Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 4
4 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR FULLT HÚS JÓLAGJAFA 16.990 kr. LÖGREGLUMÁL Jón Þorsteinn Jóns- son, fyrrverandi stjórnarformað- ur Byrs, sætir nú farbanni vegna rannsóknar sérstaks saksóknara á málefnum Byrs og eignarhalds- félagsins Exeter. Er hann eini mað- urinn sem til þessa hefur verið úrskurðaður í farbann vegna rann- sókna embættisins. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins þótti rík ástæða til að tryggja viðveru Jóns Þorsteins hér á landi í kjölfar húsleita sem gerð- ar voru hjá Byr og MP Banka í nóv- emberlok, ekki síst í ljósi þess að hann hefði nýlega flutt lögheimili sitt til London og væri því líklegur til að fara úr landi. Fulltrúar sérstaks saksóknara sátu fyrir Jóni Þorsteini morgun- inn sem húsleitirnar fóru fram og handtóku hann, eins og aðra grun- aða í málinu. Jóni Þorsteini var haldið í yfirheyrslum lengst allra, í nálega sólarhring, áður en honum var sleppt á ný. Heimildir blaðsins herma að far- bannið renni út eftir helgi og ekki liggur fyrir hvort óskað verður eftir framlengingu á því. Rannsóknin snýst um kaup Exet- er á stofnfjárbréfum í Byr fyrir um milljarð króna í október og desem- ber í fyrra. Bréfin voru keypt meðal annars af Jóni Þorsteini og MP Banka. Byr lánaði móðurfélagi Exeter fyrir kaupunum. Grunur er um umboðssvik, auk annarra brota á auðgunarbrotakafla hegningar- laga. Slík brot varða allt að sex ára fangelsisvist. Exeter keypti einnig bréf af öðrum stjórnarmanni Byrs, Birgi Ómari Haraldssyni, sem líka er grunaður í málinu. Jón og Birgir höfðu báðir tekið lán hjá MP Banka fyrir kaupunum á stofnfjárbréfun- um. Með sölunni til Exeter sluppu þeir við mögulegt gjaldþrot, ef gengið hefði verið að þeim vegna skuldanna. Eignarhald Exeter er óljóst. Þannig hafa nokkrir stofn- fjárhafar í Byr fullyrt að MP Banki eigi félagið, en því hafa forsvars- menn MP Banka neitað. Greint var frá því í fréttum í lok mars síðastliðins að Fjármálaeftirlitið hefði hafið rann- sókn á viðskiptunum. Fyrr í mán- uðinum lét Jón Þorsteinn af stjórn- arformennsku í Byr, að eigin sögn vegna þess að félög honum tengd áttu þá í samningaviðræðum við lánardrottna. stigur@frettabladid.is Farbann á fyrrverandi stjórnarformann Byrs Jón Þorsteinn Jónsson er sá eini sem úrskurðaður hefur verið í farbann vegna rannsókna sérstaks saksóknara. Hann flutti lögheimili sitt til London nýlega. Jón Þorsteinn Jónsson, fjörutíu ára, er yngstur Nóatúnssystkinanna svo- kölluðu, barna Jóns Júlíussonar sem stofnaði Nóatún árið 1960. Jón og systkini hans áttu félagið Saxhól, sem nú er gjaldþrota, en Saxhóll átti aftur helmingshlut í Saxbyggi á móti Byggingarfélagi Gunnars og Gylfa. Saxbygg varð gjaldþrota í maí. Saxbygg var umsvifamikið á fasteignamarkaði og átti meðal annars meirihluta í Smáralind. Þá var Saxbygg meðal umsvifamestu hluthafa Glitnis, með 5,9 prósenta eignarhlut. Jón Þorsteinn komst, eins og syst- kini hans, í fréttir fyrr á árinu þegar í ljós kom að þau höfðu tekið lán fyrir hönd barna sinna hjá Glitni fyrir kaupum á stofnfjárbréfum í Byr. HVER ER JÓN ÞORSTEINN JÓNSSON? MÁ EKKI FARA HEIM Jón Þorsteinn flutti nýlega lögheimili sitt til London en má ekki fara þangað fyrr en farbanninu verður aflétt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR VEÐURSPÁ Alicante Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London Mallorca New York Orlando Ósló París San Francisco Stokkhólmur HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. 15° -1° -7° -1° -1° -3° -3° -2° -2° 23° 1° 13° 3° 24° -10° 0° 15° -3°Á MORGUN Stíf N-átt NA- og A-lands en heldur hægari vindur S- og V-lands í fyrstu. SUNNUDAGUR Víða fremur stíf N-átt, hvassast SA-lands. 