Fréttablaðið - 16.12.2009, Side 22
22 16. desember 2009 MIÐVIKUDAGUR
STOKKIÐ Í STÓRBORG Úrslitakeppnin
í hástökki kvenna í Austur-Asíuleik-
unum var haldin á milli háhýsanna í
Hong Kong. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
DANMÖRK Auðmaður ryksugar upp eignir í
stærsta nauðungaruppboði sögunnar segir í
fyrirsögn vefútgáfu Berlingske Tidende í Dan-
mörku í gær.
Vísað er til kaupa félags Mikaels
Goldschmidt í samstarfi við BRFkredit á fast-
eignum í Klosterparken í Ringsted í Danmörku.
Um er að ræða 310 íbúðir sem áður voru í
eigu félags Steen Gudes, Stones Invest, sem
varð gjaldþrota á árinu.
Stones Invest gerði tilraun til að kaupa Keops
Development af íslenska félaginu Landic Prop-
erty en stóð ekki við skuldbindingar sínar og
því rifti Landic þeim samningum í ágústlok í
fyrra.
Íbúðirnar sem milljarðamæringurinn og
fasteignajöfurinn Goldschmidt tekur nú yfir
eru á svæði þar sem lóðarmælingin telur 223
þúsund fermetra, en íbúðafermetrarnir eru um
27 þúsund.
Þessi sami Mikael Goldschmidt seldi í árs-
byrjun 2006 félag sitt Atlas Ejendomme Landic
Property (en þá hét félagið Stoðir) og gjörþekk-
ir danskan fasteignamarkað.
Goldschmidt gerir ráð fyrir að hagnast á við-
skiptunum öllum, að því er er fram kemur í við-
tali Berlingske við hann. Hann tekur fram að
leigja eigi út íbúðirnar þar til fasteignamarkað-
ur í Danmörku tekur við sér á ný, en til standi
að vinna að margvíslegum endurbótum á svæð-
inu þangað til. - óká
HÖFUÐSTÖÐVAR KEOPS Í DANMÖRKU Keops er eitt
þeirra dönsku fasteignaþróunarfélaga sem komst í eigu
Íslendinga, en sala félagsins til Stones Invest síðla árs í
fyrra gekk ekki eftir vegna vanefnda danska félagsins.
Metkaup á stærsta nauðungaruppboði í danskri viðskiptasögu:
Fasteignajöfur lætur til sín taka á uppboði
BRETLAND, AP Svínaflensan alræmda
virðist ætla að verða einn mildasti
heimsfaraldur sem sögur fara af.
Um þetta eru breskir og banda-
rískir vísindamenn sammála.
Heilbrigðisyfirvöld í Bretlandi
hafa birt samantekt um fjölda
dauðsfalla af völdum H1N1-veir-
unnar í Bretlandi til þessa. Frá
júlí til loka nóvember hafa um 26
af hverjum 100 þúsund, sem smit-
ast hafa í Bretlandi, látið lífið af
völdum veirunnar.
Þetta er um bil hundrað sinnum
lægra dánarhlutfall en spænska
veikin hafði í för með sér árið
1918, en hún varð að minnsta kosti
50 milljón manns að bana um heim
allan.Flensufaraldrar þeir, sem
gengu yfir á árunum 1957 til 1968,
voru um tíu sinnum mannskæðari
en svínaflensan til þessa.
Þá sendu bandarískir vísinda-
menn nýverið frá sér tölur um
svínaflensufaraldurinn þar í landi,
og sögðu hann geta orðið mildasta
heimsfaraldur sögunnar.
Enn er þó ekki útséð um það hve
illskeytt þessi flensa verður, því
veiran gæti tekið upp á að stökk-
breyta sér og gerast mannskæðari.
- gb
Breskir og bandarískir vísindamenn sammála:
Svínaflensan með
mildari faröldrum
BÓLUSETNING Læknir í Frakklandi sprautar í mann bóluefni gegn H1N1-veirunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
amborgarar
4 brauð
alltaf í leiðinni!
h
g
4
o498 kr.pk.
ÓDÝRT
ALLA DAGA!