Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 44

Fréttablaðið - 18.12.2009, Page 44
44 18. desember 2009 FÖSTUDAGUR UMRÆÐAN Gísli Gíslason rifjar upp snjóflóðin í Nes- kaupstað Á tímabilinu 13. til 20. desember árið 1974 kyngdi niður snjó um allt Austurland. Föstu- daginn 20. desember var þokkalegasta veður í byggð á Norðfirði en mikill fann- burður. Dimm él gengu yfir en að mestu logn og bjart á milli hryðja. Norðfirðingar voru komnir í jóla- skapið og margt fólk komið í jóla- frí. Að öllu jöfnu hefðu á annað hundrað manns átt að vera við störf í frysti- húsi og bræðslu en voru aðeins um 20 þennan örlagadag. Flóðin falla Alls féllu 8 snjóflóð á Norðfirði 20. desember. Þar af 2 mannskæð sem náðu í sjó fram og lögðu helstu vinnustaði bæj- arins í rúst. Voru þetta mannskæðustu snjóflóð sem fallið höfðu á Íslandi síðan 1919. Fyrra mannskaðaflóðið 1974, hið innra, kom úr giljum ofan við fiskimjöls- verksmiðjuna og féll þegar klukk- una vantaði 13 mínútur í tvö eftir hádegi. Tók það m.a. í sundur raflínu svo rafmagnslaust varð í bænum og það var það fyrsta sem bæjarbúar urðu varir við. Þetta flóð tók 5 mannslíf og eyði- leggingarmáttur þess var yfir- þyrmandi. Síðara flóðið, hið ytra, kom úr Miðstrandaskarði um tut- tugu mínútum síðar og í því fór- ust 7 manns. Á meðal mannvirkja sem urðu fyrir síðara flóðinu var bifreiðaverkstæði, steypustöð og íbúðarhúsið Máni. Talið er að alls hafi 25 manns lent í flóðun- um tveimur. Þar af fórust 12 en 13 var bjargað eða náðu að bjarga sér af eigin rammleik. Fréttin um fyrra flóðið barst hratt um bæinn. Ættingjar og vinir þeirra sem saknað var hlupu á milli verslana og vinnu- staða í bænum í þeirri von að þar væri þá að finna. Sumir fund- ust en ekki allir og eru margir Norðfirðingar til frásagna um örvæntingafulla leit fólks að ást- vinum. Í fjögurra dálka fyrir- sögn í Morgunblaðinu 22. desem- ber segir: „Eins og sprengja hafi fallið á bæinn“. Björgunarstarfið Fyrstu 12 tímana eftir að flóð- in féllu sáu heimamenn á Norð- firði alfarið um björgunarstörf og héldu allir vinnufærir menn á flóðasvæðin. Einkum var leitað með stikum og mokað með rekum í flóðunum en vinnuvélum beitt þar sem það var talið þorandi. Einnig fór fram mikil leit á sjón- um út af flóðasvæðunum en sam- kvæmt sjónarvottum var talið að síðara flóðið hafi borist um 400 metra út á fjörðinn. Um klukkan 2 um nóttina leystu Eskfirðingar af örþreytta heima- menn sem höfðu unnið að björg- unarstörfum frá því flóðin féllu. Síðar bættust við björgunarflokk- ar frá Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og víðar. Strax á fyrstu 12 tímun- um er talið að um 150 heimamenn hafi unnið að björgunarstörfum og með aðkomumönnum hafi fjöldi björgunarmanna verið 250 til 300 daginn eftir. Seyðfirðing- ar buðu fram aðstoð sína en Norð- firðingar töldu ekki fært að þiggja það góða boð þar sem hætta var á snjóflóðum á Seyðisfirði. Fjöl- margir aðrir buðu fram aðstoð. Á fyrstu 12 tímunum fundust 9 látnir, 5 voru grafnir lifandi úr flóðunum og 4 var saknað. Þegar 20 klukkustundir voru liðnar frá flóðunum fannst einn til viðbót- ar á lífi en þá voru margir búnir að gefa upp alla von um að fleiri fyndust með lífsmarki. Nokkr- um klukkustundum síðar fannst enn eitt lík og var þá tala látinna komin í 10 og 2 var saknað. Þrátt fyrir mikla leit á landi og sjó tókst aldrei að finna lík þeirra 2ja sem saknað var. Endurreisn í harmskugga Hinn 30. janúar 1975 fór fram í Egilsbúð, félagsheimili bæjarins, útför hinna 10 sem fundust látn- ir og minningarathöfn um þá tvo sem ekki fundust. Um þá trega- fullu athöfn, sem fram fór fyrir fullu húsi, skrifaði Hjörleifur Guttormsson árið 1975: „Sú stund gleymist engum viðstöddum, þar sem bæjarbúar sátu þreyttir en óbugaðir með harm í huga. Sár þeirra, sem misstu sína nánustu í snjóflóðunum, eru enn ógróin, og samfélagið innan fjallahrings- ins við Norðfjörð mun lengi líða fyrir það högg, sem náttúruöflin greiddu byggðinni í dimmu og ofsafengnu skammdegi. Sam- hugur þjóðarinnar, heimsókn forsætis ráðherra og þingmanna Austurlands á slysstað, svo og fébætur á tjóni og stuðningur í ýmsu formi, jafnvel handan um höf, hafa hins vegar aukið mönn- um kjark og hvatt til dáða og athafna við endurreisn atvinnu- tækja og annars, sem féll í rúst á síðasta vetri.“ Með samheldni og stórhug og stuðningi margra þá endurreistu Norðfirðingar atvinnulíf staðarins og ávallt hefur kraftur og dugnaður ein- kennt samfélagið eystra. Höfundur er er formaður Norð- firðingafélagsins í Reykjavík Heimild: Brot úr sögu byggðar, skráð á www.nordfirdingafelagid. is af Kristjáni J. Kristjánssyni. 35 ár frá snjóflóðunum í Neskaupstað Í ár eru 35 ár frá því snjó- flóðin féllu á Norðfirði og 12 manns fórust. Af því tilefni heldur Norðfirðingafélagið bæna- og kyrrðarstund í Fella- og Hólakirkju þann 20. desember kl. 17.00. GÍSLI GÍSLASON
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.