Vikan


Vikan - 29.06.1961, Blaðsíða 32

Vikan - 29.06.1961, Blaðsíða 32
Allar myndir afgreiddar í yfirstærð, t.d.eftir6x6 filmu skilum við yður 9 x 9 cm myndum. Fallegustu myndirnar fást á Kodak » V E L 0 X « - pappír Fljót afgreiðsla! Kodak filmur: Verichrome-Pan.Plus-X Panatomic-X. Tri-X Einnig litfilmur: Ektachrome og Kodachrome Verzlun Uans pcicrscn Bankastræti 4 — Sími 13213 J3 2 VIKAN VESTAN ATLANDSÁLA Framhald af bls. 26. veid liér heima. Ég ætla, að grein sú sem birtist um ísland í Saturday Evening Post, víðlesnasta vikublaði Bandarikjanna, liafi orðið mjög góð landkynning. Það var sanngjörn grein, skrifuð af nærfærni og skiln- ingi og mér virtist flestir hafa lesið hana, þeirra manna, er ég átti tal við. SAMKEPPNI OG EIN- ST AKLIN GSFRAMTAK. í Bandarikjunum verður það alls staðar á vegi manns, hvað sam- keppnin milli einstaklinga og fyrir- tækja er hörð. Til þess að komast áí'rem verður þú að vera vel mennt- aður og kuuna eitthvað sérstakt. Þú verður að vera „smart“ eins og þeir segja og slundum heryrist slett hér. Sá sem vill koma vöru eða þjón- ustu á framfæri verður að auglýsa í rauðan dauðann. Sjónvarp og út- varp er eingöngu rekið á auglýs- ingagrundvelli og dagblöðin að miklu leyti. Meðfram bandarískum þjóðvegum er skógur ferlegra skilta sem æpa að vegfarendum fullyrð- ingar, slagorð og hástemmdar lýs- ingar á ágætum hinna ýmsu tegunda neyzluvara. Þeim finnst nóg um þessi skilti og nú hafa þau verið bönnuð meðfram nýjum vegum. Hvergi sá ég betra sýnishorn af einstakiingsframtakinu en einmitt á blaðamannaíundi með Kennedy for- seta. Þessum blaðamannafundi hef- ur annars kollega minn, Haraldur Hamar, lýst með ágætum í Morgun- biaðinu og treysti ég mér ekki til að bæta þar um. Þarna var saman kominn fjöldi blaðamanna frá helztu blöðum Bandarikjanna og viðræðu- formið var með þeim hætti, að blaða- mennirnir stóðu upp; sögðu „herra forseti“, og báru siðan upp spurn- inguna. Nú vildu margir spyrja for- setann og jjessvegna biðu þeir eins og hlauparar i viðbragðsstöðu og jjutu upp, tiu eða tuttugu i einu, þegar þá grunaði, að forsetinn hefði sleppt orðinu. Kennedy benti þá á einhvern einn, sem varð þess happs aðnjótandi að fá að láta ljós sitt skína og bera upp spurnhigu. Þess- um blaðamannafundum er sjónvarp- að og sá, sem kemst að með spurn- ingu, kemst um leið i sjónvarpið. Það er álitin mikil auglýsing fyrir við- komandi blað og ekki sízt fyrir blaðamanninn persónulega. ER ÞÁ YFIRLÆTI ÓÞARFT? Ég ætla að ijúka þessum pistli með þvi að minnast á eitt, sem oft varð á vegi okkar og stundum með þeim hætti, að við hipptum hver í annan og hugsuðum heim til okkar ást- kæra Fróns. Hér á ég við mismun á framkomu hátt settra mánna, ann- arsvegar þar og hinsvegar hér á íslandi. Við vorum í boði yfirvalda viðsvegar um landið og í Washing- ton áttum við þess kost að hitta og ræða við marga af forvígismönnum í viðskiptalífi og stjórnmálum Bandaríkjanna. Af þeim, sem við hittum þar má nefna Dean Rusk, utanríkisráðherra, Roswell Gilpatric, aðstoðar varnar- máiaráðherra, Roger Tubby, sem næstur er Rusk í utanríkismálun- um, Arthur Sylvester, Carl T. Row- an, Henry Cox og Haydn Williams, svo nokkrir séu nefndir. Þar fyrir utan mætti nefna nokkra banka- stjóra, borgarstjóra og forráðamenn stórfyrirtækja. Ég dró þann lærdóm af fundum við þessa menn, að þeir væru þeim mun skemmtilegri sem þeir skipuðu hærri og ábyrgðarmeiri stöður. Þetta fannst mér vera svo algild regla, að ég man ekki eftir nema einni undantekningu, Dennison að- míráli, yfirmanni Atlandshafsflota NATO, sem hér var á ferðinni fyrir nokkru. Það var alveg sama, hvar við komum; aldrei sáum við þessa kunnu „Hér-er-ég-persónu“, sem er svo „gáfuð“, að henni stekkur helzt ekki bros, og gengur um með „svip“ sem einungis vitnar um brjóstumkennanlega minnimáttar- kennd. Án undantekningar virtist mér bandarískir framámenn vel mennt- aðir og umfram allt skemmtilega mannlegir. Það hefur bara farizt fyrir að koma þeim í kynni við menntahroka og aðra álíka ávexti velgengninnar. Þeir voru ávallt reiðubúnir að hlusta á sjónarmið og fúsir að viðurkenna, að þeim getur skjátlast eins og öðrum dauðlegum mannverum. Almenningsálitið hefur kveðið drambið í kútinn og senni- lega mundi stæriláti þurradrumbur- inn, sem við þekkjum alltof vel úr opinberu lifi á fslandi, alls ekki lcomast áfram þar. Hann væri ein- ungis álitinn hlægileg fígúra. En Kanagreyin eru nú heldur ekki afkomendur göfugra víkinga eins og við. G.S. BarnokjóU Hér kemur uppskrift af sígildum barnakjól. Stærð: 1—2ja ára. Brjóstvidd: 53—56 cm. Sídd: 36—40 cm. Efni: 200—300 gr af ljósbláu, mjúku, fjögurra þráða ullargarni og 50 gr af hvítu garni sömu tegundar. Mynztrið er deilanlegt með 6+3 1. 1. umf. * 3 1. sléttar prjónaðar með hvítu garni, 3 1. sl. prj. með bláu garni. Endurtakið frá * til * umf. á enda og endið með 3 1. sl. hvítt. — 2. umf. * 3 1. brugðnar, hvítt, 3 1. sl. blátt. Endurtakið frá * til * umf. á enda og endið með 3 1. br. hvítt. — 3. umf. * 3. 1. sl., hvítt, 3 1. br. blátt. Endurtakið frá * til * umf. á enda, og endið með 3 1. sL, hvítt. — 4. umf. prjónuð brugðin með bláu garni. — 5. umf. prj. slétt með bláu garni. — 6. umf. * 3 1. br. blátt, 3 1. br. hvítt. Endurtakið frá * til * umf. á enda og endið með 3 1. br. blátt. — 7. umf. * 3 1. br. biátt, 3 1. br. hvítt. Endurtakið

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.