Fréttablaðið - 09.12.2009, Síða 24

Fréttablaðið - 09.12.2009, Síða 24
24 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR SEND IÐ OKK UR LÍNU Fréttablaðið og Vísir hvetja lesendur til að senda línu og leggja orð í belg um málefni líðandi stundar. Greinar og bréf skulu vera stutt og gagnorð. Tekið er á móti efni á netfanginu greinar@ frettabladid.is eða á vefsíðu Vísis, þar sem finna má nánari leiðbeiningar. Ritstjórn ákveður hvort efni birtist í Fréttablaðinu eða Vísi eða í báðum miðlunum að hluta eða í heild. Áskilinn er réttur til leiðréttinga og til að stytta efni. UMRÆÐAN Árni Svanur Daníelsson og Kristín Þórunn Tómasdóttir skrifa um kristni Það er aðventa og allt í kring-um okkur sjáum við merki um að eitthvað er í vændum. Ljós á húsum og trjám, jólalög í útvarpi, auglýsingar og tilboð um hluti til kaupa, tónleikar og listviðburðir til að njóta, eru tákn um það sem er í nánd. Við heyrum líka áköll og áminningar um að veita hjálp og aðstoð þeim sem minna mega sín. Á þessum tíma er við hæfi að staldra við, horfa í kringum sig og lesa tákn- in í umhverfi okkar. Að lesa samfélagið Við sem eigum skólabörn, vitum hvað það er magnað og flókið ferli að læra að lesa. Með mikilli þraut- seigju og þolgæði, og ótal upplestr- arstundum fyrir mömmu og pabba, lærist barninu að skilja að bók stafir og hljóð mynda orð, sem mynda setningar, sem hafa merkingu. Þar með opnast því heill heimur sem það hefur aðgang að, getur lært, skilið og túlkað. Læsi er ekki bara að kunna á stafi, orð og setningar. Læsi í samtíman- um snýst ekki bara um að geta til- einkað sér þekkingu og staðreyndir, heldur líka að geta metið það sem við lesum og heyrum á gagnrýn- inn hátt og skoðað í ljósi þess sem við metum mest í lífinu. Það gerir okkur kleift að tala saman um gildi og verðmæti, og að leggja okkar að mörkum við að móta umhverfið okkar. Að lesa trúna Á aðventunni eru víða haldnir jóla- tónleikar tónlistarskólanna þar sem ótrúlega mörg börn mæta í fylgd stoltra fjölskyldna til að deila gleði tónlistarinnar sem þau hafa verið að nema í haust og vetur. Fegurðin og gleðin sem ríkir yfir unga tón- listarfólkinu er eitt af þeim tákn- um sem okkur er gefið til að minna okkur á það sem skiptir máli í líf- inu, sérstaklega á tímum sem valda okkur ugg og kvíða. Þetta tákn vísar í tvær áttir. Önnur talar við okkur um aðstæð- ur og þarfir barnanna okkar, og minnir á ábyrgð okkar fullorðnu að hlusta á þau, lesa það sem þau hafa fram að færa og hlúa að þeim. Hin áttin vísar til barnsins sem við bíðum eftir á aðventunni. Það er barnið sem stendur fyrir ljós í myrkri, birtu í kulda, kærleika í tómlæti og gleði í kreppu. Það er barnið sem var sent í heiminn til að kenna mönnunum að lesa lífið, svo þeir gætu notið þess í fullri gnægð. Það er farsælt og til heilla að vera læs á táknin í kringum okkur og þar með talið að vera læs á sína eigin trú. Rétt eins og við erum tilbúin að leggja heilmikið á okkur þannig að börnin okkar læri að njóta tónlist- ararfsins berum við ábyrgð á því að þau hafi aðgang að trúararfinum og geti notið hans. Að lesa þarfir Það er ábyrgðarhlutverk að lifa í nútíma samfélagi, að vera upplýst, læs og geta tekið þátt í lýðræðis- umræðu. En ábyrgðin stoppar ekki þar heldur felur hún líka í sér að við eigum að vera þjónar hins góða og talsmenn vonar í samfélaginu. Svo þarf að stíga næsta skref. Jesúbarnið sem kemur býður okkur ekki aðeins að læra af sér og tala heldur kallar það okkur til þjón- ustu við lífið. Hin fjölþætta áskor- un aðventunnar er þá þessi: Að við hlustum, horfum, lesum og þjón- um. Tölum um hið góða líf og þjón- um því í öllu sem við gerum. Höfum augun opin fyrir táknunum kring- um okkur. Fyrir táknum um fegurð, gleði og von, lyftum þeim fram og minnum á þau. Fyrir táknum um það sem er ekki í lagi: um fjölskyld- ur sem líða