Fréttablaðið - 09.12.2009, Page 25
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
„Það er heilmikil spenna fyrir
þessari ferð, enda skilst mér að
þarna sé gríðarlega fallegt og
eflaust gaman að keyra,“ segir
Axel Eiríksson, úrsmíðameist-
ari og meðlimur í BMW-mótor-
hjólaklúbbnum á Íslandi. Nokkrir
félagar í klúbbnum vinna hörðum
höndum um þessar mundir við
að skipuleggja heljarinnar hjóla-
ferð til Skotlands í apríl næstkom-
andi.
Ferðin verður óvenjuleg að
vissu leyti, því hjólin verða send
út í gámi með Samskipum, og
svo aftur til Íslands að ferðinni
lokinni. Þátttakendurnir fljúga
svo utan og til baka með Iceland-
air. Sjálf ferðin verður farin frá
Immingham, sem er á austur-
strönd Bretlands, og réttsælis
í stóran hring umhverfis Skot-
land. Gert er ráð fyrir að ferðin
taki í kringum tíu daga og verður
þátttakendum skipt upp í þrjá hópa
sem hittast í upphafi ferðarinnar,
um hana miðja og í lokin. Þegar
hafa nítján meðlimir skráð sig í
ferðina og ætla nokkrar eiginkon-
ur að fljóta með þótt þær hjóli ekki
sjálfar. „Við köllum eigin konurnar
stundum „hnakkaskraut“ að gamni
okkar,“ segir Axel og hlær. Auk
þess eiga nokkrir meðlimir hjól
þar úti sem þeir koma til með að
keyra í ferðinni.
Lagt verður upp með að finna í
það minnsta einn stað á hverjum
degi, sem áhugavert er að skoða
og býður upp á skemmtilegan
hjólaakstur. Axel segir að það
muni varla verða vandamál, enda
mikið af háum heiðum og stór-
brotnu landslagi í Skotlandi.
Í Englandi mun hópurinn fara
í viðtal hjá dagblaðinu Grimsby
Telegraph, og til stendur að
erlendir mótorhjólaklúbbar muni
jafnvel heimsækja Ísland í sama
tilgangi í kjölfarið.
Þetta er fyrsta eiginlega ferðin
sem klúbburinn fer út fyrir land-
steinana. Nokkrir meðlimir ferðuð-
ust þó til Þýskalands fyrir tveimur
árum þar sem þeir sóttu námskeið
í utanvegaakstri. „Klúbburinn er
tveggja ára gamall og þó nokk-
uð virkur,“ segir Axel. „Síðasta
sumar var til dæmis heilmikið að
gerast og margar ferðir farnar,
þar á meðal ein afar eftirminnileg
að Jökulsárlóni. Meðlimir klúbbs-
ins eru misvanir eins og geng-
ur, og einn okkar var sídettandi
á hjólinu. Hann var allur af vilja
gerður en þetta gekk bara ekki
upp hjá honum. Á endanum var
hann orðinn svo þreyttur að einn
okkar þurfti að reiða hann burt
af svæðinu, sem er ekkert grín
í svona sandi eins og þarna er,“
segir Axel. kjartan@frettabladid.is
Mikill spenningur fyrir
Skotlandsferð í apríl
Meðlimir í BMW-mótorhjólaklúbbnum á Íslandi ætla að leggja land undir fót í apríl og þeysa hringinn í
kringum Skotland. Hjólin verða send út með gámi og svo fylgja þátttakendur eftir með flugvél.
Hér sést hópurinn sem fór í eftirminnilega ferð að Jökulsárlóni síðastliðið sumar. Axel Eiríksson er annar frá vinstri.
MYND/ÚR EINKASAFNI
HÁDEGISGÖNGUR Ferðafélags Íslands eru
farnar á þriðjudögum klukkan 12 og á fimmtudögum
klukkan 14. Á þriðjudögum er gengið frá Árbæjarlaug
og um Elliðaárdal en á fimmtudögum er gengið frá
Nauthólsvík eftir ýmsum leiðum við sjóinn. www.fi.is
• Dregur úr vöðvaspennu
• Höfuð- háls- og bakverkjum
• Hefur góð áhrif gegn streitu
• Er slakandi og bætir svefn
Opið virka daga frá kl. 9 -18 og laugardaga til jóla kl. 11-16
www.eirberg.is • 569 3100 • Stórhöfða 25
Verð frá 9.750 kr.
Nálastungudýnan
NETHYL 2, SÍMI 5870600, WWW.TOMSTUNDAHUSID.IS
ÖFLUGIR FJARSTÝRÐIR
RAFMAGNS-
OG BENSÍNBÍLAR
Í MIKLU ÚRVALI.
Draumadúnsængin
100% dúnn (790 gr)
Jólatilboð 23.990 kr
Verð áður 29.990 kr