Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 32
32 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Umsjón: nánar á visir.is
KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf]
Fjöldi viðskipta: 49 Velta: 206,5 milljónir
OMX ÍSLAND 6
816 +0,80%
MESTA HÆKKUN
ÖSSUR 2,37%
FØROYA BANKI 0,39%
MESTA LÆKKUN
HB GRANDI -25,71%
MAREL -0,16%
HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: Atlantic Petroleum 166,00
+0,00% ... Bakkavör 1,95 +0,00% ... Føroya Banki 128,00 +0,39% ...
Icelandair Group 3,65 +0,00% ... Marel 63,50 -0,16% ... Össur 151,00
+2,37%
SPÓI LÓA
100% Merino ull. Þykkur og kósý. 100% lífrænn bómull.
ullarnærföt samfella
Verð bolur: 3.900 - 5.800 kr.
Verð buxur: 3.300 - 4.500 kr.
Verð bolur: 3.200 kr.
Verð buxur: 2.800 kr.
Verð: 2.800 kr.
VA LHÖL L
100% Merino ull.
ullarnærföt
Íslensk stjórnvöld hafa almennt
verið andsnúin skynsamlegum
og hagkvæmum breytingum sem
koma erlendis frá og frekar kosið
að beita fyrir sig heimagerðum
lausnum á efnahagslegum vanda-
málum. Þá hafa þau haft tak-
markaðan áhuga á alþjóðlegri
samvinnu sem kann að leiða til
aga í hagstjórn landsins.
Þetta er á meðal þess sem lesa
má úr greinum þrettán sérfræð-
inga á sviði hagsögu um það
hvaða lærdóm megi draga af hag-
þróun og hagstjórn hér á landi á
síðustu öld. Greinarnar birtast
í nýjasta tímariti Sögu, tímarits
Sögufélagsins.
Jónas H. Haralz, hagfræð-
ingur og fyrrverandi banka-
stjóri Landsbankans, bendir á að
Íslendingar hafi nær alla síðustu
öld gripið til heimagerðra lausna
með mislukkuðum árangri. Sem
dæmi hafi stjórnvöld hér ekki
áttað sig á þeim áformum um
alþjóðlega viðreisn og samvinnu
sem efst voru á baugi erlendis
eftir seinni heimsstyrjöldina og
gripið til skaðlegrar haftastefnu
á sama tíma og aðrar þjóðir voru
að afnema hana.
Þá bendir hann á að þótt þjóðin
hafi tekið þátt í Bretton Woods-
ráðstefnunni og gerst aðilar að
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum hafi
Íslendingar kosið svo lága hlut-
deild í sjóðnum að þátttakan gat
ekki komið að gagni. Ekki hafi
heldur verið áhugi fyrir aðild
að alþjóðavinnu, svo sem í gegn-
um viðskipta- og tollasamtökin
GATT við stofnun þeirra 1948.
Þessu til viðbótar bendir Jónas
á að Íslendingar hafi komið sér
undan þeim skuldbindingum um
frjálsa verslun og stöðugleika
hagstjórnar sem fólust í Mars-
hall-aðstoðinni.
Þessi tilhneiging stjórnvalda
hér til að hliðra sér hjá alþjóð-
legri samvinnu og múra sig inni
með haftastefnu hafi leitt til þess
að þegar landið gekk loks í Frí-
verslunarsamtök Evrópu (EFTA)
árið 1970 hafi það verið komið
á svipað stig og aðrar þjóðir í
Vestur-Evrópu höfðu náð allt að
fimmtán árum fyrr.
Ágúst Einarsson, rektor háskól-
ans á Bifröst, tekur svo djúpt í
árinni að stefna íslenskra stjórn-
valda hafi almennt einkennst af
vanþekkingu á hagrænum lög-
málum alla öldina og geri það
að hluta til enn. „Þessi afstaða
byggðist á þröngsýni og þekk-
ingarleysi. Ef það er eitthvað
eitt sem má læra af hagþróun
og hagstjórn 20. aldarinnar er
það að vanþekking í hagstjórn
er slæmur förunautur. Fámenn-
ið hérlendis gerir vanþekkingu
í efnahagsmálum, hvort sem er
meðal almennings eða stjórn-
málamanna, að einni hættuleg-
ustu ógn við sjálfstæði lands-
ins við hinar breyttu aðstæður
í heiminum í upphafi 21. aldar,“
segir Ágúst. jonab@frettabladid.is
Vanþekking fólks ógn
við sjálfstæði landsins
Íslendingar hafa frá því snemma á síðustu öld litið alþjóðleg viðskiptabandalög
hornauga. Fremur er gripið til heimagerðra lausna við vandamálum sem landið
hefur ratað í vegna lélegrar hagstjórnar, segir rektor háskólans á Bifröst.
Heppilegra er að skera niður
útgjöld hins opinbera til að efla
hagvöxt til langframa og bæta
skuldastöðu ríkisins en hækka
skatta. Þá eru skattaívilnanir lík-
legri til að koma hagkerfinu á rétt-
an kjöl og draga úr hallarekstri
hins opinbera en aðrar aðgerð-
ir sem eiga að hvetja til einka-
neyslu.
