Vikan - 29.06.1961, Blaðsíða 34
CHEVROLET Vinsælasta vörubifreiðin
Lubitil
Sputnik
vélin
770.00 Kr. Búðarverð
HeiJdsölubirgðir
Eiríkur Xelilssoo
Garðarslræti 2.
HELGI SÆM . ..
Framhald aí bls. 5.
STÆRSTA BÚNAÐARMÁLIÐ.
Tillaga mín er sú, að höíð verði
skipti á hlut sandgræðslunnar og
skógræktarinnar. Enn koma mér
bændasamtökin í hug. Hver getur
verið skýring þess, að þau skuli ekki
beita sér fyrir því göfuga viðfangs-
efni að gera sandgræðsludraum Sig-
urðar heitins búnaðarmálastjóra að
veruleika? Ævintýrið á Skógasandi
sýnir og sannar, að unnt er að græða
sár landsins. Eyðimörkin, sem þar var,
er nú grasi vafið tún. Sama saga gæti
gerzt viðs vegar um land. Er nokkurt
búnaðarmál stærra og tímabærara?
Og þvi í ósköpunum gera ekki bænda-
samtökin skyldu sina i þessu efni?
Þess eru dæmi, að foksandar herji
skógarsýningar Hákonar Bjarnasonar.
Dimmur mökkur þeirra leggst yfir
héruð og iandshluti, ef hvessir af
fjöllum í þurrkatíð. Þennan grimma
leik geta Islendingar skakkað, ef þeir
mega vera að því fyrir liðveizlu við
skógræktaráróðurinn og aðra vit-
leysu, sem postular blekkingarinnar
gera sér að féþúfu.
Hvort verkefnið myndi þjóðnýtara?
BLÓMST URPOTTURXNN
HEIÐMÖRK.
Reykvíkingar fara sannarlega ekki
á mis við skógræktaráróðurinn. Heið-
mörk er rándýr jurtastöð, en ætti að
vera skemmtigarður höfuðstaðarins,
þar sem íbúum hans stæði til boða að
gera sér yndislegan dagamun úti í
guðsgrænni náttúrunni. Það hefur
gleymzt. Forráðamenn Reykjavikur
virðast ekki þekkja hugtakið útivist í
öðrum skilningi en ferðast á fjar-
lægustu landshorn eða suður i heim.
Viðey er komin i eyði, þó að hún
myndi kjörnasta útiveitingahús allra
staða í nágrenni vestrænna höfuð-
borga. Suðurnes er skotbyrgi lögregl-
unnar og Heiðmörk blómsturspottur.
Leikvellir barna og fullorðinna í
Reykjavík eru göturnar.
Heiðmörk er undrafögur frá skap-
arans hendi. Þar blasir við dýrleg
veröld af hverju leiti. Reykvíkingur-
inn gæti unað sér í faðmi hennar sér-
hvern helgidag langrar mannsævi. E'n
á Heiðmörk verður naumast þver-
fótað fyrir bjánalegum skógarhrísl-
um, sem eru líkastar skegghýjungi á
andliti ungrar konú. Og svo er Reyk-
víkingum bönnuð sauðfjárrækt af til-
litssemi við þennan ófögnuð.
Reykvíkingar ættu að bindast sam-
tökum um að slá eign sinni á Heið-
mörk og lifa þar glaðar stundir, en
þá verður að rífa upp skóginn þar,
þó að kleppsvinna sé.
SVIPUR LANDSINS.
Sú hugmynd að rækta hér skóg í
tilraunaskyni á lítið eða ekkert skylt
við þá stofnun, sem Hákon Bjarnason
hefur komið upp af miklum en
hneykslanlegum dugnaði. Slíka starf-
semi ætti að staðsetja úti í Grímsey
eða i afskekktum fjalladal, en alls
ekki á almannafæri. Og þegar ís-
lenzku trjáplönturnar hafa náð þeim
þroska einhvern tíma á næstu öld að
geta kallazt spýtur, þá verður á-
reiðanlega löngu hætt að nota timb-
ur. I
Mér liggur í léttu rúmi, hvort Island
hefur verið skógi vaxið í fornöld eða
ekki. Aðalatriðið er, að það á nekt-
inni tign sína að þakka. Skógur fer
iandinu illa eins og mikill klæðnaður
grannri konu, sem er drottning af
vaxtarlagi sínu. Island er naumast
fegurra öðrum ríkjum, sem státa af
háum fjöllum, djúpum dölum, straum-
hörðum fljótum og grænum byggð-
um, en tíguleiki þess nýtur sín ó-
gleymanlega í hrífandi nekt, þar sem
Framhald á bls. 38.
FARSEÐLARNIR FÁST HJÁ OKKUR.
FERÐASKRIFSTOFAN
^unna
HVERFISGÖTU 4. - SÍMI 16400 - REYKJAVÍK
34 VIKAN