Vikan


Vikan - 01.06.1961, Blaðsíða 12

Vikan - 01.06.1961, Blaðsíða 12
Símon Njálsson og Þórarinn Jónsson Gísli Albertsson. HÖFNIN i Ileykjavik liefur ætíð liaft mikið aðdráttarafl. Fólk fjöl- mennir þangað á góðviðrisdögum með börnin sín, til að sýna þeim skipin og annað sem fyrir er að liitta á staðnum. Svo eru þeir er hafa áhuga á ljósmyndun ekki sjaldséðir og er sannast máta, að þeir sem við höfnina starfa eru orðnir nokk- uð vanir því að vera fyrirsætur á- hugaljósmyndara. Og blöðin sjá þá heldur ekki í friði. Frægastur manna við höfnina er hann Þórarinn gamli Jónsson. Þórarinn kom inn i þennan heim fyrir rúmum 92 árum vestur í Arnarfirði, en hvar hann fer út úr honum aftur, skal látið ósagt. Hann er staðráðinn í að lifa manna lengst og virðist óhætt að segja, að honum miði drjúgum i þá áttina. Þórarinn lifði á sjó og við framan af, var á skútum og bátum í æsku, eða það iná vist segja um fyrstu þrjá eða fjóra áratugi ævi hans. Hann kveðst aldrei á togara hafa komið, svo þeirri hlið íslenzks fiskifangs hef- ur hann ekki kynnzt á stuttri ævi. Hálffimmtugur ræðst hann til starfa hjá nýstofnuðu Eimskipafélagi Is- lands og þar hefur hann haft sína afkomu síðan. Þórarinn er mikill grínisti og ekki laust við að maður trúi varlega sumu af því, sem hann segir. Það er skemmtilegt að sjá hann dudda þetta fram og aftur á bryggjunni, því hann hefur svo sér- stakt lag við vinnuna, sem ekki sést daglega annarsstaðar. Ásamt Þór- arni er Sírnon Njálsson, berserkur mikill og mátti hann ekki vinnu sinnar vegna, vera að því að spjalla nokkur orð og kvað við er mynd- inni af honum var haldið til lians: Ég tít ekki á þetta helv. . .“ Svo mörg voru þau orð og kröftug að sama xkapi. Símon hefur greinilega verið hamrammur þennan dag, því hann þekktist iíla af nærstöddum fyrir sama mann og fór hann ómjúkum hö'ndum um verkefni sín. Sfmon er Stokkseyringur að uppruna, en sök- um fámæiis lians var ekki unnt að rekja ættir hans né heldur ákvarða aldur mannsins og við það situr. Nú skulum við snúa okkur að Gísla Albertssyni. Hann hefur ekki komið nær sjávarstörfum, en að vinna þarna á Eyrinni. Hins vegar hefur hann stundað störf þau er land- búnaðarstörf eru kölluð á nútíma- máli.,Gísli er kominn úr Skagafirði og þar sem liann var hlaupari mikill í fyrri tíð er nær að halda, að þá list hafi hann numið í eltingaleik við eftirlæti Skagfirðinga, hestinn. Hann er kominn yfir sextugt er því farinn að draga á Þórarin gamla. Þegar hér var komið máli, var frið- urinn skyndilega rofinn. Var ekki gott að átta sig í fyrstu hvað væri á seyði. Þó kom það í ljós, að þarna var kominn maður, sem taldi sig eiga slikt erindi við blaðamanninn, að því yrði eigi við komið, nema með háreysti. Var jiað á þá leið, jiað sem skildist, að hér væri enginn andskotans viðtalsstaður og færi maðurinn ekki í brott, þá skyldi lög- reglan kölluð á vettvang og væri þá ekki víst að menn yrðu kátir við. Stoðuðu engin mótmæli, ]>ví maður- inn lýsti því yfir að hann réði hér einn. Nú kom lögreglan ekki, enda hætti yfinnennið að svo komnu máli af góðmennsku sinni að láta stinga blaðamanninum inn. Nú var ekki ó- eðlilegt að fengnar yrðu upplýsing- ar um hver liér væri kominn, en að sið höfðingja, jieirra sem litið vilja yfir alþýðu rísa, þá hélt maðurinn nafni sínu vandlega leyndu. En myndavélin brá sér á loft, til að fyrirbyggja að ásjóna þessa öðlings yrði gleymd, þá er maðurinn sjálfur væri kominn undir torfu eða í krukku. Og er hann úr sögunni. Þar sern veður var hið hlíðasta, var haldið áfram ferðinni og var gengið vestur bryggju framhjá tollbúð og komum við siðla dags að þeirri bryggju, sem strandferðaskipin venja komur sínar yið. Þar starfar Guðsteinn nokkur .Tónsson í þágu þessarar bryggju og skipa hennar. Hann var ejcki svo mjög vant við látinn og þegar hann frétti erindið, þá varð hann hinn ljúfasti. Stafaði jiað vist ekki sízt af því, að hann var ritstjóranum eitthVað kunnugur og vildi gera honum það til góðs að veita nokkrar upplýsingar. Guð- steinn er kominn vel af barnsaldri eins og sjá má. Hann liefur stundað búmennsku í Grímsnesinu og Grafn- ingnum, sjómennsku frá Þorlákshöfn og suður með sjó. Hann segist vera alinn upp á mikið góðu heimili í Laugardalnum og hlýtur svo að vera, þar sem hann man slíkt enn. Guðsteinn er eðliskátur maður og virðist það vera einkenni hans kyn- slóðar, því þeir eru allir töluvert kátari, en yngri menn og stafar það kannski af því, að þeir vita sig hafa meginið af erfiðinu að baki sér. Hin- ir aftur á rnóti eru rétt farnir að sjá i skottið á tilverunni. Guðstein hefur líkt hinum aldursfélögum sín- um dagað. uppi á þessum bryggjum og gerir varla ráð fyrir að hverfa frá þessu dvalarheimili elliára sinna. Af þessu mætti nú ætla að fátt markvert væri við höfnina ann- að en menn vel fullorðnir. Svo er nú ekki. Unglingarnir á Eyrinni eiga lfka sína sögu, þó liún sé ólíkt styttri. Þar er t.d. Tryggvi Guðjóns- son bilstjóri hjá Eimskip. Hann er frá Disarstöðum í Sandvíkurhreppi í Árnessýslu og sleit þar dyggilega sínum æskuskóm. Þó Tryggvi sé rétt kominn yfir fertugt, þá man hann þá tið, sem kynslóð eftirstríðsáranna litur sem þjóðsögur. Tryggvi hefur þau sérkenni margra íslendinga að hafa fitlað við flest og verið sinn eiginn smiður, húsameistari, og margt, margt fleira. Hann hefur nú unnið ein tíu ár hjá Eimskip og hefur tekið til höndum við flest það, sem unnið er á Eyrinni. Einnig stundaði hann verzlunarstörf að Álafossi um nokkurra ára skcið og það má segja að hann kom sér ekki í bæinn fyr en að striðinu loknu. Og hér unir hann sér við bilkcyrslu hjá Eimskip. Annan mann hittum Framhald á bls. 37. 12 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.