Fréttablaðið - 18.12.2009, Qupperneq 46
18. desember 2009
FÖSTUDAG- UR
2
Skeifunni 3j · Sími 553 8282 · www.heilsudrekinn.is
Jafnvægi fyrir líkama og sál
heilsumeðferð · heilsuvörur · dekur · leikfimi
veittu vellíðan
gefðu
gjafabréf
Opið laugardag og s
unnudag
VÖNDUÐ FÓÐRUÐ
DÖMUSTÍGVÉL
ÚR LEÐRI Í ÚRVALI
Til dæmis:
GULL-ÚRIÐ MJÓDDINNI
Axel Eiríksson Álfabakka 16
úrsmíðameistari sími 587 4100
Trekt vasaúr í miklu úrvali.
Gyllt, stál og tvílit. verð frá
kr 14.900 til kr 68.000
Vasaúr
með sýnilegu vönduðu
17 steina gangverki
Verð aðeins kr 24.900
Ögmundur Ísak Ögmundsson og
Sólhildur Einarsdóttir, tólf ára,
leika bæði í helgileiknum. Sólhild-
ur leikur Maríu mey en Ögmund-
ur fer með hlutverk sögumanns í
stuttum leikþætti. Bæði hafa þau
séð helgileikinn árlega frá sex
ára aldri og voru því skiljanlega
farin að hlakka til að röðin kæmi
að þeim að taka þátt. „Við vorum
einu sinni eins og litlu krakkarnir
sem núna eiga eftir að líta upp til
okkar,“ segir Ögmundur. Margar
litlar stelpur dreymir um að leika
Maríu mey en Sólhildur segist ekki
hafa verið ein af þeim. „Mig lang-
aði að leika erkiengilinn Gabríel,“
segir hún en bætir því við að henni
finnist samt fínt að vera María. Á
undan helgileiknum eru leiknir
stuttir leikþættir um jól á ýmsum
tímum og þar er Ögmundur í stóru
hlutverki. „Ég er að segja frá jól-
unum í gamla daga þegar fólk
þurfti sjálft að búa til jólagjafir.“
Aðspurður segir hann að fólk hafi
helst gefið hvort öðru vettlinga
og tólgarkerti. „Þau voru fátæk
en vissu ekkert endilega af því,
voru bara ánægð með það sem þau
fengu,“ segir Sólhildur. Ögmund-
ur og Sólhildur eru bæði viss um
að þau verði ánægð með það sem
upp úr þeirra eigin pökkum kemur
á aðfangadagskvöldið. „Ef maður
biður um eitthvað og fær það ekki
verður maður að sætta sig við það
og það er allt í lagi,“ segir Ögmund-
ur. Sólhildi finnst bæði gaman að
fá mjúka og harða pakka.
Þau fá bæði bækur og lesa á
aðfangadagskvöld. Ögmundi finnst
þó ekki sama hvaða bækur hann
les þá, sumar bækur eigi ekki við
á jólanótt. Sólhildur segist hins
vegar lesa fyrir svefninn á hverju
kvöldi og að hún geri það líka á
aðfangadagskvöldið, kannski með
köttinn Snældu kúrandi til fóta.
„Snælda var möndlugjöfin fyrir
nokkrum árum og hún er algjör
jólaköttur,“ segir hún brosandi.
Hvorugt þeirra Ögmundar og
Sólhildar á sér uppáhaldshluta af
jólaguðspjallinu og helgileiknum.
„Þetta er allt jafn fallegt,“ segir
Ögmundur og bætir við: „Það
verður örugglega gaman að leika
í kirkjunni, öðruvísi og hátíðlegra
og fleiri áhorfendur en bara skóla-
félagarnir.“ - bb
Hátíðlegt að leika
helgileikinn í kirkjunni
Ögmundur og Sólhildur hafa bæði fylgst með helgileiknum í Fossvogsskóla frá sex ára aldri og fá nú loks að
taka þátt. Ögmundur leikur sögumann í leikhluta en Sólhildur fer með hið eftirsótta hlutverk Maríu meyjar.
Sólhildur Einarsdóttir og Ögmundur Ísak Ögmundsson hafa beðið í sex ár eftir því að taka þátt í helgileiknum.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Englakórinn æfir sig í að ganga inn
kirkjugólfið.
SKYRGÁMUR kemur
til byggða í nótt og gefur
góðum börnum í skóinn.
HELSA