Fréttablaðið - 11.12.2009, Page 47
Sölufulltrúar Henný Árnadóttir henny@365.is 512 5427 Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is 512 5447
SKOTTMARKAÐUR verður haldinn á bílastæði Kjarvalsstaða á morgun frá
12 til 14. Á skottmarkaði er heimilisbíllinn notaður sem sölubás og getur fólk
selt allt milli himins og jarðar úr bílskottum sínum. Íbúasamtök Hlíða, Holta
og Norðurmýrar standa fyrir markaðnum. Viðburðurinn er ókeypis og opinn
öllum.
„Ég er farin að borða eitt til tvö
hamingjuský á dag og hefur sjald-
an liðið betur,“ segir ljósmyndar-
inn og matgæðingurinn Áslaug
Snorradóttir sem býður upp á
samnefnt lostæti á veitingastaðn-
um sínum Marengs sem hún rekur
ásamt Önnu Elínborgu Gunnars-
dóttur á annarri hæð Listasafns
Íslands.
„Það voru einmitt að fara frá
mér sex konur sem hreinlega svifu
út eftir að hafa fengið sér ham-
ingjuský,“ bætir hún við. Skýið er
búið til úr marengs, sem Áslaug
segir ekkert annað en prótín og
pínu sykur, hindberjum og hind-
berjasafa, köldum léttþeyttum
rjóma og nýkreistum granatepl-
um. „Samkvæmt indverskri speki
þá er rjómi ein besta sælan fyrir
kroppinn og granatepli eru með
því hollasta sem maður getur í
sig látið. Ef ég er í þannig skapi
dreifi ég síðan möndlum og sjö-
tíu prósent súkkulaði yfir.“ Með
hamingjuskýinu, sem er skreytt
með rós, er ýmist drukkið rósate í
glærum kötlum eða freyðivín sem
Áslaug segir eiga sérstaklega vel
við um helgar.
Á Marengs, sem er opinn milli
ellefu og fimm eins og safnið, er
lagt upp úr því að bjóða upp á mat
sem gleður augu, nef, munn og
síðan allan kroppinn. „Á undan
mörgum réttum bjóðum við upp
á ofurskot sem eru til dæmis búin
til úr sítrónu og engifer eða sell-
eríi og gúrku en þau eru góð fyrir
meltinguna. Þá erum við með alls
kyns súpur, salöt og eftirrétti. Við
reynum að passa upp á að fólk fái
fræ-, hnetu- og súkkulaðiskammt-
inn sem vænst er til þess að það
borði á hverjum degi og hugsum
matinn út frá því hvernig líkam-
anum líður. Við erum þó líka með
sætindi í bland og falla vöfflur og
kakó með rjóma vel í kramið. Mar-
engsinn er þó alveg sérstaklega
vinsæll en hann er svo léttur og
fer svo vel í kroppinn.“
vera@frettabladid.is
Sæla fyrir kroppinn
Eitt af aðalsmerkjum veitingastaðarins Marengs, sem opnaði í Listasafni Íslands í byrjun mánaðarins, er
hamingjuský. Það gleður augu og bragðlauka svo um munar og fær gesti til að svífa út á bleiku skýi.
Þegar þær Anna Elínborg og Áslaug eru í þannig skapi bæta þær möndlum og sjötíu prósenta súkkulaði ofan á skýið.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
HAMINGJUSKÝ
fyrir 1
Ein stór lúka marengs (heimabakaður
eða keyptur)
Stór lúka þiðin ber (til dæmis hindber
og smá safi með)
Svipað magn af þeyttum rjóma
Fræ úr hálfu granatepli
Rós til augnayndis
Setjið marengsinn á ljósan disk með
bleikum kanti eða disk úr konung-
legu dönsku postulíni en það virkar
langbest. Setjið rjóma ofan á mar-
engsinn, ber ofan á rjómann og fræ
úr granatepli yfir. Setjið rós á topp
sælunnar og berið fram með rósatei
eða freyðivíni.
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
Snitzel
samloka
Kaffi tería Perlunnar á 4. hæð
Snitzel samloka með súrsuðum rauðlauk,
fersku káli og piparrótarsósu
Jólahlaðborð Perlunnar hefst 19. nóvember
Tilboð mán.-þri. 6.890 kr. — Verð: 7.890 kr.
Villibráðarhlaðborðinu lýkur 18. nóvember
Tilboð mán.-þri. 7.290 kr. — Verð: 8.290 kr.
Aðeins
790 kr.