Vikan - 01.06.1961, Page 29
£umarfatatfekAii 1961
♦♦*++♦*♦*+*♦+*
*♦♦*♦♦♦**
WHtP
ííí
tiáUuUai
ít <s
HrútsmerkiO (21. marz—20. apríl): Þessi vika mun
verða sérstaklega viðburSarik og skemmtileg, en þú
skalt gæta hófs í hvivetna og ekki baka þínum nán-
ustu sorg með heimskulegu framferð:. Sértu ilia
staddur fjárhagslega, skaltu hafa samráð við þér
meiri menn áður en þú leggur út í vafasamt brask. Þú munt
fá bréf eða sendingu í vikunni, sem þér er heldur illa við,
en hagir þú þér skynsamlega, mun allt fara vel að lokum.
Nautsmerkið (21. apríl—21. mai): Hafir þú eitthvað
mikilvægt á prjónunum, skaltu ljúka því af í þessari
viku, því að hún er hagstæð til allra stórræða. Það
getur verið, að einhver geri þér óvæntan greiða,
sem þú skalt reyna að notfæra þér vel. Leggðu
mikla rækt við fjölskyldu þina og vinnu í þessari viku - þú
munt ekki sjá eftir því.
Tvíbui ainerkiö (22. maí—21. júní): Ýmislegt óvænt
tnun henda þig í þessari viku. Láttu ekki hugfallast
þótt þú mætir nokkrum mótbyr með fyrirætlanir
Þínar, þú sérð ef til vill seinna hve heimskulegar
þær eru. Síðari hluti vikunnar verður einkar
skemmtilegur, en vertu ekki lauslátur um of. Finnirðu ein-
iivers staðar til, skaltu ekki draga að leita læknis, slíkt getur
orðið örlagaríkt. Gæfa fylgir þeim, sem fæddir eru 20. júni.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí>: Ýmsar áætlanir
þínar þurfa breytinga við — þér hættir tii að vera
þröngsýnn og íhaldssamur um of. Peningamál og
ástamál verða farsæl i þessari viku. Það var sannar-
lega mál til komið, því að ólánið hefur elt þig á
röndum undanfarið. Nú getur þú farið að anda rólega og njóta
lífsins.
Ljónsmerkiö (24. júli—23. ág.): Þú skalt nota tóm-
stundir þínar þessa viku til þess að hjálpa kunningja
þínum, þvi að hann er í kröggum og þarf sannarlega
á hjálp að halda. 1 einkalífinu ættirðu að fara þér
hægt og fara ekki svona mikið út á köldin til þess
að skemmta þér með vinum þínum. Á föstudaginn mun eitt-
hvað gerast, sem þér kemur mjög á óvart og Þú skalt vera
varkár. Það borgar sig áreiðanlega.
Meyjarmerkiö (24. ágúst—23. sept.): Undanfarið
hefur þú unnið mjög að erfiðum viðfangsefnum og
loks nú munt þú bera eitthvað úr býtum. Ástin
mun sækja þig heim, þótt ekkl verði hún langvinn,
ef að líkum lætur. Hafirðu hugsað þér að læra eitt-
hvað frekar, þá er rétti timinn að hefja námið í þessari viku,
þar sem hún er hagstæð til þeirra hluta, og láttu ekki hugfall-
ast, þótt þér gangi ekki vel í fyrstu. Heillatala 1.
Vogarmerkiö (24. sept—23. okt.): Þú ert eirðar-
laus og ættir að njóta meiri samvista við fjölskyldu
þína og láttu ekki hið órólega skaplyndi þitt verða
ofan á í viðskiptum þínum við vini þína og ættingja.
Tefldu ekki á tæpasta vaðið í fjármálum í þessari
viku og farðu að ráðum þér eldri og reyndari manna.
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Sértu í mikilli
óvissu um framtíð þína, ber þér að ígrunda allar að-
stæður fordómalaust og taka ákvarðanir eins og
samvizka þín býður þér. Þú skalt ekki taka til
greina hvatningar fólks, sem þú ert í vafa um, að
vilji þér vel. Ungt fólk mun eignast nýja vini um helgina og
sennilega fara i einhver samkvæmi.
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Fólki, sem fætt
er undir þessu stjörnumerki, ber að varast að gefa
skapofsa sínum lausan tauminn í þessari viku —
það getur haft óheppileg áhrif á framtíðina og þá
sér í lagi heimilislífið. Þú skalt gera þér far um
að koma til móts við vini þína, er þeir vilja ráða þér heilt, en
þessi vika býður upp á mörg góð tækifæri, ef þú kannt að
notfæra þér þau. Heillalitur gult og grænt.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.) : Ekki mun þér og
foreldrum þínum koma nógu vel saman þessa viku
og átt þú nokkra sök á því. Allt mun þó að lokum
falla í ljúfa löð fyrir tilstilli góðra manna. Þú munt
líklega fara í ferðalag bráðlega og mikil ánægja
mun þér veitast í því sambandi. 1 kunningjahóp þínum fara vin-
sældir þínar vaxandi, og það áttu að þakka góðri framkomu,
sem þú hefur tileinkað þér. Happaafmælisdagur 10. janúar.
Vatnsberinn (21. jan.—19. febr ): Kunningi þinn
mun leita til þín í öngum sínum og skalt þú gera
þitt bezta til að hjálpa honum út úr klipunni, sem
hann er i, og hann mun launa þér ríkulega þótt
seinna verði. Þú munt einnig í vikunni verða þess
áþreifanlega var, að einkalífið hefur tvær hliðar, góða og
slæma, en takist þér að yfirvinna þina lakari eiginleika, mun
allt fara vel að lokum. Heillalitur blátt.
_______FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Þetta er vika
ástarinnar. Gift fólk mun öðlast meira samræmi í
hjónabandinu og ógiftir finna ef til vill ævifélagann,
en eitt ber þó að varast umfram allt — að vera of
leiðitamur í ástamálum og láta ekki glepjast af því
fyrsta, sem fyrir verður. Þér mun að öllum likindum bjóðast
tækifæri til þess að afla þér langþráðra aukatekna.