skort, um fólk sem er troðið á, um misrétti, um misferli, um börn sem fá ekki að vera börn. Við eigum að haga eigin lífi þannig að það sé tími og rými til að láta gott af okkur leiða. Við eigum að láta okkur annt um þau sem þarfn- ast – til dæmis með því að gefa mat, peninga eða tíma til hjálparstofn- ana sem sinna fólki nú fyrir jólin. Við eigum að forgangsraða þannig að börnin okkar finni hvers virði þau eru. Við eigum að vera mál- svarar réttlætis, sáttar og vonar í samfélaginu. Það er trúverðug kristni. Höfundar eru prestar. Trúverðug kristni ÁRNI SVANUR DANÍELSSON KRISTÍN ÞÓRUNN TÓMASDÓTTIR UMRÆÐAN Hermann Þórðarson skrifar um Evrópumál Í forystugrein Frétta-blaðsins 17.11 skrifar Jón Kaldal grein um ESB og vænir þar samtökin Heimssýn um að haga sér eins og sértrúarsöfnuður. Ég geri ráð fyrir því að JK sé Samfylkingarmaður og stuðnings- maður aðildar eftir þessum skrifum að dæma. Andúð greinarhöfundar bein- ist sérstaklega að nýkjörnum for- manni Heimssýnar, Ásmundi Daða Einarssyni, þingmanni VG, og öðrum flokksbræðrum hans sem hafa vogað sér að standa upp í hárinu á Samfylkingunni í Icesave/ ESB-málinu og tekið eigin sannfæringu, eins og þeim ber samkvæmt stjórnar- skránni að gera, fram yfir hollustu við framkvæmd- arvaldið, sem virðist vera í höndunum á fyrrverandi dýrlingi og væntanlegum landsölu- manni, sem kúgar forystu VG til fylgis við ríkisstjórnina í Evrópu- málunum. Samfylkingin er eini stjórnmála- flokkurinn á Íslandi sem styður heilshugar aðild að ESB, hvað sem það kostar, og minnir það um margt á hvernig sértrúarsöfnuðir haga sér. Samfylkingin telur sig vera jafnaðarmannaflokk en hagar sér eins og argasti íhaldsflokkur í þess- um málum. Það er með ólíkindum hvernig VG lætur kúga sig í þessu máli og öðrum vafasömum málum sem núverandi ríkisstjórn beitir sér fyrir. Hvað varðar aðildarumsókn til að fá svar við spurningum okkar sem varða fyrst og fremst auðlind- ir landsins, þá er það þegar vitað hver svörin verða. Allir ábyrg- ir aðilar innan sambandsins hafa fullyrt að okkur standi ekki til boða neinar varanlegar undanþágur frá núgildandi lögum og reglum ESB. Allt annað er bara blekking. Hvað varðar lokaákvörðun um væntan- legan samning um aðild þá hefur Samfylkingin ákveðið, verði hún áfram við völd, að þjóðaratkvæða- greiðsla komi ekki til með að hafa nein áhrif á það hvort samningur- inn verði samþykktur af meirihluta Alþingis eða ekki. Þessi atkvæða- greiðsla verður því ekki bindandi, heldur aðeins „ráðgefandi“. Önnur öfugmæli sem komu mér verulega á óvart var stuðnings- yfirlýsing Heimastjórnar/Heims- stjórnar Ingva Hrafns á ÍNN, en þeir hafa hingað til verið taldir ákveðnir stuðningsmenn „Bláu handarinnar“. Þar var lýst yfir stuðningi við skipun Þorsteins Páls- sonar í samninganefnd Íslands við ESB um aðild vegna reynslu hans í t.d. alþjóðamálum sem fyrrver- andi sendiherra. Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi formaður Sjálfstæðis- flokksins og ritstjóri Fréttablaðsins, er einn af höfundum kvótakerfisins sem færði eina af mikilvægustu auðlindum landsins í hendurnar á útvöldum vinum þáverandi stjórn- valda. Ég efast ekki um það að ÞP mun ekki hika við að gera hið sama fyrir „diplomatíska“ vini sína í ESB. Höfundur er ríkisstarfsmaður á eftirlaunum. Öfugmæli í Fréttablaðinu og á ÍNN UMRÆÐAN Svava Björnsdóttir skrifar um kynferðis- ofbeldi Á síðustu vikum hafa greinar verið birtar í tilefni 16 daga átaks gegn ofbeldi. Mörg góð samtök eru að vinna þarft og gott starf í íslensku samfélagi bæði til að fyrirbyggja kynbundið ofbeldi og hjálpa þeim sem beittir eru ofbeldi. Starf Blátt áfram felst í því að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi og leggur helst áherslu á að fræða fullorðna um hvernig hægt er að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Lengi má telja þær