2 2 0 0 -1 1 -2 2 1 4 -4 5 4 5 6 7 6 7 5 5 4 5 -2 -3 -4 -4 -2 -2 -1 -2 -4 -3 HELGIN Veðrið breytist heldur í kvöld frá því sem ríkt hefur undan farið en það gengur í norðanátt norðaustanlands í fyrstu með éljum og heldur kólnandi veðri. Það verður þurrt og bjart sunnan- og suðvestan til um helgina og fremur hægur vindur vest- an til fyrri partinn á morgun. Elísabet Margeirsdóttir Veður- fréttamaður KOSNINGAR Tæp sjötíu prósent þátttakenda í netkosningu vef- miðilsins Eyjunnar vilja að Alþingi hafni ríkisábyrgð á Icesave-samkomulaginu. Samtals tóku 7.454 þátt í kosningunni, eða 3,2 prósent kjósenda miðað við kjörskrárstofn til síðustu alþing- iskosninga. Tæp 29 prósent studdu sam- komulagið en 1,6 prósent kjós- enda tóku ekki afstöðu. Kosningin er fyrsta örugga raf- ræna atkvæðagreiðslan sem fram fer hérlendis og var hún gerð í samstarfi við Íslenska erfða- greiningu. Hún hófst á sunnudag og lauk klukkan hálf fimm í gær. - jab Meirihluti vill hafna Icesave: Dræm þátttaka í netkosningu NEYTENDUR Talsverður verðmunur er á jólamat og tilheyrandi, sam- kvæmt verðlagskönnun ASÍ sem gerð var á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri á miðvikudag. Niður- stöðurnar voru birtar í gær. Þar kemur fram að yfirleitt reyndist vera um 43 prósenta verð- munur á lægsta og hæsta verði á reyktu jólakjöti, rúmlega fimm- tíu prósenta verðmunur á tveimur kílóum af kartöflum og og tæplega fjörutíu prósenta munur á laufa- brauði og flatkökum. Þá reyndist vera mest tæplega níutíu prósenta verðmunur á ís á milli verslana en allt að hundrað prósent á hæsta og lægsta verði á rauðum eplum. Eplin voru ódýrust í Bónus, á 198 krónur, en dýrust í Hagkaup- um. Þar kostuðu þau 399 krónur. Bónus og Hagkaup eru bæði í eigu Haga. Ísinn var ódýrastur í Krón- unni en dýrastur í Hagkaupum. Bónus var oftast með lægsta verðið í könnuninni, eða á 28 vöru- tegundum af þeim 37 sem könnun- in náði til. Samkaup-Úrval var hins vegar oftast með hæsta verðið, eða í tæpum helmingi tilvika. ASÍ bendir á að tilboð séu víða í matvöruverslunum nú fyrir hátíð- arnar og verðbreytingar tíðar. Neytendur verði því að vera vel vakandi vilji þeir fá jólamatinn á hagstæðasta verðinu. - jab KEYPT Í MATINN Tilboð eru víða í matvöruverslunum fyrir hátíðarnar og verða neyt- endur að hafa augun opin fyrir hagstæðasta verðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Bónus oftast með lægsta verðið samkvæmt verðkönnun ASÍ: Um 43 prósenta verðmunur á reyktu jólakjöti DÓMSMÁL Hæstiréttur dæmdi í gær Vilhjálm Vilhjálmsson í tveggja ára fangelsi fyrir stór- fellt fíkniefnalagabrot. Hann var fundinn sekur um að hafa haft í vörslum sínum 392 e-töflur. Töfl- urnar fundust við leit lögreglu í leigubifreið sem Vilhjálmur og félagi hans voru farþegar í hinn 20. mars síðastliðinn. Þá var Vilhjálmur jafnframt sakfelldur fyrir vörslu á fíkniefn- um sem fundust við leit á honum þegar lögreglan hafði afskipti af honum í leigubifreiðinni, svo og heima hjá honum. Við húsleit á heimili hans fundust einnig gögn sem bentu til sölu hans á fíkni- efnum, en hann staðfesti fyrir dómi að hafa stundað þá iðju. - jss Fíkniefnasali dæmdur: Tvö ár fyrir um 400 e-töflur E-TÖFLUR Fundust í leigubíl sem maður- inn var farþegi í. SVEITARSTJÓRNIR „Okkur finnst þetta verðmat út úr korti og satt að segja svolítið 2007,“ segir Guð- mundur Rúnar Árnason, formað- ur bæjarráðs, um niðurstöðu matsnefndar eignarnáms- bóta varðandi land í Kapellu- hrauni sem Skógrækt rík- isins átti en Hafnarfjarðar- bær yfirtók. Eins og komið hefur fram í Fréttablaðinu var niður- staðan sú að bærinn á að greiða 608 milljónir fyrir landið sem er 160 þúsund fermetrar. Bæjar- ráð hefur falið bæjarlögmanni að leita leiða til að fá hagstæðari niðurstöðu. Guðmundur segir að þar komi meðal annars til greina að krefjast þess að dómskvadd- ir matsmenn verði fengnir að málinu. - gar Bæjarráð Hafnarfjarðar: Telja fráleitt að borga 600 millj. Íbúum fækkar í ár Íbúum fækkar í Færeyjum í ár. Hinn 1. nóvember bjuggu 48.583 í eyjunum og voru 145 færri en bjuggu þar um áramót. Í ágúst og október létust fleiri en fæddust í eyjunum og í heildina fluttust 325 fleiri frá eyjunum en til þeirra. FÆREYJAR GUÐMUNDUR RÚNAR ÁRNASON Kreppan að baki Hagvöxtur mældist 0,3 prósent á Írlandi á þriðja ársfjórðungi. Breska ríkisútvarpið segir landið vera að keyra upp úr kreppunni. ÍRLAND GENGIÐ 17.12.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 237,0144 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 127,46 128,06 205,20 206,20 182,66 183,68 24,542 24,686 21,728 21,856 17,501 17,603 1,4158 1,4240 199,94 201,14 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.