár.
Þá kemur fram að Þjóðleikhúsið hafi innleitt
opinn og frjálsan hugbúnað fyrir tölvupóstkerfi
og skrifstofuvöndla og talið sé að kostnaðurinn við
þessi kerfi sé fyrsta árið um fjórðungur af árlegum
kostnaði áður.
Ályktar ráðherra því sem svo að til lengri tíma
litið væri hægt að spara verulega fjármuni hjá ríkis-
stofnunum með því að innleiða frjálsan og opinn
hugbúnað. „Sparnaðartækifærin liggja í vali á
skrifstofuvöndli, stýrikerfum og ýmsum sérhæfðum
hugbúnaði. Þó verður að meta kosti slíkra lausna
þar sem flókin vinnsla upplýsinga og notkun stórra
gagnagrunna á sér stað.“
Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft
á Íslandi, kallar þó eftir nánari upplýsingum og
telur trauðla hægt að álykta um mögulegan sparnað
strax. Hann segir að horfa verði til kostnaðar við
rekstur kerfanna. „Samkvæmt okkar tölum, ef tek-
inn er heildarkostnaður af upplýsingakerfum og
rekstri þeirra, þá eru leyfisgjöld að meðaltali 7,5
prósent. Mestur er kostnaðurinn vegna reksturs,
innleiðingar og verkefna af ýmsu tagi,“ segir hann.
Að sama skapi segir hann að tölur um sparnað hjá
Þjóðleikhúsinu séu vart marktækar fyrst ekki sé
um lengra tímabil að ræða. „Viðvarandi rekstrar-
kostnaður er miklu hærri þegar um opinn hugbúnað
er að ræða,“ segir hann. olikr@frettabladid.is
KARDEMOMMUBÆRINN Í ÞJÓÐLEIKHÚSINU Í svari fjármála-
ráðherra um kosti og galla opins hugbúnaðar kemur fram að
Þjóðleikhúsið hafi sparað umtalsverðar fjárhæðir með innleið-
ingu slíks búnaðar í sumar. MYND/ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ
Kanna sparnað með
opnum hugbúnaði
Á þremur árum nam kostnaður ríkisins vegna hugbúnaðar 7,5 milljörðum króna.
Ríkið kannar kosti og galla opins hugbúnaðar og vinnur kostnaðargreiningu.
1. Hversu mikið hækkar heild-
söluverð raforku frá Landsvirkj-
un um áramótin?
2. Hve miklu fé tapaði Árvakur
2008
3. Hvað er brekkubobbi?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46
DÓMSMÁL Íslenska ríkið var sýkn-
að af kröfum landeigenda í tveim-
ur þjóðlendumálum í Vopnafirði
fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
í gær. Í báðum tilvikum höfðu
sækjendur fengið gjafsókn. Greið-
ist sá kostnaður, samtals 2,1 millj-
ón króna, úr ríkissjóði.
Annars vegar var staðfestur
úrskurður óbyggðanefndar um að
landsvæði norðvestan Kistufells
væri þjóðlenda og utan landa-
merkja jarðanna Þorvaldsstaða og
Hamars í Vopnafirði. Um leið var
fallist á að sama landsvæði væri
í afréttareign Þorvaldsstaða og
Hamars.
Hins vegar var staðfestur
úrskurður um að land Mælifells
og Selsárvalla í Vopnafirði væri
þjóðlenda, en afréttareign stefn-
enda í málinu.
Landeigendur höfðuðu málin
tvö, en auk einstaklinga eiga
þar hlut að máli Veiðiklúbburinn
Strengur ehf., Sunnudalur ehf.,
Heljardalur ehf. og Hofsárdalur
ehf. Farið var fram á að úrskurðir
óbyggðanefndar frá maílokum
2007 yrðu felldir úr gildi.
Í úrskurði um gjafsóknar-
kostnað kemur fram að litið sé
til þess að lögmaðurinn sem fór
með málið fyrir hönd sækjenda
hafi annast rekstur fleiri sam-
bærilegra mála vegna aðliggjandi
landsvæða í Vopnafirði. Í öðru
málinu var kostnaðurinn 1,0 millj-
ón króna en 1,1 milljón í hinu.
- óká
STANGVEIÐIMAÐUR Allnokkur þjóð-
lendumál í Vopnafjarðarhreppi hafa
endað fyrir dómstólum.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG.JÖKULL
Hæstiréttur staðfesti tvo úrskurði óbyggðanefndar í Vopnafjarðarhreppi:
Ríkið borgar málskostnaðinn
VOGAR Vel á þriðja hundrað íbúa
í Vogum hafa ritað nafn sitt á
undirskriftalista þar sem þess er
krafist að læknisþjónustu verði
komið upp með starfsaðstöðu í
bæjarfélaginu.
Undirskriftarlistinn var lagður
fyrir bæjarráð á fimmtudaginn og
tekur ráðið undir að nauðsynlegt
sé að tryggja íbúum í Vogum sam-
bærilega þjónustu og tíðkast ann-
ars staðar.
Að því er fram kemur á vef
Víkurfrétta hefur mikil óánægja
verið meðal íbúa bæjarins með
þá ákvörðun heilbrigðisyfirvalda
að loka heilsugæsluseli í bæjarfé-
laginu.
Kristín Hansen stóð fyrir undir-
skriftarsöfnuninni og þakkar bæj-
arráð Voga henni framtakið, að
því er kemur fram í fundargerð
bæjarráðs. - kh
Bæjarráð Voga:
Vilja læknis-
þjónustu í Voga
SAMFÉLAGSMÁL Íslensk stjórnvöld
ættu að endurskoða verklagsregl-
ur í forsjármálum, leggja meiri
áherslu á að hlusta á það sem
börnin vilja sjálf en nú er gert
og virða mannréttindi barnanna,
segir í yfirlýsingu frá stjórn
Kvenréttindafélags Íslands.
Stjórn félagsins tekur þar með
undir nýlega áskorun Femínista-
félags Íslands.
„Ef grunur leikur á ofbeldi
af hálfu annars foreldris verða
börnin að fá að njóta vafans. Vel-
ferð þeirra og hagur skal ávallt
vera hafður í fyrirrúmi,“ segir
í yfirlýsingu stjórnar Kvenrétt-
indafélags Íslands. - bj
Kvenréttindafélag Íslands:
Hlustað á börn
í forsjármálum
VEISTU SVARIÐ?