alvar- legu afleiðingar kynferðislegs ofeld- is en ég mæli með nýútkominni bók Þórdísar Elvu Þorvaldsdóttur, Á Mannamáli. Þar er gefin greinar- góð lýsing á afleiðingum ofbeldis- ins bæði fyrir einstaklinginn og samfélagið. Blátt áfram eru sjálfstæð félaga- samtök og er tilgangur samtakanna að efla forvarnir gegn kynferðis- legu ofbeldi á börnum á Íslandi. Í upphafi starfsins árið 2004 kom fljótlega í ljós hversu lítil þekking var á málaflokknum á Íslandi. Fag- fólk sem leitað var til í upphafi til að kynna starfið var á sama stað hvað varðaði skilningsleysi og ótta við að tala um kynferðislegt ofbeldi. Hvernig ofbeldi gerist og mikilvægi þess að tilkynna grun um ofbeldi. Þetta var okkur áhyggju- efni en um leið gaf okkur skilning á þeirri mótstöðu og viðbrögðum stjórnenda á mikilvægi þess að fræða starfsfólk sitt um kynferðis- legt ofbeldi. Flest viðbrögð- in voru, þetta gerist ekki hér – við þurfum ekki að tala um þetta – ertu að áska okkur um eitthvað? Með samúð og skilning á þeim mannlegu viðbrögðum sem við sáum aftur og aftur lögðum við fram staðreyndir málaflokks- ins sem og hinar mörgu leiðir til að fyrirbyggja ofbeldið. Ein af hverjum 5 stúlkum og einn af hverjum 10 drengjum eru beitt kynferðislegu ofbeldi fyrir 18 ára aldur samkvæmt rannsókn Hrefnu Ólafsdóttur félagsráðgjafa. Síðastliðin ár hefur sókn í fræðslu fyrir fullorðna, námskeiðið Vernd- arar barna, verið jafnt og þétt að aukast. Eru það góðar fréttir og er skilningur á mikilvægi þess að hvert og eitt okkar taki ábyrgð á þeirri þögn sem ríkir yfir kynferðis legu ofbeldi, að skila sér. Í fræðslunni finnum við að erfiðast er að ræða þetta við þá nánustu og að huga að þeim möguleika að ofbeldismann/ konu gæti verið að finna í fjölskyld- unni, eða í þjónustuhlutverkum þar sem við treystum öðrum fyrir börn- um okkur nær 100%. Á námskeiðinu Verndarar barna fær einstaklingur- inn, hvort sem hann er sálfræð- ingur, kennari, prestur eða faðir/ móðir, tækifæri til að hugsa sig vel um, og tjá sig um hver er helsti ótt- inn við það að tala um kynferðislegt ofbeldi, eða við það að tilkynna grun um ofbeldi. Þetta er fyrsta skrefið. Þegar fólki tekst að yfirstíga ótt- ann og sér að með því að velja að treysta sjálfum sér, tala um ofbeldi er það ekki lengur að samþykkja ofbeldi. Það er að taka ábyrgð á sér og sínum og er í leiðinni frábært fordæmi fyrir aðra í sam félaginu. Blátt áfram hefur reglulega boðið fjölmiðlafólki sem og hæstaréttar- dómurum á námskeiðið Verndar- ar barna og vil ég hér með minna á það sem og hvetja sem flesta til að sækja þetta námskeið sem sam- kvæmt rannsóknum (rannsókn Darkness to Light) breytir hegðun og tryggir öruggara umhverfi barna með því að rjúfa þögnina. Höfum hugrekki til að tala blátt áfram um kynbundið ofbeldi, sam- þykkjum það ekki með þögn okkar. Boðið er upp á námskeiðið Vernd- arar barna umhverfis landið, vin- samlegast heimsækið heimasíðu Blátt áfram til að finna leiðbeinanda í þínu bæjarfélagi. Höfundur er varaformaður sam- takanna Blátt áfram. Þögn er sama og samþykki HERMANN ÞÓRÐARSON SVAVA BJÖRNSDÓTTIR ÖRYGGISMÖRK Í HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU Ráðstefna á vegum Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu á Grand hótel miðvikudaginn 9. desember kl. 13:30 Fundarstjóri: Þóra Arnórsdóttir fjölmiðlakona Setning: Gísli Páll Pálsson formaður Samtaka fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu Að lokinni framsögu verða pallborðsumræður AÐGANGUR ÓKEYPIS Frummælendur verða: Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra Árni Páll Árnason félags- og tryggingamálaráðherra Anna Stefánsdóttir framkvæmdastjóri hjúkrunar á Landspítala Háskólasjúkrahúsi Eva Þengilsdóttir varaformaður samtakanna Almannaheill Pétur Blöndal alþingismaður

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.