Þetta er niðurstaða umfangs-
mikillar samanburðarrannsóknar
Alberto Alesina og Silvia Ardagna,
kunnra prófessora í hagfræði við
Harvard-háskóla í Bandaríkj-
unum, á viðbrögðum við mikl-
um og snörpum hallarekstri í 21
landi sem aðild á að Efnahags-
og framfarastofnuninni (OECD).
Þar á meðal eru Danmörk, Sví-
þjóð, Noregur og Finnland. Ísland
er ekki á meðal þeirra landa sem
rannsóknin nær til.
Rannsóknin var birt í ágúst
og byggir á gögnum sem ná yfir
37 ára tímabil, frá 1970 til 2007.
Eftir því sem næst verður komist
hafa afrit af rannsókninni ratað á
borð sendifulltrúa AGS á Íslandi
auk Efnahags- og skattanefndar
Alþingis.
Niðurstöðurnar eru þvert á nið-
urstöður skýrslu fjármálaráðherra
um jöfnuð í ríkisfjármálum næstu
fjögur ár og þær tillögur í skatta-
málum sem ríkisstjórnin hefur
kynnt. Í skýrslu ráðherra segir
meðal annars að fræðilegar kenn-
ingar og athuganir með þjóðhags-
líkani bendi til að lækkun útgjalda
hafi neikvæðari áhrif á fram-
leiðslustig og dragi úr hagvexti en
hækkun skatta, að minnsta kosti
til skemmri tíma litið.
Þeir Alesina og Ardagna segja
nær öll OECD-ríkin sem rannsókn-
in nær til glíma við gífurlegan
hallarekstur vegna útgjalda hins
opinbera í kjölfar fjármálakrepp-
unnar og verði flest þeirra að leita
leiða til að bæta skuldastöðuna
strax á næsta ári. - jab
Lægri útgjöld skárri
en skattahækkanir
Meirihluti bankamálanefnd-
ar bandaríska öldunga-
deildarþingsins samþykkti
í gær tillögu þess efnis að
Ben Bernanke, bankastjóri
bandaríska seðlabankans,
yrði ráðinn til að sitja áfram
næstu fjögur árin.
Bernanke tók við af Alan
Greenspan í byrjun árs
2006 og rennur ráðningar-
samningur hans út í byrjun
næsta árs. Þegar hann var
tilnefndur sem eftirmað-
ur Greenspans haustið 2005
var einn meðlima banka-
málanefndarinnar á móti
því. Sex fleiri öldungadeild-
arþingmenn höfðu bæst í
hópinn í gær.
Bernanke, sem banda-
ríska vikuritið Time
krýndi mann ársins í vik-
unni, er sagður hafa siglt
bandarísku þjóðarskút-
unni af öryggi í gegnum
fjármálakreppuna og
komið í veg fyrir brot-
lendingu hagkerfisins.
Hann hefur hins vegar
verið harðlega gagn-
rýndur jafnt úr röðum
demókrata sem repúblik-
ana fyrir kostnaðar-
sama björgun banka og
fjármálafyrirtækja og
fyrir að vera seinn til að
reisa varnir gegn áhrif-
um fjármálakreppunar á
landsmenn. - jab
Bernanke áfram bankastjóri
STÓRKANÓNUR Jónas H. Haralz, sem situr hér næst púltinu á fundi um gildi alþjóð-
legrar samvinnu, segir íslensk stjórnvöld nær alla síðustu öld hafa hliðrað sér hjá
alþjóðlegri samvinnu og þeim skuldbindingum um frjálsa verslun sem í þeim felast.
Fremst á myndinni má sjá Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra
og sendiherra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
STJÓRNIN RÆÐIR MÁLIN Skýrsla fjármálaráðherra um jöfnuð í ríkisfjármálum næstu
fjögur ár er á öndverðum meiði við niðurstöður tveggja bandarískra prófessora í
hagfræði. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SEÐLABANKASTJÓRINN Ben
Bernanke, seðlabankastjóri í
Bandaríkjunum, er sagður hafa siglt
örugglega í gegnum fjármálakrepp-
una. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Bandaríski seðlabankinn ákvað á
miðvikudag að halda stýrivöxtum
óbreyttum við núll prósent. Lík-
legt er að vextir haldist þar næstu
mánuði. Í rökstuðningi sagði banka-
stjórnin að fasteignamarkaðurinn
hefði lagast frá því sem áður var auk
þess sem vísbendingar væru um að
einkaneysla væri að lifna við.
Seðlabankar víða um heim nema
hér tóku að lækka vexti hratt haustið
2007 þegar tak fjármálakreppunnar
tók að herðast. Bandaríska stórblaðið
Wall Street Journal hefur eftir fjár-
málasérfræðingum að þegar efna-
hagslífið verði komið á réttan kjöl
megi reikna með fimmtíu punkta
vaxtahækkun. Óvíst er hvenær það
verður. - jab
Óbreyttir vextir
vestanhafs