Fréttablaðið - 09.12.2009, Page 16
16 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
nær og fjær
„ORÐRÉTT“
■ Margar flökkusagnir eru til um
hlutföll líkamans. Þannig er lífseig
saga, en röng, að skónúmer segi
eitthvað um stærð getnaðarlims
manna. Þegar kemur að hlutfalli og
lengd fingra gildir
hins vegar annað
því vísindamenn
beggja vegna Atl-
antsála hafa leitt
í ljós að því lengri
sem baugfingur
er í hlutfalli við
vísifingur, þeim
mun meira hefur verið af karlkyns-
hormóninu testósteróni í móðurkviði.
Konur með lengri vísifingur eru sagð-
ar frjórri en aðrar og karlar með lengri
baugfingur líklegri til að bregðast vel
við líkamlegri þjálfun og ná árangri í
íþróttum.
TESTÓSTERÓN
SÉST Á FINGRALENGD
Nema hvað!
„Þegar handboltinn gengur
svona vel er lífið helmingi
auðveldara.“
BJÖRGVIN PÁLL GÚSTAFSSON
LANDSLIÐSMARKVÖRÐUR
Fréttablaðið 8. desember 2009
Stórborgin í hólminum
„Ég átti reyndar ekki von á
því að Stykkishólmur væri
svona lítill bær.“
SEAN BURTON, LEIKMAÐUR SNÆ-
FELLS Í KÖRFUBOLTA
Morgunblaðið 8. desember 2009
Búist er við allt að fimm
þúsund umsóknum um
aðstoð fyrir jólin til Hjálpar-
starfs kirkjunnar og
mæðrastyrksnefnda. Sam-
tökin fengu 40 milljónir úr
Pokasjóði í gær til að deila
út fyrir jólin. Framlagið er í
formi gjafakorta sem gilda
í matvöruverslunum innan
sjóðsins.
Stjórn Pokasjóðs afhenti Hjálpar-
starfi kirkjunnar og mæðrastyrks-
nefndum í Reykjavík, Hafnarfirði
og Kópavogi gjafakort að andvirði
40 milljóna króna í gær. Gjafa-
kortin gilda í matvöruverslunum
innan sjóðsins og er inneign á
kortunum fimm þúsund og tíu þús-
und krónur. Mikil aukning hefur
verið í umsóknum allt árið bæði
til Hjálparstarfs kirkjunnar og
mæðrastyrksnefnda. Því er gert
ráð fyrir allt að 5.000 umsóknum
um aðstoð nú fyrir jólin.
„Við erum að skrá umsóknir
núna og það er nóg að gera,“ segir
Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi
Hjálparstofnunar kirkjunnar. Hún
segir stefnt að því að ljúka skrán-
ingu á umsóknum á föstudag,
en vinnan við úthlutanir hefst á
mánudag. „Þá byrjum við að
pakka niður jólamat og senda út á
land ásamt gjafakortum og gjöf-
um.“ Nokkur hundruð sjálfboða-
liðar leggja samtökunum lið við þá
vinnu sem fara mun fram í nýrri
sameiginlegri úthlutunarmiðstöð
að Norðlingabraut 12, þar sem
áður var byggingavöruverslunin
Mest. Byggingarfélagið Eykt
hefur lánað húsnæðið til hjálpar-
starfsins.
Biskup Íslands, herra Karl Sigur-
björnsson, og Ragnhildur Guð-
mundsdóttir, formaður Mæðra-
styrksnefndar Reykjavíkur, tóku
við gjöfinni fyrir hönd Hjálpar-
starfsins og mæðrastyrksnefnd-
anna. Síðasti umsóknardagur
fyrir jólaaðstoð er á morgun. Þeir
sem fá aðstoð fá auk gjafakortsins
jólamat miðað við fjölskyldustærð
og jólagjafir ef börn eru á heim-
ilinu. Skráningin er sameiginleg
hjá þessum samtökum sem kemur
í veg fyrir að einhverjir fái úthlut-
að oftar en einu sinni.
Pokasjóður úthlutaði við sama
tækifæri þremur styrkjum, sam-
tals tólf milljónum króna, sem
fara í að styrkja starfsemi fyrir
ungt fólk sem leitar til Krýsuvíkur-
samtakanna, Vímulausrar æsku og
SÁÁ. sigridur@frettabladid.is
40 milljónir úr Poka-
sjóði til bágstaddra
52 MILLJÓNUM ÚTHLUTAÐ Stjórn Pokasjóðs og fulltrúar þeirra sem hlutu styrk frá
sjóðnum í ár. Á myndinni eru í fremri röð frá vinstri Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir
SÁÁ, Jórunn Magnúsdóttir frá Vímulausri æsku, Lovísa Christiansen frá Krýsuvíkur-
samtökunum, Ragnhildur Guðmundsdóttir, formaður Mæðrastyrksnefndar Reykja-
víkur, og Karl Sigurbjörnsson, biskup íslands. Í aftari röð er stjórn Pokasjóðs: Ómar
Valdimarsson, Höskuldur Jónsson, Bjarni Finnsson og Jóhannes Jónsson.
