Fréttablaðið - 09.12.2009, Side 44
BAKÞANKAR
Jóns
Sigurðar
Eyjólfssonar
28 9. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Pondus Eftir Frode Overli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Barnalán Eftir Kirkman/Scott
Í dag syrgjum við
marg verðlaunaðan
körfuboltamann.
Sjáðu hvað ég fann
uppi á háalofti!
Gamla keppnisbún-
inginn hans pabba
þíns!
Ertu
ekki að
grínast?
Er þetta
hann?
Hann var svolítið
grey í þessum
stóra búningi
með hokkí-kylf-
una sína.
Dísus
kræst!
Hann er
sjálflýs-
andi!
Þetta þótti
flott á sínum
tíma!
Já,
kannski
á sínum
tíma.
Jájá.
Flytjum
við til
ömmu?
Já, bara í nokkrar
vikur, þangað til
hann jafnar sig á
þessu.
Heimurinn er
vonlaus
Kannnski væri heim-
urinn öðruvísi ef þú
reyndir bara að brosa.
Þú hefur rétt
fyrir þér.
Heimurinn er
vonlaus og mér
er illt í andlitinu.
Mamma og pabbi
ætla með okkur á
safn.
Á hvað?
Á safn. Það er staður þar sem
maður gengur um og horfir
á gömul málverk, styttur og
hluti.
Ó.
Hvað
gerðum við
af okkur
núna?
Ekkert, ég
held að
þau séu
bara að
vera vond
við okkur.
Þetta verður
fræðandi ferð!
Ég velti því fyrir mér hvaða þankar þjóti þessa dagana um toppstykki
helstu leikenda í Icesave-samningamál-
inu. Hvernig undirbúa þeir sig áður en
þeir fella sinn lokadóm? Hvað bærist til
dæmis um í huga þínum, kæri forseti, nú
þegar kaleikurinn fikrast í átt til þín?
ÞAR sem þú ert nú að vestan langar mig
að gauka að þér ráði undan mínum
vestfirsku rifjum. Ég veit um
afbragðsæfingu svo þú getir þjálf-
að dómgreind þína áður en þjóð-
in fær að finna fyrir henni. Hún
felst einfaldlega í því að fletta upp
í mannkynssögunni og setja sig í
spor þeirra sem urðu að taka mik-
ilvægar ákvarðanir. Leikur þessi
getur vonandi orðið til þess að
létta pressuna á þér því það er
alltaf gott að finna fyrir því,
á erfiðri stundu, að þú ert
ekki einn. Það er fullt af
fólki sem hefur haft örlög
þjóða sinnar í höndun-
um.
Í ÞÍNU tilfelli
væri því eflaust
við hæfi að setja
þig í spor Príams
Trójukonungs og
spyrja; hvað gerir þú nú þegar Grikkir
koma færandi hendi með þennan líka
flotta tréhest?
HVAÐ er þá til ráða? Laokon bendir þér
á að líklegast séu brögð í tafli því hestur-
inn er holur að innan. Ódysseifur og
félagar sem hafa komið sér fyrir í kviði
hestsins fá í magann þegar þeir heyra
hversu varir Trójumenn eru um sig.
Gyðjan Aþena kemur þeim hins vegar
til hjálpar og sendir snák á Laokon til að
koma honum og tortryggni hans fyrir
kattarnef. Ekki veit ég hvort Aþena er nú
á ferðinni með sín bellibrögð sem valda
því að stjórnarþingmenn sem eru nei-
kvæðir gagnvart Icesave-samningunum
verða allt í einu svona önnum kafnir við
aðra hluti en þingstörf.
JÁ, ÓLAFUR, hvað hefðir þú gert? Það
kann aldrei góðri lukku að stýra að reita
guðina til reiði. Slíkt þýðir venjulega vov-
eifleg endalok. Sagan sýnir líka að örlög
Tróju voru ráðin um leið og tekið var við
gjöf frá brögðóttum andstæðingnum.
ÞETTA er kannski of stressandi leikur, ég
held ég viti betri aðferð. Þú tekur krónu,
ekki af fjárlögum samt, segir síðan „ef
þorskurinn kemur upp skrifa ég undir“.
Síðan er peningnum kastað.
Ráð handa Ólafi Ragnari
POPP er nýtt fylgirit Fréttablaðsins
og kemur út mánaðarlega.
Við viljum að þið sendið okkur
klikkuðustu símamyndirnar ykkar.
Bestu myndirnar birtast í næsta tölublaði og
höfundur bestu myndarinnar fær tvo kassa
af Doritos í verðlaun.
Sendið myndirnar í síma:
696 POPP (696 7677) eða á
popp@frettabladid.is
Við viljum tvífara fræga fólksins!
Er kærastan þín eins og Angelina Jolie eða er
vinur þinn eins og Jack Black? Sendu okkur mynd
til sönnunar og hún gæti birst í næsta tölublaði.