Fréttablaðið - 18.12.2009, Side 60
4 •
DÝRUSTU SKILNAÐIR SÖGUNNAR
Vinur Ágústs Inga sendi okkur þessa mynd af honum með þeim
orðum að hann væri alveg eins og Stifler í American Pie. Stifler er
leikinn af Seann William Scott og við erum ekki alveg viss um að
hann sé tvífari Ágústs, en leyfum lesendum að eiga síðasta orðið.
Átt þú vin sem líkist einhverjum frægum? Er bróðir
þinn alveg eins og Nicolas Cage eða er besta vinkona
þín sláandi lík Katy Perry? Sendu okkur mynd á
popp@frettabladid.is eða SMS í síma 696 POPP
(696 7677) og hún gæti birst í næsta tölublaði.
TVÍFARAR
FRÆGA FÓLKSINS
Við-
skiptaritið
Forbes hefur spáð
því að auðævi Tigers
Woods nái upp í einn
milljarð dala á næsta
ári. Elin Nordegren,
eigin kona hans, getur
byrjað að reikna hvað
það er mikið í
sænskum krón-
um.Skilnaðir eru dýrir fyrir þá sem eiga peninga. Kona Tigers Woods er farin frá honum og nú hefst baráttan um milljarða
auðæfi kylfingsins. Eiginkona hans ætti að geta kafað djúpt ofan í vasa hans þar sem ný kona stígur fram nánast dag-
lega og lýsir yfir að Tiger hafi tví-, ef ekki þrípúttað í holuna sína. POPP tók saman dýrustu skilnaði fræga fólksins, sem ætti að
gefa einhverja mynd af því sem Tiger á von á.
1,8
T
Ö
L
U
R
N
A
R
E
R
U
Í M
IL
L
JÖ
R
Ð
U
M
ÍS
L
E
N
S
K
R
A
K
R
Ó
N
A
MICK JAGGER
JERRY HALL
Þau hittust 1977 og
eignuðust fjögur börn
áður en þau gengu í
það heilaga árið 1990.
Þau skildu árið 1999
eftir að Jagger barnaði
aðra konu. Í réttarsaln-
um dró Jagger rétt-
mæti brúðkaups þeirra
í efa og tókst að láta
ógilda það. Þess vegna
fékk hún aðeins hluta
af tæplega fjörutíu
milljörðunum hans.
LIONEL RICHIE
DIANE RICHIE
Þau hittust þegar
hann var 36 ára en
hún átján. Sjö árum
síðar skildi hann við
fyrstu eiginkonu sína
og kvæntist Diane árið
1996. Hún sótti um
skilnað eftir átta ára
hjónaband og slúður-
blöðin birtu fréttir af
snobbuðum kröfum
hennar sem hljóðuðu
upp á mánaðarlega
fata-, nudd- og lýta-
lækningapeninga.
MICHAEL DOUGLAS
DIANDRA DOUGLAS
Árið 1977 hittust Michael
Douglas og hin nítján ára
gamla Diandra Luker. Sex
vikum síðar voru þau gift.
Douglas varð í kjölfarið
einn af ríkustu mönnunum
í Hollywood, en sögur af
framhjáhaldi og áfengis-
misnotkun hans skyggðu
á hjónabandið. Árið 1998
skildu þau og hún fékk
milljónir og tvö hús.
JAMES CAMERON
LINDA HAMILTON
James Cameron kvæntist
leikkonunni Lindu Hamilt-
on í júlí árið 1997. Þau
eignuðust dóttur áður
en hjónbandið strandaði
átján mánuðum síðar.
Cameron fékk rúma tólf
milljarða fyrir að leikstýra
Titanic (sem halaði inn
221 milljarði) og Linda
fékk helminginn af því
eftir skilnaðinn.
PAUL MCCARTNEY
HEATHER MILLS
Bítillinn kvæntist Mills árið
2002, en hún er þrjá-
tíu árum yngri en hann.
Honum fannst óþarfi að
skrifa undir kaupmála,
sem hún á að hafa boðist
til að gera. Þau eignuðust
dóttur ári síðar, en árið
2006 voru þau skilin að
borði og sæng. Allt fór í
háaloft, hún sakaði hann
um ofbeldi og hann læsti
hana úti.
KEVIN KOSTNER
CINDY SILVA
Costner og Silva hittust í
háskóla og gengu í það heil-
aga árið 1978. Þau voru gift
í sextán ár og á því tímabili
varð hann einn tekjuhæsti
leikarinn í Hollwood og þén-
aði til dæmis rúma sex millj-
arða árið 1991. Þau voru gift
á hápunkti ferils Costners
og hún fékk því talsverðan
hluta af peningahlassinu
HARRISON FORD
MELISSA MATHISON
Þau hittust árið 1977 og
giftu sig árið 1983. Sex
árum síðar varð Ford einn
af tekjuhæstu leikurum
Hollywood þegar hann
fékk rúmar 800 milljónir
fyrir kvikmyndina Presum-
ed Innocent. Þau skildu
árið 2004 og ofan á millj-
arðagreiðsluna samdi hún
um að fá hluta af tekjum
hans í framtíðinni.
STEVEN SPIELBERG
AMY IRVING
Spielberg kvæntist leikkonunni
Amy Irving árið 1985 og hafði
þá þegar slegið í gegn með
myndunum Indiana Jones og ET.
Þau skildu tæpum fjórum árum
síðar og henni tókst að ógilda
kaupmálann sem var skrifaður á
munnþurrku. Hún fékk helming
eigna hans, sem í dag eru metnar
á tugi milljarða.
NEIL DIAMOND
MARCIA MURPHY
Neil Diamond og
Marcia Murphey 18,9
milljarðar
Diamond og Murphey
gengu í það heilaga
árið 1969, áður en
hann sló í gegn með
plötunni Touching You,
Touching Me. Hún sótti
um skilnað eftir 25 ára
hjónaband og nældi í
helming auðæfa hans.
Spurður út í upphæðina
og sagði Diamond að
hún hefði verið hverrar
„krónu“ virði.
MICHAEL JORDAN
JUANITA JORDAN
Körfuboltagoðsögnin
Michael Jordan kvæntist
Juanitu árið 1989. Hann
var þá byrjaður að fá
milljarða sem leikmaður
Chicago Bulls og andlit
Nike. Þau sóttu um
skilnað árið 2002, en
sættust skömmu síðar.
Þau skildu svo endan-
lega árið 2006 og hún
fékk helming gríðarlegra
auðæfa hans.
2,5
5,5 6,1 6,1+
9,8 10,4
12,3
18,9
20,6