Pokasjóður, sem áður hét Umhverfissjóður verslunar-
innar, úthlutar styrkjum til verkefna sem heyra undir
almannaheill. Má þar nefna verkefni eins og umhverfis-
mál, menningarmál, listir, íþróttir og mannúðarmál.
Pokasjóður fær tekjur af sölu plastburðarpoka í versl-
unum en merki á haldi hvers poka segir til um hvort
verslunin greiðir í sjóðinn eða ekki. Í dag greiða 160
verslanir í sjóðinn og eru þær úti um allt land.
Pokasjóður skiptist í tvær deildir, annars vegar sam-
eignarsjóð og hins vegar séreignarsjóð. Í sameignar sjóð
greiðir hver verslun sem tekur þátt í sjóðnum sextíu
prósent af framlagi sínu og er úthlutað úr þeim hluta
í nafni Pokasjóðs einu sinni á ári eða oftar ef svo ber
undir. Í séreignarsjóð greiðir verslunin 40 prósent af
framlagi sínu og úr þeim sjóði úthlutar hver verslun
eða verslunarfyrirtæki.
Verslanir sem eiga aðild að Pokasjóði eru þessar:
10-11, ÁTVR, Bónus, Hagkaup, Kaskó, Kaupfélag
Héraðsbúa, Kaupfélag Steingrímsfjarðar á Hólmavík,
Kaupfélag V-Húnvetninga á Hvammstanga, Melabúðin,
Nettó, Samkaup úrval, Samkaup strax, Þín verslun og
Seljabraut.
HVAÐ ER POKASJÓÐUR?
„Ég hef nú reyndar aldeilis fréttir. Rétt
áðan vorum við að opna nýja blóma-
búð,“ segir Lára Eiríksdóttir, eigandi
ræstingafyrirtækisins Fjarðaþrifa
og blómabúðareigandi á Strand-
götu á Eskifirði frá því klukkan eitt
í gær.
„Það var hér blómabúð en henni
var lokað fyrir tveimur árum. Það
hefur þurft að fara upp á Egilsstaði
til að fá blóm. Karlarnir hérna á
Eskifirði segja að þeir hafi ekki
gefið konunum sínum blóm í
tvö ár,“ segir Lára sem kveðst
bjartsýn á reksturinn.
„Við höfum ekkert
auglýst en það er búið að
vera fullt að gera frá því
búðin var opnuð áðan.
Mér sýnist ég strax þurfa að panta
meira,“ spáir Lára í spilin.
Lára kveður Eskfirðinga lítið hafa
fundið fyrir kreppunni. Sjálf sé hún
með um 30 manns í vinnu við
ræstingar hjá Fjarðaþrifum sem
sinni verkefnum víða á svæðinu.
„Við höfum auðvitað tekið eftir
því að matvara hefur hækkað en
hér er samt lítið atvinnuleysi. Það
helsta sem ég gæti sagst
vera leið yfir er þessa
endalausa rigning. Ég
held svei mér þá að
það hafi rignt síðan í
fyrra. En maður ætti
víst ekki að kvarta,
rigningin er góð fyrir
rósirnar.“
HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? LÁRA EIRÍKSDÓTTIR ESKIFIRÐI
Konurnar ekki fengið blóm í tvö ár
Meira í leiðinniN1 ÞJÓNUSTUSTÖÐVAR
N1 VERSLANIR
Jólagjöf
veiðimannsins
Veiðikortið fæst hjá N1
WWW.N1.IS
SÍMI 440 1000
„Ég held að netverslun sé ágætt
rekstrarform. Ef þú færð nægar
upplýsingar um bækurnar og
myndir af þeim held ég að það sé
ekkert síðra en að grúska í forn-
bókabúð,“ segir Einar Örn Þor-
valdsson. Einar starfrækir forn-
bókaverslunina Gvend dúllara á
vefnum, og mun það að hans sögn
vera fyrsta íslenska fornbókabúð-
in sem er aðeins aðgengileg á net-
inu.
Verslunin var áður starfrækt á
Klapparstíg en fyrr á árinu ákvað
Einar, og móðir hans sem er skráð-
ur eigandi fyrirtækisins, að breyta
til. Einar varði síðan sumrinu í að
undirbúa vefsíðuna, hanna hana og
forrita, skrá bækur og skanna inn
kápur.
„Jú, þetta var töluverð vinna en
ég kom mér upp ágætis verklagi,“
segir Einar. Þannig hafi þetta
gengið smurt fyrir sig.
Í versluninni fást nú yfir þús-
und titlar, og margir bætast við á
hverjum degi. Hægt er að panta
sér bækur hvert á land sem er, og
auk þess er hægt að senda fyrir-
spurn ef tiltekinn titill finnst ekki
í safninu. Vera kann að hann sé þá
til á lager en eftir sé að skrá hann
í kerfið.
„Þetta fer ágætlega af stað
held ég,“ segir Einar. „Við höfum
ekki verið að auglýsa mikið enn
þá, þannig að það er ekki kominn
neinn rífandi gangur enn, en ég er
bjartsýnn.“ - sh
Hægt er að panta fornbækur á vefsíðu verslunarinnar Gvends dúllara:
Starfrækir fornbókabúð á vefnum
GVENDUR.IS Á vefsíðunni má þegar
finna yfir þúsund titla.