Fréttablaðið - 09.12.2009, Side 42
26 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Skúli Magnússon varð
fyrstur Íslendinga skipaður
landfógeti Íslands þennan
dag árið 1749.
Skúli fæddist að að
Keldunesi í Norður-Þing-
eyjarsýslu 11. desember
1711. Hann hélt til náms í
háskólann í Kaupmanna-
höfn árið 1732 og var þar
til 1733 en lauk þó ekki
prófi. Skúli tók við embætti
sýslumanns í Skaftafells-
sýslu tveimur árum síðast
og svo í Skagafjarðarsýslu
1737. Hann var skipaður
landfógeti Íslands tíu árum
síðar, sem fyrr sagði, og er
oft kallaður Skúli fógeti.
Þá stofnaði Skúli ásamt
fleirum íslenskum embættis-
mönnum félagið Innrétt-
ingarnar á Þingvöllum 17.
júlí 1751 til að vinna að við-
reisn íslenskra landshaga,
en þess má geta að hann
var einn helsti boðberi upp-
lýsingarinnar á Íslandi og
hefur jafn framt verið kall-
aður faðir Reykjavíkur.
Skúli bjó í Viðey þar sem
Viðeyjarstofa var reist sem
embættisbústaður á árun-
um 1753-55. Hann lét af
embætti sökum aldurs árið
1793 og lést ári síðar.
Heimild: www.wikiped-
ia.org.
ÞETTA GERÐST: 9. DESEMBER 1749
Skúli Magnússon skipaður landfógeti
MERKISATBURÐIR
1905 Lög um aðskilnað ríkis og
kirkju samþykkt í Frakk-
landi.
1917 Bretar ná Jerúsalem af
Tyrkjaveldi í fyrri heims-
styrjöldinni.
1926 Á Stokkseyri verður mikill
eldsvoði. Brenna sjö hús,
en ekkert manntjón verður.
1956 Stærsta skip sem Íslend-
ingar hafa eignast, Hamra-
fell, kemur til landsins.
Skipið er 167 metrar á
lengd og getur hvergi
lagst að bryggju á Íslandi
nema í Hafnarfirði stærð-
ar sinnar vegna.
1990 Lech Wałesa verður fyrsti
lýðræðislega kjörni forseti
Póllands.
1996 Sameinuðu þjóðirnar
hleypa af stokkunum að-
gerðinni Olía fyrir mat í
Írak.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og
amma,
Guðrún Elísabet
Þórðardóttir
áður Heiðargerði 1, Reykjavík og
Víðihóli, Mosfellsdal,
lést á Droplaugarstöðum 3. desember. Útförin fer fram
frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 16. desember
kl. 13.00.
Þórdís Árnadóttir Ingvar Birgir Friðleifsson
Þórður Árnason Vilborg Oddsdóttir
Guðrún Ingvarsdóttir Hildur Ingvarsdóttir
Árný Ingvarsdóttir Elísabet ÞórðardóttirMOSAIK
Fyrrverandi eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Ásgeir Sæmundsson
frá Selparti,
andaðist á Fossheimum Selfossi laugardaginn 5. desem-
ber. Útförin fer fram laugardaginn 12. desember
frá Villingaholtskirkju kl. 11.00.
Magnea Sigurbergsdóttir
Guðbrandur Gíslason
Anna Lísa Andersen
Sæmundur Ásgeirsson
Ólína Ásgeirsdóttir Alexander Hafþórsson
Bragi Ásgeirsson Petra Nicola Deutrich
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
G. Frímann Hilmarsson
frá Fremstagili, Langadal,
Skógargötu 17b, Sauðárkróki,
lést 3. desember sl. á Heilbrigðisstofnuninni á
Sauðárkróki. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju
laugardaginn 12. desember kl. 14.00. Blóm og kransar
eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast hans er bent
á Krabbameinsfélagið.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Kolbrún J. Sigurjónsdóttir.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og
útför afa okkar, fósturföður og frænda,
Sigmundar Bjarnasonar
Sólvangi Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk á 3ju hæð Sólvangs fyrir
frábæra umönnun og kærleik síðastliðin 13 ár.
Ásthildur Jónsdóttir
Gunnur Friðriksdóttir
Jón Þór Ólason
Sigríður Jónsdóttir
Sjöfn Þórarinsdóttir
Vilhelmína Vilhjálmsdóttir
Barítónsöngvarinn Sigurður Braga-
son gaf út diskinn Líf & ljóð fyrir
skemmstu en þar er að finna íslensk
sönglög flutt í tímaröð frá lögum elstu
íslensku tónskáldanna til hinna yngstu.
