Fréttablaðið - 18.12.2009, Blaðsíða 56
8 föstudagur 18. desember
Daníel Ágúst Haraldsson,
Gus Gus
Kemstu í hátíðarskap, þótt úti séu snjór og krap?
Það er fátt hátíðlegra en einmitt blessað krapið sem gerir
snjóinn svo dásamlega töfrandi. Millibilsástand milli þess
að vera snjór og vatn minnir mann á að allt er breytingum
undirorpið og ekkert er eilíft nema jólaandinn og jólaskap-
ið sem fleytir manni í gegnum drungann og myrkrið sem
er svo magnað og yfirþyrmandi í desember. Það er á þess-
um árstíma sem maður verður að kafa djúpt til að skilja
hismið frá kjarnanum og ná að faðma og njóta þess sem
gerir okkur að einhverju öðru en brauðstritandi skepnum.
Ytri aðstæður eins og til dæmis snjór og krap valda því oft
að maður gleymir að koma sér í jólaskap enda oft hægara
sagt en gert að vita hvað það er nákvæmlega fyrr en maður
er sestur niður með fjölskyldunni á aðfangadagskvöld og
jólailmur, ljós og tónar fylla andrúmsloftið.
Í kvöld kemur fjöldi tónlistarmanna, hljómsveita og plötusnúða saman til að fagna komu jólanna á tónlistarhátíðinni Jól Jólsson
á Hótel Íslandi. Þar á meðal verða FM Belfast, GUS GUS og Lúdó og Stefán. Hápunkti kvöldsins verður náð þegar allir söngvarar
kvöldsins safnast saman á stóra sviðinu og flytja lagið sem allir kunna – Hjálpum þeim – í nýrri útgáfu. Hundrað krónur af andvirði
hvers miða á Jól Jólsson renna til Hjálparstarfs kirkjunnar, í anda upphaflega lagsins sem var gefið út til styrktar vannærðum börnum
í Afríku. Jól Jólsson, sem stendur fyrir hátíðinni ásamt öðrum, mun tryggja að upphæðin verði ekki undir 100 þúsund krónum. Föstu-
dagur smalaði hluta hópsins saman og lagði fyrir hann nokkrar jólalegar spurningar.
SAMEINUMST, HJÁLPUM ÞE
Rósa Birgitta Ísfeld, Feldberg
Á að gefa börnum brauð að bíta í á jólunum? Já,
svo sannarlega, ef brauðið er táknrænt fyrir allt þetta
góða sem við borðum yfir hátíðirnar. Ég ætla einmitt að
fara að baka sörur, mér finnst mjög gaman að bjóða upp
á þær á jólunum. Svo ætlum við að borða kalkún á að-
fangadag, þannig að það eina sem kemst að hjá mér
þessa dagana er einmitt matarkyns. Ég ætla að borða
á mig gat af alls kyns góðgæti með góðu rauðvíni eða
púrtvíni. Því miður er dóttir mín ekki alveg að njóta
jólanna þetta árið því hún er bara átta mánaða. Ætli ég
gefi henni ekki bara smá brauðbita að naga.
Krummi Björgvins, Legend
Rokkar þú kringum jólatréð? Ég eyði alltaf jólunum með fjölskyldunni minni og borða dásmleg-
an mat. Reyni að rokka í kringum jólatréð en oftast eftir kalkúninn þá er ég svo saddur og fínn að
ég er alltaf sofnaður þegar á að opna pakkana. En það er ekki annað hægt en að rokka um jólin
þegar maður á svona mömmu sem passar upp á rokkarana.
Jón Atli Helgason, Human Woman
Hefur þú séð mömmu kyssa jólasvein? Ég mun sjá
mömmu í massastuði að kyssa jólasveininn sem verður á Jól
Jólsson tónlistarhátíðinni í kvöld á Broadway, ásamt Gus Gus,
Fm Belfast, Lúdó og Stefáni, hljómsveitinni minni Human
Woman og öllu því ferskasta sem í boði er í íslensku tónlistar-
lífi. Mamma hefur líka oft kysst President Bongo úr Gus Gus,
sem er jólasveinn á sinn einstaka hátt. Ég vil nota tækifærið
og hvetja fólk sem les þetta til að vera blítt og gott hvert við
annað um jólin. Gefum ást og umhyggju, styðjum við bakið á
þeim sem minna mega sín því öll erum við jú systkini. Gleði-
leg Jól Jólsson kæru vinir á landi og sjó.
Vera Sölvadóttir,
BB&Blake
Ætlar jólasveinninn þinn
að koma í kvöld? Ég er ekki
viss. Ég veit ekki hvort ég
kunni að meta að hann skuli
vera að sniglast heima hjá
mér. Síðast þegar hann kom
vissi ég ekki af því. Ég skildi
skó óvart eftir í glugganum og
var komin hálfa leið til Kópa-
vogs í strætó þegar ég fattaði
að þeir voru fullir af bráðnuðu
súkkulaði. Ég væri til í að hann
myndi bara setja gjafirnar í
gegnum lúguna. Það væri líka
einfaldara fyrir hann.
FR
É
TTA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N