Vikan


Vikan - 01.06.1961, Side 29

Vikan - 01.06.1961, Side 29
£umarfatatfekAii 1961 ♦♦*++♦*♦*+*♦+* *♦♦*♦♦♦** WHtP ííí tiáUuUai ít <s HrútsmerkiO (21. marz—20. apríl): Þessi vika mun verða sérstaklega viðburSarik og skemmtileg, en þú skalt gæta hófs í hvivetna og ekki baka þínum nán- ustu sorg með heimskulegu framferð:. Sértu ilia staddur fjárhagslega, skaltu hafa samráð við þér meiri menn áður en þú leggur út í vafasamt brask. Þú munt fá bréf eða sendingu í vikunni, sem þér er heldur illa við, en hagir þú þér skynsamlega, mun allt fara vel að lokum. Nautsmerkið (21. apríl—21. mai): Hafir þú eitthvað mikilvægt á prjónunum, skaltu ljúka því af í þessari viku, því að hún er hagstæð til allra stórræða. Það getur verið, að einhver geri þér óvæntan greiða, sem þú skalt reyna að notfæra þér vel. Leggðu mikla rækt við fjölskyldu þina og vinnu í þessari viku - þú munt ekki sjá eftir því. Tvíbui ainerkiö (22. maí—21. júní): Ýmislegt óvænt tnun henda þig í þessari viku. Láttu ekki hugfallast þótt þú mætir nokkrum mótbyr með fyrirætlanir Þínar, þú sérð ef til vill seinna hve heimskulegar þær eru. Síðari hluti vikunnar verður einkar skemmtilegur, en vertu ekki lauslátur um of. Finnirðu ein- iivers staðar til, skaltu ekki draga að leita læknis, slíkt getur orðið örlagaríkt. Gæfa fylgir þeim, sem fæddir eru 20. júni. Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí>: Ýmsar áætlanir þínar þurfa breytinga við — þér hættir tii að vera þröngsýnn og íhaldssamur um of. Peningamál og ástamál verða farsæl i þessari viku. Það var sannar- lega mál til komið, því að ólánið hefur elt þig á röndum undanfarið. Nú getur þú farið að anda rólega og njóta lífsins. Ljónsmerkiö (24. júli—23. ág.): Þú skalt nota tóm- stundir þínar þessa viku til þess að hjálpa kunningja þínum, þvi að hann er í kröggum og þarf sannarlega á hjálp að halda. 1 einkalífinu ættirðu að fara þér hægt og fara ekki svona mikið út á köldin til þess að skemmta þér með vinum þínum. Á föstudaginn mun eitt- hvað gerast, sem þér kemur mjög á óvart og Þú skalt vera varkár. Það borgar sig áreiðanlega. Meyjarmerkiö (24. ágúst—23. sept.): Undanfarið hefur þú unnið mjög að erfiðum viðfangsefnum og loks nú munt þú bera eitthvað úr býtum. Ástin mun sækja þig heim, þótt ekkl verði hún langvinn, ef að líkum lætur. Hafirðu hugsað þér að læra eitt- hvað frekar, þá er rétti timinn að hefja námið í þessari viku, þar sem hún er hagstæð til þeirra hluta, og láttu ekki hugfall- ast, þótt þér gangi ekki vel í fyrstu. Heillatala 1. Vogarmerkiö (24. sept—23. okt.): Þú ert eirðar- laus og ættir að njóta meiri samvista við fjölskyldu þína og láttu ekki hið órólega skaplyndi þitt verða ofan á í viðskiptum þínum við vini þína og ættingja. Tefldu ekki á tæpasta vaðið í fjármálum í þessari viku og farðu að ráðum þér eldri og reyndari manna. Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Sértu í mikilli óvissu um framtíð þína, ber þér að ígrunda allar að- stæður fordómalaust og taka ákvarðanir eins og samvizka þín býður þér. Þú skalt ekki taka til greina hvatningar fólks, sem þú ert í vafa um, að vilji þér vel. Ungt fólk mun eignast nýja vini um helgina og sennilega fara i einhver samkvæmi. BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Fólki, sem fætt er undir þessu stjörnumerki, ber að varast að gefa skapofsa sínum lausan tauminn í þessari viku — það getur haft óheppileg áhrif á framtíðina og þá sér í lagi heimilislífið. Þú skalt gera þér far um að koma til móts við vini þína, er þeir vilja ráða þér heilt, en þessi vika býður upp á mörg góð tækifæri, ef þú kannt að notfæra þér þau. Heillalitur gult og grænt. Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.) : Ekki mun þér og foreldrum þínum koma nógu vel saman þessa viku og átt þú nokkra sök á því. Allt mun þó að lokum falla í ljúfa löð fyrir tilstilli góðra manna. Þú munt líklega fara í ferðalag bráðlega og mikil ánægja mun þér veitast í því sambandi. 1 kunningjahóp þínum fara vin- sældir þínar vaxandi, og það áttu að þakka góðri framkomu, sem þú hefur tileinkað þér. Happaafmælisdagur 10. janúar. Vatnsberinn (21. jan.—19. febr ): Kunningi þinn mun leita til þín í öngum sínum og skalt þú gera þitt bezta til að hjálpa honum út úr klipunni, sem hann er i, og hann mun launa þér ríkulega þótt seinna verði. Þú munt einnig í vikunni verða þess áþreifanlega var, að einkalífið hefur tvær hliðar, góða og slæma, en takist þér að yfirvinna þina lakari eiginleika, mun allt fara vel að lokum. Heillalitur blátt. _______FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Þetta er vika ástarinnar. Gift fólk mun öðlast meira samræmi í hjónabandinu og ógiftir finna ef til vill ævifélagann, en eitt ber þó að varast umfram allt — að vera of leiðitamur í ástamálum og láta ekki glepjast af því fyrsta, sem fyrir verður. Þér mun að öllum likindum bjóðast tækifæri til þess að afla þér langþráðra aukatekna.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.