Fréttablaðið - 09.12.2009, Page 34
9. DESEMBER 2009 MIÐVIKUDAGUR6 ● fréttablaðið ● leikur í höndum
Þær Jónína Margrét Sævarsdóttir myndlistar-
kennari og Siv Heiða Franksdóttir, textílkennari
í Rimaskóla, bjuggu til fallega stjörnu úr afar
ódýrum efniviði, eða aðeins sex hvítum 80 g
blöðum.
„Þetta eru blöð eins og eru notuð í ljósritunarvélar
og það má að sjálfsögðu nota aðra liti segir Jónína
Margrét. Þetta virðist við fyrstu sýn frekar flókin
smíð en hún er í raun sáraeinföld eins og sést á
myndunum en jafnvel sex ára börn geta búið til
stjörnur sem þessa.“ Siv Heiða tekur undir það og
segir þetta geta verið skemmtilegt föndur. „Við
höfum verið að gera þetta hér í skólanum og þetta
hefur vakið mikla lukku. Börnin eru einnig oft svo
hissa hvernig hægt er að skapa svona listaverk úr
jafn einföldu hráefni og ljósritunarpappír.“ En nú
ætlum við að fara yfir þetta skref fyrir skref. - uhj
Listaverk gert úr
ljósritunarpappír
1. Brjótið A4-blað í ferning, þannig
að allir hliðar séu jafnlangar. Klippið
afganginn af eins og sést á myndinni.
2. Brjótið blaðið því næst aftur saman
horn í horn, eins og gert er hér að ofan.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
3. Snúið lokaða endanum að ykkur og
klippið með 1-1,5 sm millibili upp í lok-
aða brotið. Klippið ekki lengra en 1-1,5
sm að brúninni á hinum enda.
4. Þegar ferningurinn hefur verið klipptur lítur hann svona út.
7. Þá er útkoman eins og þessi. Þetta er
aðeins einn vængur í jólastjörnuna en
í hana þarf sex vængi. Endurtakið því
leikinn sex sinnum.
9. Hér er jólastjarnan tilbúin, ótrúlega
falleg en búin til úr mjög ódýru hráefni.
Hana er líka mjög auðvelt að gera, allt
sem þarf er að klippa, líma og hefta.
Þær Siv Heiða Franks-
dóttir og Jónína Margrét
Sævarsdóttir, kennarar
í Rimaskólar, eru hug-
myndaríkar í föndrinu en
jafnframt útsjónarsamar.
8. Raðið stjörnunum í hring og heftið í
miðjunni. Heftið svo saman hliðarnar,
tvær og tvær. Heftið borða í miðjuna ef
þið ætlið að hengja hana upp.
5. Takið tvær innstu ferningaræmurnar og límið þær saman
með límstiftinu svo úr verður hálfgerður sívalningur.
● VEGGFÓÐUR Í LÍTIL RÝMI
Ýmsum ráðum má beita til að lífga
upp á króka og kima í húsum,
geymslur og þess háttar, sem undir
venjulegum kringumstæðum vekja
litla eftirtekt. Eitt þeirra er að vegg-
fóðra umrætt rými með fallegu,
gamaldags veggfóðri eða jafnvel af-
göngum af gömlu veggfóðri, gefist
húsráðanda færi á að komast yfir
slíkar gersemar. Ef húsið hefur al-
mennt yfir sér látlaust yfirbragð
spillir svo ekki fyrir að nota skraut-
lega mynstrað veggfóður, ef völ er
á, svo úr verði skemmtileg mótsögn
við annað í nánasta umhverfi.
● KÖKUDISKAR KOMA
SÉR VEL Hægt er að fegra
stofuna með ýmsum einföld-
um aðferðum. Ein er að koma
fallegum kökudiski, helst á
nokkrum hæðum, fyrir á miðju
borðstofuborðinu. Svo er um
að gera að skreyta það með
fallegum munum, svo sem lit-
ríkum kertum, krukkum eða
bollum og setja
þá minnstu
efst og stærstu
neðst, blómum
eða girnilegum
smákökum
sem búið er að
binda fallega,
marglita borða
utan um.
Girnilegar súpuuppskriftir og stólar í stíl.
Glæsileg og hagnýt bók til gjafa.
Fæst í bókaverslunum og í verslun Sölku, Skipholti 50 c.
www.salka.is
6 blöð af ljósritunarpappír
blýantur
skæri
límstifti
heftari
hefti
EFNI OG ÁHÖLD
10. Hér er jólastjarnan í
margvíslegum litum, en
nota má til dæmis annan
lit af pappír, glitlím eða
tússliti til þess að búa til
frekara mynstur.