Vikan


Vikan - 29.06.1961, Blaðsíða 21

Vikan - 29.06.1961, Blaðsíða 21
„Að heilsast og kveðjast, það er lífsins saga“. Bifröst Gestir úr nágrenni Bifrastar við skólauppsögn. Að Bifröst í Borgarfirði er flest það, sem augað má gleðja við eitt setur: fagurt landslag, fagur gróður og fögur hús. Bifröst gegnir ýmsum hlutverkum og er eitt þeirra að vera skólaset- ur, annað að vera gistihús, ennfremur fer þarna fram margs konar starfsemi á vegum SlS. Sem gistihús er Bifröst einstaklega geðfellt og hefur upp á þau þægindi að bjóða innan húss og utan, sem eitt sumarhús má prýða. Tvímælalaust er það einn glæsilegasti húsakostur, sem hýsir skóla hér á landi. Þarna hefur Samvinnuskól- inn starfsemi sína um vetr- artímann, og verður vart sagt, að betra sé hægt að bjóða. Hann er rekinn sem verzlunarskóli á grundvelli samvinnustefnunnar og sækja hann því aðallega þeir, sem hallast að henni. Skólanum var slitið 1. maí. og átti Vikan kost á að fylgjast með þvi. Veður var þannig að menn réðu sér varla fyrir vorfögnuði og var mikil gleði á staðnum. Nemendur og kennarar héldu kveðjuræður, verð- laun afhent og kórar Hér er Örlygur Hálfdánarson, blaðamaður hjá Samvinnunni og fulltrúi í Fræðsludeild SÍS að ræða við konu Vilhjálms Einarssonar, þrí- stökkvara. Vilhjálmur er kennari við skólann. sungu. Þegar Guðmundur Sveinsson skólastjóri hafði sagt. skólanum slitið, var setzt að veizluborð- um og að þeim loknum kvöddu nemendur skóla- stjóra, kennaralið og héldu út í lífið. Á örfáum árum hafa risið hin glæsilegustu veitingahús og dýrlegustu skemmtistaðir. Hafa þau verið þannig úr garði gerð, að hér má á sjá að raunverulega sé um slíka staði að ræða. Það er ekki svo ýkjalangt síðan að frekar var hægt að tala um samkomuhúsabrag á fyrir- komulagi húsakynnana en skemmtistaðastíl. Þá dugðu fjórir veggir, loft og gólf, ásamt borðum, stólum og harmonikku. E'nn eru veggirnir fjórir, en þó eru þeir ekki ein- göngu til þess eins gerðir að skýla fólki. Nú eru þeir augnayndi. Loft eru útbúin alls kyns ljósum, stórum og smáum, daufum og sterk- um. Hvergi eru fínni gólf. Hvergi eru mýkri dreglar á göngum, hvergi glæsilegri tröppur. Og svo er boðið upp á skemmtiatriði. Svo ör hefur þróunin verið, að það má búast við því, að ekki þurfi að bæta stórum skemmtistöðum við á næstunni. En það verður kannski sett á <] Nauðsynlegur hlekkur í starfseminni: Stúlkan í fatageymslunni. laggirnar eitt og eitt veit- ingahús og skemmtistaður, sem ekki miðar við það að taka mörg hundruð manns i sæti. Því skemmtistaðir, sem ekki eru gerðir fyrir nema um hundrað til hundr- að og fimmtíu manns, hafa oft það til að bera, sem hinir stærri geta aldrei boð- ið upp á. En þar er helzt þægileg tilfinning þess, að hér sé fámennt og góð- mennt. Þar er allt mýkra, hávaði minni, ekki iðandi mannhaf á dansgólfinu. Svo við snúum okkur að stóru skemmtistöðunum aftur, þá er ekki alltaf jafn mann- margt og verður að vera til að hindra tómablæ. Og það stafar auðvitað af þeirri margfrægu stað- reynd, að allir vilja skemmta sér í einu og til þess eru helgarnar hafðar. Þess í milli eru nokkrar sálir á reiki i stórum sölum. Við brugðum okkur í Lido á ein- um slíkum degi og það mátti kannski telja um 30 manns það kvöld. Starfsliðið allt er kannski stærra en gest- irnir. Kvöldið þar á eftir, þá er ekki viðlit að fá svo mikið sem rétt að lita inn fyrir, allt fullt. Þetta er skemmtanalífið í Reykja- vík.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.