Fréttablaðið - 18.12.2009, Side 62
6 •
Magnús Øder er einn ötul-
asti græjusafnari landsins.
Hann er mikið fyrir gömul
hljómborð og hefur eytt
ómældum fjármunum í að
kaupa þau og gera þau
upp.
„Ég vil meina að ég standi í samfé-
lagsþjónustu og að það sé skylda mín
að sanka að mér gömlum „vintage“-
hljóðfærum og varðveita þau fyrir
komandi kynslóðir. Í alvörunni,“
segir græjufíkillinn Magnús Árni
Øder, upptökustjóri og meðlimur
hljómsveitarinnar Benny Crespo‘s
Gang.
Magnús byggði nýlega hljóðver
ásamt Haraldi Leví, eiganda útgáfu-
fyrirtækisins Record Records. Hann
segist hafa eytt miklum fjármunum
í græjur og viðhald þeirra um árin
og réttlætir græjufíknina með því
að segja sjálfum sér að hann sé að
gera samfélaginu gott.
Þú ert sem sagt að þessu fyrir
okkur?
„Já, eiginlega. Það er rosalega
mikið af þessu dóti sem bilar
– kannski orðið þrjátíu til fimmtíu
ára gamalt. Fullt af fólki fer líka
illa með græjurnar þangað til þær
eyðileggjast og það eru kannski fáir
tilbúnir til að gera við þær og halda
þeim við. Það þarf mikinn tíma og
áhuga til að halda sumum græjum
gangandi. Þess vegna tek ég þetta
að mér, miskunnsami músíkantinn,
og varðveiti.“
Magnús segir sárt að vita til þess
að fólk hendi gömlum græjum sem
eru hættar að virka og hvetur fólk
til þess að koma þeim frekar til sín,
enda gerir hann ekki aðeins græj-
urnar upp heldur notar þær einnig
í upptökum á nýrri tónlist.
„Ég hef eytt fleiri klukkutímum og
miklu af peningum í að koma Rhodes,
Wulitzer, Farfisum og svona hljóm-
borðum í stand,“ segir Magnús.
Þannig að það þarf ekki bara að
sprauta smá kontakt-spreyi inn í
græjurnar?
„Nei, það er oft talsvert meira sem
þarf að gera þegar það er kannski
búið að týna alls kyns hlutum úr
þeim. Þá ligg ég á eBay og reyni
annaðhvort að finna upprunalegu
hlutina eða eftirlíkingar af alls konar
hlutum.“
POPPGÚRÚ: MAGNÚS VARÐVEITIR GRÆJUR FYRIR SAMFÉLAGIÐ
VERKEFNIÐ
Magnús er að taka upp
hljómsveitina Cryptic
Melody og vinna músík
með Lay Low fyrir
kvikmyndina Kóngaveg
7. Þá er hann að leggja
lokahönd á plötuna hans
Helga Vals.
DÓTAKASSINN
Pro Tools HD2, Millenia Pre amp, Universial Audio Pre
AMp, API EQ, 1176 compressora og distressor, Ribbon
míkrófónar, Farfisa-orgel, Rhodes píanó, Wulitzer, Klavin-
ett, Arp 2006 Synth, Vox Continental orgel, Yamaha CP70
rafmagnsflýgil og fullt af gömlum trommusettum til dæmis
gömul Ludwig.
NÝJA GRÆJAN
„Nýjasta græjan er API
EQ. Með EQ tekur þú
ákveðna tíðni og ýkir
hana og tekur aðra deyfir
hana.“
MISKUNNSAMI
MÚSÍKANTINN
MAGNÚS PRÓDÚSERAÐI
Lay Low - Please Don‘t Hate Me, Foreign Monkeys - Pí, Þóra Björk Þórðardóttir - I Am Tree
Now, Celestine - This Will Home Will Be our Grave og mixaði nýjustu plötur Láru Rúnars
og Viking Giant Show. Þá tók hann upp plötu hljómsveitarinnar Benny Crespo‘s Gang
ásamt hinum meðlimum hljómsveitarinnar.
FJÖLSKYLDUMYND Magnús og græjurnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA