Vikan


Vikan - 01.06.1961, Page 14

Vikan - 01.06.1961, Page 14
H»U dPaUMuElnN Draumspakur maður ræður drauma fyrir lesendur Vikunnar. Kæri draumráSningamaður, Mig dreymdi um daginn að annar páfa- gaukurinn minn, grænn að lit, hefði sloppið út úr búrinu og út og ég var að elta hann og kalla á liann, en hann flaug svo hátt og atltaf aðeins á undan mér. Stoppaði aðeins, en flaug svo áfram eins og hann væri að stríða mér. Ég var örvinluð, en þá allt í einu flýgur hann upp í hendurnar á mér og mér létti svo að vera búin að ná honum. Með fyrirfram þökk. Gló-Gló. P. S. Fuglinn var karlfugl. Svar lil Gló-Gló. Ef marka má drauminn, er eltingajrleikur þinn við karlfuglinn, bending þess að þú sért að reyna að nálgast karlmafin, en eftir draumnum virðist það nú ekki ganga vel fyrst í sta,ð þvi hann virðist hreykja sér hátt og lítur niður á þig. En bersýni- lega varð honum freistingin of sterk niður á jörðinni svo hann kemur skyndilega af sjálfdáðum niður til þín. Kæri draumráðandi. Fyrir nokkru dreymdi mig draum, sem mér þætti vænt um að fá ráðningu á. Mér fannst ég liggja á kennaraborðinu og strák- ur í mínum bekk, sem ég er hrifin af lika. Við það vaknaði ég. Skömmu síðar dreymdi mig að ég og þessi strákur vorum búin að eignast litla, ljóshærða telpu mjög líka strákn- um. En svo fannst mér ég og þessi strákur ganga eftir kirkjugólfinu til að gifta okkur. Við það vaknaði ég. Með fyrirfram þökk fyrir svarið. Ein forvitin. Svar til einnar forvitinnar. Fyrri draumurinn er tákn þess að þið verðið umræðuefni skólasystkinanna fyrir samdrátl ykkar. í þessu tilliti er skólaborð- ið, sem þið liggið á œði glöggt dæmi, því yfir það fara sa,mræður milli nemenda og kennara, í þessu tilliti táknar skólaborð umtal. Giftingarvígsla er venjulega tákn um deitur við elskanda. manns, og lítið barn í þínu tilfelli er tákn um áhyggjur. Þú, sem ræður drauma, Mig dreymdi draum, sem mig langar að vita hvað merkir. Mér fannst vera 17. júni. Það var gott veður og margt fólk úti. Þegar ég var að f'ara heim fer ég inn á krá, þá cr stráluir þar inni, sem ég hef verið með núna undanfarið. Hann heilsar mér ekki bara liorfir á mig. Mér fannst hann vera með bláa lös-ku. Þá finnst mér ég allt í einu vera að labba götuna heim og hún er orðin dimm og skuggaleg. Með fyrirfram þökk, Rúna. Svar til Rúnu. 17. júni, i dra.umi, er tákn um gleðskap og kæti. Þannig mun samband ykkar pilts- ins einnig hafa byrjað, og svo virðist vera að þið lendið i einhverjum sameiginlegum erfiðleikum, sem leiða af sér illt umtaj og uð atburðirnir upp frá því verði leiðigjarnir og drungalegir eins og gatan, sem þú gekkst eftir. Spats og menn hans stilltu pokerspilurunum upp við vegg og skutu þá niður. Hlutverkin í kvikmyndinni Sugar ............ Marilyn Monroe Joe .................. Tony Curtis Jerry .............. Jack Lemmon Spats ............... George Raft Mulligan ............. Pat O’Brien Osgood ............. Joe E. Brown Bonaparte ...... Nehemiah Persoff Sue ................ Joan Shawlee Poliakoff ............. Billy Gray Toothpick Charlic . . George E. Stone Bienstock ............ Dave Barry Allir hafa heyrt talað um villta tímabilið í Ameríku á þriðja tug aldarinnar. En ef til vill hafið þið velt þvi fyrir ykkur, hvernig þetta tímabil fékk orð á sig. Satt að segja gat allt, bókstaflega allt, gerzt í Chicago á þessum trylltu, þyrstu jazztimum. Þetta var vinaleg og virðuleg borg. Allir bófar með nokkra sjálfsvirðingu gátu veitt börnum sínum það uppeldi, sem hæfði stétt- inni. Næturkyrrðin var aldrei rofin af öðru en vélbyssuskothríð, og öllum líkum var snyrtilega sópað af gangstéttunum fyrir dag- mál. Ríkisstjórnin hafði um þetta leyti samþykkt lög, sem bönnuðu sölu á áfengum drykkjum, og það kom noklcru róti á hugi þeirra manna, sem ráku knæpurnar. Og til þess að geta sinnt skyldum slnum við þjóðfélagið tóku þeir að brugga. Ef einhver varð skyndilega þyrstur í Chicago á þessum tímum, þurfti hann aðeins að kveðja dyra hjá næstu útfararstofnun og kynna sig sem syrgjanda við „jarðarför ömmu,“ og þá var honum kurteislega boðið inn í vínstofuna innst í húsinu. Það var i einni slikri „ekki alveg löglegri“ knæpu, að söguhetjur okkar, Joe og Jerry, spiluðu á saxófón og kontrabassa í hljóm- sveit hússins og horfðu nú fram á þá rós- ~auðu framtið að eiga von á kaupi fyrir fyrstu vinnuvikuna eftir langt „hvíldartima- bil“. Meðan hljómsveitin hespaði af hvert hálf- falskt lagið á fætur öðru, voru Joe og Jerry G I N N að rífast. Jerry vildi eyða kaupinu i það að láta gera við tönn. Joe var stórhneykslaður. „Við skuldum húsaleiguna, Moe-nýlendu- vörubúðin á hjá okkur áttatíu og níu dollara. Þrír kínverskir lögfræðingar hafa stefnt okk- ur vegna falskra ávisana, og við höfum feng- ið lánaða peninga hjá hverri einustu stelpu i kórnum.........“ Jerry fór hjá sér. Hvernig gat hann verið svona eigingjarn? „Þú hefur rétt fyrir þér. Það fyrsta, sem við gerum á morgun, er að borga öllum eitthvað inn á skuldina.“ En Joe hafði aðrar og betri ráðagerðir. „Það fyrsta, sem við gerum á morgun, er að veðja á Greased Lightning.“ Það dofnaði yfir Jerry. Það að veðja á hundana var jafnvel enn minni tekjulind en spila í hljómsveit. Skyldi Joe aldrei læra af reynslunni? En þá varð Jerry ljóst, að allar frekari ráðagerðir um ráðstöfun á kaupinu voru ó- þarfar, því að mitt á meðal viðskiptavinanna sem sátu og þömbuðu baðkers-gin úr kaffi- bollum, sat Mulligan lögreglumaður í óbreytt- um jakkafötum, albúinn að gera allsherjar lögregluleit. Þegar þeir voru um það bil að læðast út, reis Mulligan á fætur og bað um hljóð. „Þetta er allt i lagi, góðir hálsar. Þetta er lögreglu- rannsókn, og ég er Mulligan lögregluþjónn. Þið eruð öll ákærð.“ í hópi nokkurra náunga með kúluhatta sat Spats Colombo og dreypti á áfum og fór í huganum yfir lista af „beztu vinum“ sinum, sem hefðu getað gefið Mulligan upplýsingar. Spats átti þessa sjoppu, og hann var i tölu- verðum hugaræsingi. Þetta var ekki dreng- skaparbragð gagnvart vini. Og ofari á allt annað hafði fyllibytta fyrir nokkrum mínútum helt úr ginbolla yfir glæsi- leg föt hans. Hann skoðaði skemmdirnar gramur. Þetta var ekki snyrtilegt. En Spats kunni betur við að hafa hlutina snyrtilega. Hann leit upp. Mulligan var að vomast yfir honum. „Hver er sakargiftin i þetta sinn?“ spurði Spats glaðlega. „Að gera menn ölvaða af kaffi, — áttatíu og sex sannanir.‘“ „Geri ég það, ég, sem er aðeins viðskipta- vinur hér?“ Spats tókst alltaf vel upp í sak- leysislegu hlutverki. „Við höfum fengið aðrar upplýsingar." „Frá hverjum?" spurði Spats. „Það skyldi 14 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.