Lögin spanna rúmlega hundrað ára
sögu en elsta tónskáldið á disknum
Bjarni Þorsteinsson fæddist árið 1847
og það yngsta Tryggvi M. Baldvins-
son 1965.
„Fyrstu tónskáldin sem sóttu sér
menntun og fóru að skrifa nótur og
semja lög undir nafni eru fædd rétt
fyrir miðja síðustu öld en hin yngstu
sem eru að koma fram á sjónarsviðið í
dag eru fædd á bilinu 1965 til 1980. Ís-
lenska sönglagið á sér því ekki nema
um það bil 130 til 140 ára sögu,“ segir
Sigurður.
Sigurður flutti efnisskrána ásamt
Hjálmi Sighvatssyni píanóleikara fyrst
í Corcoran-listamiðstöðinni í Washing-
ton árið 2004. „Við fengum góða dóma
í Washington Post og var sérstaklega
vel tekið af áhorfendum sem sumir
kölluðu á meira út úr sal auk þess sem
þeir vildu frekari útskýringar á lögun-
um, en ég lét smávegis formála fylgja
hverju lagi. Ég átti allt eins von á því
að vera með sofandi sal þar sem áhorf-
endur höfðu aldrei heyrt lögin áður og
komu viðtökurnar því ánægjulega á
óvart,“ segir Sigurður. Íslensk sönglög
virðast því höfða vel til fólks utan land-
steinanna en Sigurður hefur flutt þau
á ensku, þýsku og ítölsku. „Velgengn-
in varð til þess að okkur var boðið
að flytja efnisskrána í Saint John‘s,
Smith Square í London, Boromini-tón-
leikasalnum í Róm og í Bonn en í fram-
haldi af því var diskurinn tekinn upp.
Við sjáum síðan fram á að flytja hana
víðar og stefnum meðal annars að því
að halda tónleika í tengslum við bóka-
messuna í Frankfurt 2011 þar sem Ís-
land verður sérstakur gestur. Það
skal þó tekið fram að
það gerum við á eigin
vegum.“
Sigurður segir disk-
inn gefa nokkuð góða
mynd af þeirri þróun
sem hefur orðið í ís-
lenskri sönglagatón-
list. „Þetta eru auðvitað
mjög mismunandi tón-
skáld. Sigfús Einarsson
með sínar dásamlega
fallegu melódíur, Páll
Ísólfsson með síðróm-
antíkina og síðan nýrri
tímar með Leifi Þórarins-
syni svo dæmi séu tekin.
Síðasta lagið á diskn-
um, Heimskringla eftir
Tryggva M. Baldvins-
sonar, er svo raunveru-
lega djassað sving.“
Sum laganna á diskn-
um hafa aldrei verið
hljóðrituð. „Ég veit ekki til þess að
Í þessu túni eftir Leif Þórarinsson,
Komdu eftir Atla Heimi Sveinsson,
Róa rambinn eftir Jónas Tómasson,
Sóta vísur eftir Magnús Blöndal og
Lagstúfur úr Atómstöðinni eftir Þor-
kel Sigurbjörnsson hafi verið hljóðrit-
uð. Það getur þó vel verið að einhverjar
upptökur séu til en ég vonast til þess að
diskurinn verði til þess að lögin varð-
veitist enn frekar.“ vera@frettabladid.is
SIGURÐUR BRAGASON: GEFUR ÚT SÖNGDISK SEM SPANNAR HUNDRAÐ ÁR
Flytur sögu ísenska sönglagsins
GEFUR GÓÐA MYND Diskur Sigurðar gefur góða mynd af þeirri þróun sem hefur
orðið í íslenskri sönglagatónlist. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HERMANN GUNNARSSON FÆDD-
IST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1946.
„Það er aldrei of seint að
finna rokkarann í sér.“
Hermann Gunnarsson er einn
fremsti knattspyrnumað-
ur sem Ísland hefur alið. Að
knattspyrnuferlinum loknum
starfaði hann um langt skeið
í sjónvarpi og stýrði meðal
annars hinum vinsæla þætti Á
tali hjá Hemma Gunn. Í dag er
Hermann með þáttinn Svar-
aðu nú á Bylgjunni.
AFMÆLI
FELICITY
HUFFMAN
leikkona er
47 ára.
JOHN
MALKOVICH
leikari er 56
ára.
KARA
DIOGUARDI
tónlistar-
maður er
39 ára.
DONNY
OSMOND
tónlistar-
maður er 51
árs.