Vikan


Vikan - 29.06.1961, Blaðsíða 13

Vikan - 29.06.1961, Blaðsíða 13
Hús og Húsbúnaður Byggingarlistin er nú orðin svo alþjóðleg og samræmd, að minnsta kosti i hinum vestræna heimi, að tæplega er hægt að tala um ákveðin séreinkenni íyrir einstök lönd, Þegar um nú- tíma byggingar er að ræða. Húsið, sem þið sjáið hér, er að vísu byggt í Sviss, en það eru engin svissnesk, þjóðleg einkenni á því og það gæti alveg eins verið danskt eða jafnvel íslenzkt þess- vegna. Hvað sem annars má segja um þjóðlegan byggingarstil, þá dylst ekki, að húsið sem hér um ræðir væri álitið vel fram- bærilegt, hvar sem væri. Það er að allmiklu leyti úr timbri, en grunnur er þó steyptur. Hluti hússins er hlaðinn úr ljósbrúnum múrsteini en Það er byggingarefni, sem við höfum látið ónotað enn sem komið er. Einstaklega vel með timbri og raunar fleiri tegundum byggingarefnis. Hér hefur múrsteinn varla verið not- aður, utan í einstaka vegg eða kamínur hjá efnamönnum, sem hafa þá flutt hann sérstaklega inn til þess. Svo hefur það komið í ljós, að hleðslan á honum hefur orðið óhæfilega dýr, sökum reynsluleysis innlendra múrara af efninu. _____ Þetta svissneska hús er byggt á þann veg, að hluta þess er lyft um hálfa hæð, en undir er bílskúr og kjallari. Þetta bygging- arlag hefur orðið talsvert vinsælt á síðari árum og er þá gengið hálfa hæð upp af jarðhæðinni og hálfa niður. Útlit hússins einkennist af samspili margbreytilegra forma og efnis. Meginfletirnir eru úr viði, gleri og múrsteini. Þakskeggið nær ekki mjög langt út fyrir, en það er þykkt og gefur húsinu traustlegan svip. Að neðan er mynd úr stofu hússins. Arkitektinn hefur viljað leggja áherzlu á lengd stofunnar, því hann hefur innréttað með viðarklæðningu langsum og nálega meðfram endilöngum hliðarveggni- um er sófi úr sama við og með svampsessum. Notkun timburs að utan og gert hefur verið á þessu húsi, hefur orðið umræðuefni í sambandi við íslenzkar aðstæð- Framhald á bls. 33. tsi'

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.